Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.01 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 9. apríl
  • Vikan sem hefst 16. apríl
  • Vikan sem hefst 23. apríl
  • Vikan sem hefst 30. apríl
  • Vikan sem hefst 7. maí
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 4.01 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 9. apríl

Söngur 93

15 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Greinið frá því hve margir sóttu minningarhátíðina í söfnuðinum. Biðjið áheyrendur að segja frá jákvæðum ummælum sumra sem komu í fyrsta sinn. Hvetjið alla til að horfa á myndbandið The Bible — Its Power in Your Life (Biblían — kraftur hennar í lífi þínu) áður en rætt verður um efni þess á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 23. apríl.

10 mín: Spurningakassinn. Ræða öldungs. Fjallið um hvað skoða þurfi þegar heimili eru valin sem bóknámsstaður. — Sjá spurningakassann í Ríkisþjónustu okkar í maí 1983.

20 mín: „‚Gefðu þig allan‘ að boðuninni.“a Hvetjið tvo eða þrjá boðbera til að segja frásögur af því hvernig þeir hjálpuðu öðrum eins og mælst er til í gr. 3-5.

Söngur 80 og lokabæn.

Vikan sem hefst 16. apríl

Söngur 145

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Aðeins tvær helgar eru eftir af apríl. Hvetjið því alla til að taka þátt í boðunarstarfinu áður en mánuðurinn er á enda.

15 mín: Staðbundnar þarfir.

20 mín: „Einfaldleikinn er áhrifaríkastur.“b Takið með tillögur úr greininni „Komum okkur að efninu!“ í Ríkisþjónustu okkar í júlí 1999, bls. 4. Sviðsetjið stuttlega eina eða tvær einfaldar kynningar.

Söngur 146 og lokabæn.

Vikan sem hefst 23. apríl

Söngur 163

5 mín: Staðbundnar tilkynningar.

15 mín: „Hvaða markmið ættirðu að setja þér?“ Ræða. Takið með viðeigandi efni úr Varðturninum á ensku 1. nóvember 2000, bls. 18-21.

25 mín: „Kynnstu krafti Biblíunnar í lífi þínu.“ Umræður við áheyrendur. Hvetjið boðbera til að notfæra sér tillöguna í Árbókinni 1997, bls. 54, gr. 1, um að nota myndbönd Félagsins vel. Í júní verður rætt um myndbandið Staðfesta votta Jehóva í ofsóknum nasista.

Söngur 202 og lokabæn.

Vikan sem hefst 30. apríl

Söngur 215

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir apríl. Bóknámsstjórar skulu ganga úr skugga um að allir í hópnum þeirra geri það svo að hægt sé að taka þær saman fyrir 6. maí.

15 mín: „Vitnaðu með því að vera góður granni.“c Minnist á fleiri leiðir til að bera vitni með framkomu okkar. — Sjá Varðturninn 1. janúar 1998 bls. 31, gr. 16.

20 min: Brautryðjendur eru að hjálpa öðrum. Ræða og viðtöl í umsjá starfshirðis. Rifjið upp áætlunina Brautryðjendur hjálpa öðrum í Ríkisþjónustu okkar í september 1998, bls. 4. Bendið á ýmislegt jákvætt sem hefur áunnist í söfnuðinum vegna hennar. Eigið viðtal við brautryðjanda sem hefur hjálpað öðrum og boðbera sem hefur fengið hjálp. Bendið á hvernig báðir nutu góðs af því að starfa saman í þjónustunni. Hvetjið aðra til að nýta sér þessa ráðstöfun á komandi mánuðum.

Söngur 216 og lokabæn.

Vikan sem hefst 7. maí

Söngur 84

10 mín: Staðbundnar tilkynningar.

15 mín: „Guð megnar allt.“d Minnist stuttlega á efnið á bls. 443 í bókinni Jehovah’s Witnesses — Proclaimers of God’s Kingdom og berið saman umfang boðunarstarfsins árið 1935 og þjónustuskýrslu nýjustu Árbókarinnar. Bendið á hvernig þessi gríðarlega aukning var eitt sinn talin óhugsandi.

20 mín: Hvernig getur fjölskylda okkar sýnt heilagleika? Öldungur og fjölskylda hans ræða efni Varðturnsins 1. september 1996, bls. 15-19. Fjallið um leiðir til að sýna heilagleika á heimilinu, gagnvart ættingjum, í söfnuðinum og hverfinu, skólanum og vinnunni.

Söngur 70 og lokabæn.

[Neðanmáls]

a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

c Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

d Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila