Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.01 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 12. febrúar
  • Vikan sem hefst 19. febrúar
  • Vikan sem hefst 26. febrúar
  • Vikan sem hefst 5. mars
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 2.01 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 12. febrúar

Söngur 6

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Rætt verður um efni myndbandsins The Bible — Mankind’s Oldest Modern Book (Biblían — elsta nútímabók mannkyns) á þjónustusamkomu vikunnar sem hefst 26. febrúar. Stuðst verður við spurningarnar á bls. 7 í Ríkisþjónustu okkar.

15 mín: „Vegsamaðu Jehóva með góðum verkum.“a Taktu með efni úr Jehovah’s Witnesses — Proclaimers of God’s Kingdom, bls. 187, gr. 2-3.

20 mín: „Að sannfæra aðra.“ Bóknámsstjóri og brautryðjandi eða hæfur boðberi ræða meginatriði greinarinnar í Varðturninum á ensku 15. maí 1998, bls. 21-3. Farið yfir rammagreinina á bls. 23, „Reaching Your Student’s Heart“ (Náðu til hjarta nemandans). Veljið algenga trúarbábilju og ræðið hvernig megi sannfæra húsráðendur um að afstaða Biblíunnar sé rétt.

Söngur 208 og lokabæn.

Vikan sem hefst 19. febrúar

Söngur 221

8 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

15 mín: „Skaparinn ber umhyggju fyrir okkur.“b Útskýrið hvernig nota megi Skaparabókina til að hjálpa þeim sem efast um eða afneita tilvist Guðs. Enda þótt bókin sé ekki ætluð til notkunar í biblíunámsstarfinu getur hún komið að góðum notum við að hvetja fólk til að rannsaka allt sem Biblían segir. — Sjá Skaparabókina bls. 189-91.

22 mín: Kunngerum nafn Jehóva og máttarverk.“c Öldungur fjallar um hvað gert verði í söfnuðinum til að auka boðunarstarfið í mars og apríl, og hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að gerast aðstoðarbrautryðjendur. Biðjið nokkra að segja frá hve mikla gleði það hafi veitt þeim að taka þátt í aðstoðarbrautryðjandastarfinu í apríl síðastliðnum. Bendið á að reynt verði að hjálpa öllum hæfum, óvirkum boðberum til að sameinast okkur í starfinu á ný, og hjálpa börnum og öðrum biblíunemendum að verða hæf til að gerast óskírðir boðberar. — Sjá spurningakassann í Ríkisþjónustu okkar í nóvember 2000.

Söngur 27 og lokabæn.

Vikan sem hefst 26. febrúar

Söngur 48

8 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir febrúar.

12 mín: Kynningarorð fyrir Þekkingarbókina. Ertu með einhver kynningarorð í huga þegar Þekkingarbókin verður boðin í mars? Á baksíðum eldri tölublaða Ríkisþjónustu okkar eru tillögur að kynningarorðum bæði fyrir fyrstu heimsóknir og endurheimsóknir. Rifjið upp tvær eða þrjár kynningartillögur. (Desember 1995; mars, júní, nóvember 1996; júní 1997; mars 1998) Látið sviðsetja tillögurnar tvær frá því í nóvember 1996 um að bjóða biblíunámskeið beint. Hvetjið alla til að leggja sig sérstaklega fram um að koma af stað nýjum námskeiðum.

25 mín: „Lærðu um elstu nútímabók mannkyns.“ Umræður við áheyrendur byggðar á spurningunum á bls. 7. Bendið á að Nýheimsþýðingin sé meðal útbreiddustu þýðinga Biblíunnar. Prentaðar hafa verið meira en 100 milljónir eintaka á 37 tungumálum af Nýheimsþýðingunni allri eða hluta hennar. Í apríl verður rætt um þriðja myndbandið í syrpunni, The Bible — Its Power in Your Life (Biblían — kraftur hennar í lífi þínu).

Söngur 64 og lokabæn.

Vikan sem hefst 5. mars

Söngur 81

5 mín: Staðbundnar tilkynningar.

18 mín: „Jehóva veitir kraft.“d Fáið áheyrendur til að tjá sig um heimfærslu ritningarstaðanna.

22 min: „Árangursrík símaboðun.“e Í umsjá starfshirðis. Takið með hvatningarorðin í Varðturninum 1. desember 1999, bls. 29, gr. 17. Rifjið upp rammagreinina „Hvað áttu að segja við símsvara?“ í Ríkisþjónustu okkar í nóvember 2000. Greinið frá því hvaða svæði hafa verið útbúin fyrir símaboðun. Komið með nokkrar stuttar frásagnir til að sýna að þessi boðunaraðferð ber góðan árangur á starfssvæði safnaðarins.

Söngur 108 og lokabæn.

[Neðanmáls]

a Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

b Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

c Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

d Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

e Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila