Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.00 bls. 2
  • Þjónustusamkomur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 12. júní
  • Vikan sem hefst 19. júní
  • Vikan sem hefst 26. júní
  • Vikan sem hefst 3. júlí
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 6.00 bls. 2

Þjónustusamkomur

Vikan sem hefst 12. júní

Söngur 136

8 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið yfir rammagreinina „Sveitastarf.“

15 mín: „Erfiði yðar er ekki árangurslaust.“ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum. Farið nokkrum orðum um frásöguna í Varðturninum á ensku 15. júní 1996, bls. 32.

22 mín: Námskeiðum komið af stað með Kröfubæklingnum. Ræða byggð á samnefndri grein í Ríkisþjónustu okkar í janúar 1999, bls. 3-4. Sviðsetjið kynninguna í 6. grein. Látið einn eða tvo boðbera segja stuttlega frá því hvernig þeim hefur tekist upp í biblíunámsstarfinu, hvernig þeir bjóða námskeið og hvað þeir gera til að halda þeim gangandi viku eftir viku.

Söngur 209 og lokabæn.

Vikan sem hefst 19. júní

Söngur 14

12 mín: Staðbundnar tilkynningar, reikningshaldsskýrslan og tilkynning um að ársfjórðungslegri endurskoðun reikningshaldsins sé lokið. Sýnið hvernig nota megi bókina Spurningar unga fólksins á árangursríkan hátt í boðunarstarfinu yfir sumarmánuðina þegar líklegt er að hitta megi fleiri unglinga heima en endranær.

8 mín: Spurningakassinn. Ræða öldungs.

25 mín: ‚Hvernig get ég það ef enginn leiðbeinir mér?‘ Umræður með spurningum og svörum í umsjá starfshirðis. Látið lesa hverja tölugrein og ritningarstaðina í 3., 4. og 7. grein. Útskýrið, þegar farið er yfir 6. grein, þátt starfshirðis í að ákveða hvort koma eigi aftur í gang biblíunámskeiði hjá skírðum boðbera. — Sjá Spurningakassann í Ríkisþjónustu okkar í nóvember 1998.

Söngur 89 og lokabæn.

Vikan sem hefst 26. júní

Söngur 39

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið boðbera á að skila inn starfsskýrslum fyrir júní. Rifjið upp ritatilboðið fyrir júlí. Bendið á eldri bæklinga sem eru fyrirliggjandi og greinið stuttlega frá inntaki hvers þeirra. Sviðsetjið vel æfða kynningu á einum bæklinganna.

17 mín: „Verið ‚örlátir, fúsir að miðla öðrum.‘“ Spurningar og svör. Bendið á fjórar ástæður fyrir því að gefa eins og fram kemur upp í Varðturninum á ensku 1. nóvember 1996 bls. 29-30.

18 mín: Lærðu að svara hverjum manni. (Kól. 4:6) Ræða og umræður við áheyrendur. Hverju á að svara þegar húsráðandi vekur máls á óbiblíulegri kenningu? Reasoning on the Scriptures (Rökræðubókin) getur oft orðið okkur að liði því að í henni eru gagnlegar tillögur um hvernig svara megi slíkum mótbárum háttvíslega. Tökum dæmi: Í augum okkar er dauðinn óvinur sem lausnarfórn Krists mun að engu gera, en aðrir eru sannfærðir um að ekkert geti afmáð dauðann og trúa jafnvel á endurholdgun. Ræðið tillögurnar í Rökræðubókinni undir millifyrirsögninni „If Someone Says —“ (Ef einhver segir —) á bls. 103-4 og 321. Hvetjið alla til að hafa bókina með sér í boðunarstarfið.

Söngur 44 og lokabæn.

Vikan sem hefst 3. júlí

Söngur 213

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Biðjið boðbera að greina frá því hvernig þeim tókst að koma af stað námskeiðum í Kröfubæklingnum.

15 mín: Staðbundnar þarfir.

20 mín: Meginreglur Biblíunnar styrkja fjölskylduböndin. Umræður tveggja bræðra um tillögurnar átta í Reasoning on the Scriptures (Rökræðubókinni), bls. 253-4. Útskýrið hve mikilvægt sé að leiða biblíunemendum fyrir sjónir að skilningur á meginreglum Biblíunnar og heimfærslu þeirra stuðli að hamingju fjölskyldunnar. Sýnið hvernig nota megi 8. kafla Kröfubæklingsins til þess. Þegar fjölskylda fylgir ráðleggingum Biblíunnar eykur það samheldni hennar og gleði og hún tengist sterkum kærleiksböndum. Segið frásöguna í The Secret of Family Happiness (Fjölskylduhamingjubókinni), kafla 13, gr. 1, 21-2.

Söngur 51 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila