Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.00 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 4.00 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Hafið Kröfubæklinginn við höndina til að bjóða áhugasömum og reynið að koma af stað heimabiblíunámskeiðum. Júní: Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? Leggið áherslu á að koma af stað heimabiblíunámskeiðum. Júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? Þar sem við á má bjóða bæklingana Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru? og Bók fyrir alla menn.

◼ Barmmerki fyrir landsmótið 2000 verða send til safnaðanna án þess að sérstaklega þurfi að panta þau. Ef söfnuðirnir þurfa fleiri merki má panta þau á ritapöntunareyðublaðinu (S(d)-14). Plasthulstur fyrir barmmerkið þarf að panta sérstaklega fyrir þá safnaðarmenn sem óska þess.

◼ Eins og greint var frá í Ríkisþjónustu okkar í mars 2000 er verið að framleiða geisladiskinn Watchtower Library — 1999 Edition á níu tungumálum. Vinsamlegast hafið í huga að hann er ekki ætlaður til dreifingar meðal almennings, til að láta í skólabókasöfn eða til að afhenda fólki sem sýnir vottum Jehóva aðeins lítils háttar áhuga. Hann er ætlaður safnaðarmönnum og fæst aðeins fyrir milligöngu safnaðarins.

◼ Félaginu er ánægja að tilkynna að Kingdom Melodies nr. 9. verður fáanlegt innan tíðar bæði á geisladiski og hljóðsnældu. Um er að ræða nýja upptöku af leiknum ríkissöngvum sem ekki eru á Kingdom Melodies nr. 1-8. Lögin taka um klukkustund í flutningi og hafa verið valin til að auka fjölbreytnina og til yndis- og ánægjuauka. Pantanir má senda inn um leið og Ríkisþjónusta okkar tilkynnir að diskurinn og snældan séu komin.

◼ Það kunnu örugglega allir að meta leikritið „Metum andlega arfleifð okkar“ á landsmótinu „Spádómsorð Guðs“ síðastliðið sumar. Leikritið benti á hvernig Jakob mat það sem heilagt er alla ævi, og það hvatti okkur til að vera andlega virk, brennandi í andanum og fús til að boða fagnaðarerindið. Félaginu er ánægja að tilkynna að leikritið Appreciating Our Spiritual Heritage (Metum andlega arfleifð okkar) verður brátt fáanlegt á hljóðsnældu. Fyrst í stað verður það til á ensku, en tilkynnt verður síðar um fleiri tungumál. Það er von okkar að þessi nýja hljóðsnælda hjálpi bræðrum að meta enn betur þær mörgu gjafir sem þeir fá frá Jehóva, meðal annars sannleiksorð hans, vonina um eilíft líf og þann heiður að boða fagnaðarerindið sem fulltrúar hans. Þetta er allt hluti af okkar ómetanlegu andlegu arfleifð. Biblíuleikritið er okkur hvatning til að láta ekki sinnuleysi og áhugaleysi ná tökum á okkur og til að keppa eftir blessun Jehóva.

◼ Nýjar hljóðsnældur fáanlegar:

Biblíuleikritið Keep Your Eye Simple (Haltu auga þínu heilu) (csey) — danska.

Biblíuleikritið Marked For Survival (Merktir til björgunar) (csme) — norska.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila