Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
Upprifjun, með lokaðar bækur, á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 3. janúar til 17. apríl 2000. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.
[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna við að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]
Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar eru réttar eða rangar:
1. Stundum þurfum við að bíða eftir blessun Jehóva þar eð hann þekkir aðstæður okkar og sinnir hverri þörf þegar það kemur okkur að sem mestu gagni. (Sálm. 145:16; Jak. 1:17) [wE98 1.1. bls. 23 gr. 6]
2. Nærvera sáttmálsarkarinnar ein og sér tryggði Ísraelsmönnum ekki velgengni. Blessun Jehóva réðst af andlegu hugarfari og trúfastri hlýðni þeirra er örkina höfðu. (Jós., 7. kafli) [Vikulegur biblíulestur; sjá it-1, bls. 167 gr. 2]
3. Einfaldur lestur orða Jehóva nægir til að næra okkur andlega. (5. Mós. 8:3) [Vikulegur biblíulestur; sjá w85 1.10. bls. 17 gr. 15, 17]
4. Meginregla Móselaganna í 5. Mósebók 23:20 sýnir að það er kærleikslaust af kristnum manni að taka vexti af lánsfé. [Vikulegur biblíulestur; sjá it-1, bls. 1212 gr. 5; it-2, bls. 259 gr. 11; w87 1.5. bls. 11 gr. 9]
5. Bjartsýni Jósúa og Kalebs byggðist á bjargfastri trú þeirra á styrk og staðfestu Ísraelsmanna til að yfirstíga hvaðeina sem hindraði þá í að leggja undir sig fyrirheitna landið. (4. Mós. 13:30) [w98 1.3. bls. 5 gr. 4]
6. Þegar Páll minntist á „náðargjöfina“ í 1. Tímóteusarbréfi var hann að minna Tímóteus á smurningu hans með heilögum anda og verðlaunin sem biðu hans á himnum. (1. Tím. 4:14) [wE98 15.2. bls. 25 gr. 1]
7. Jósúabók geymir enga mikilvæga hlekki frásögunnar af sæði Guðsríkis. [si bls. 46 gr. 24]
8. Dómarabókin segir frá mönnum sem voru valdir og útnefndir af Ísrael til að stjórna þjóðinni fyrir konungatímann. [si bls. 46 gr. 2]
9. Beiðni Gídeons í Dómarabókinni 6:37-39 sýnir að hann var óhóflega tortrygginn og varkár. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE88 1.4. bls. 30 gr. 6]
10. Með því að hvetja lærisveina sína til að ‚heilsa engum á leiðinni‘ var Jesús að leggja áherslu á mikilvægi prédikunarstarfsins og hve áríðandi væri að gefa sig allan að því. (Lúk. 10:4) [wE98 1.3. bls. 30 gr. 5]
Svarið eftirfarandi spurningum:
11. Hvers vegna er mikilvægt að orð Jehóva séu foreldrum hugföst? (5. Mós. 6:5, 6) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE98 1.6. bls. 20 gr. 4]
12. Hvernig getur fjölskylduhöfuð fylgt meginreglunni í 5. Mósebók 11:18, 19? [Vikulegur biblíulestur; sjá fy bls. 70 gr. 14]
13. Hvaða biblíulegar vísbendingar eru um að strokuþrællinn Onesímus hafi verið með Páli postula um tíma áður en Páll skrifaði Fílemon? [wE98 15.1. bls. 30 gr. 2]
14. Hvernig getum við forðast vonleysi eða bölsýni þegar ranglæti blasir við okkur eða við erum sjálf órétti beitt? [w98 1.3. bls. 6 gr. 2-3]
15. Hvernig sýndu Jósúa og Gídeon djúpa virðingu fyrir lögum Guðs? (5. Mós. 20:8, 15-18) [si bls. 41 gr. 32]
16. Hvaða hliðstæðra atburða og lýst er í Jósúabók 10:10-14 má vænta í Harmagedónstríðinu? [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.1. bls. 21 gr. 12-14]
17. Nefndu þrennt sem einlægt hrós fyrir góða hegðun kemur til leiðar. (Samanber Orðskviðina 15:23.) [wE98 1.2. bls. 31 gr. 5-6]
18. Hvernig flýr maður í griðaborg nútímans samkvæmt Jósúabók 20:4? [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.1. bls. 22 gr. 16]
19. Hvernig gefur Dómarabókin 5:31 til kynna að sigur Baraks dómara yfir úrvalssveitum Sísera við Kísonlæk hafi mikla þýðingu fyrir okkar tíma? [Vikulegur biblíulestur; sjá wE86 15.2. bls. 21 gr. 4]
20. Hvernig sýnum við að við virðum meginregluna að baki orðunum ‚stóðu þeir hver á sínum stað‘ í Dómarabókin 7:21? [Vikulegur biblíulestur; sjá w82 1.12. bls. 31 gr. 17]
Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:
21. Til að finna betur fyrir blessun Jehóva þurfum við að halda áfram að _____________________ og biðja hann um að hjálpa okkur að ____________________ kennsluna í innblásnu orði hans. (1. Tím. 4:8, 9) [wE98 1.1. bls. 24 gr. 6]
22. Jehóva hefur megna andúð á smjaðri vegna þess að það er sprottið af ____________________, það er hvorki _________________________ né _________________________ og er umfram allt _________________________. [wE98 1.2. bls. 30 gr. 2-3]
23. Nafnið Jósúa merkir _________________________. Jósúa er spádómleg fyrirmynd um _________________________. [si bls. 42 gr. 5]
24. Í samræmi við dæmisögu Jesú í Matteusi 7:24-27 geta hyggnir foreldrar hjálpað börnum sínum til að standa af sér mótlætisstorma með því að veita þeim _________________________ sem hjálpar þeim að vera _________________________. [wE98 15.2. bls. 9 gr. 1]
25. Dómarabókin spannar tímabilið frá dauða _________________________ fram til daga _________________________, um _________________________ ár. [si bls. 47 gr. 5]
Veljið rétta svarið í eftirfarandi fullyrðingum:
26. Ráðstöfun eigna ef dauða skyldi bera að höndum er (safnaðarmál; einkamál; krafa til sannkristinna manna). (Gal. 6:5) [wE98 15.1. bls. 19 gr. 6]
27. Páll hvatti Fílemon til að taka vinsamlega við (Ónam; Ónesífórusi; Onesímusi) en hann beitti ekki postulavaldi sínu til að skipa honum að gera það eða sleppa þrælnum. (Fílem. 21) [wE98 15.1. bls. 31 gr. 1]
28. Hin alvarlega yfirsjón holdsveiku mannanna, er Jesús læknaði, stafaði af (trúarskorti; óhlýðni; vanþakklæti). (Lúkas 17:11-19) [wE98 15.2. bls. 5 gr. 1]
29. Þar eð Jehóva hafði velþóknun á breytni Rahab gefa orð hennar við Jeríkóbúanna, sem leituðu ísraelsku njósnaranna, til kynna (að það sé persónuleg ákvörðun hvort maður ljúgi; að manni sé ekki skylt að ljóstra upp sönnum upplýsingum við þá sem eiga ekki tilkall til þeirra; hún hafði enn ekki látið af öllu veraldlegu háttalagi). (Jós. 2:3-5; samanber Rómv. 14:4.) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE93 15.12. bls. 25 gr. 1.]
30. Kennsla Jesú í Jóhannesi 13:5 var áþreifanlegt dæmi um þá (góðvild; hluttekningu; auðmýkt) sem fær menn til að vinna hin lítilmótlegustu störf í þágu annarra. [wE98 15.3. bls. 7 gr. 6]
Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:
5. Mós. 7:3, 4; 17:7; 25:11, 12; 28:3; Jer. 15:20.
31. Virðing skaparans fyrir getnaðarfærunum ætti að vega þungt í ákvörðunum kristins manns um viðeigandi leiðir til að takmarka barneignir. [Vikulegur biblíulestur; sjá w99 1.7. bls. 31 gr. 2-5]
32. Við getum reitt okkur á stuðning Jehóva er við sinnum starfsumboði okkar að prédika fagnaðarerindið um Guðsríki. [wE98 1.3. bls. 28 gr. 1]
33. Að gefa viðvörun Biblíunnar gaum getur hlíft kristnum manni við þeim sársauka sem oft fylgir því að ganga undir ok með vantrúuðum. [Vikulegur biblíulestur; sjá w90 1.6. bls. 15 gr. 11]
34. Blessun Guðs er ekki háð því hvar við búum eða þjónum eða hvaða verkefni við höfum í þjónustu hans. [Vikulegur biblíulestur; sjá w96 1.8. bls. 25 gr. 15]
35. Páll byggði fyrirmæli sín um brottrekstur í 5. kafla 1. Korintubréfs á lögmáli Jehóva. [Vikulegur biblíulestur; sjá si bls. 213 gr. 24]