Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 10. apríl
Söngur 122
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Gleymið ekki sérræðunni 16. apríl, „Hvers vegna þarfnast mannkynið lausnargjalds?“ Hvetjið alla til að fylgja biblíulestraráætluninni fyrir minningarhátíðatímabilið 14.-19. apríl í Rannsökum daglega ritningarnar — 2000. Farið yfir rammagreinina „Til minnis vegna minningarhátíðar“ á bls. 4 í viðaukanum.
15 mín: „Bregst þú rétt við kærleika Krists?“ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum. Takið með efni úr Varðturninum 1. júní 1998, bls. 25-26, gr. 12-13. Hvetjið alla til að leggja sig sérstaklega fram um að bjóða fólki á minningarhátíðina.
20 mín: „Vertu kostgæfinn til góðra verka í apríl!“ Spurningar og svör. Hvetjandi umræða um það sem við viljum áorka í apríl. Notið síðustu þrjár til fjórar mínúturnar til að fara yfir rammagreinina „Kostgæfni sem hvetur fjöldamarga.“
Söngur 199 og lokabæn.
Vikan sem hefst 17. apríl
Söngur 25
13 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Aðeins tvær helgar eru eftir af apríl. Hvetjið því alla til að fara út í boðunarstarfið áður en mánuðurinn er á enda. Sviðsetjið stutta blaðakynningu. Rifjið upp efni úr Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókinni) á bls. 179-80 um hvernig svara megi fólki sem vill fá okkur til að taka þátt í páskahaldi.
16 mín: „Sýnir þú fórnfýsi?“ Spurningar og svör. Við þurfum að raða málum í rétta forgangsröð. Það kostar framtakssemi og sjálfstjórn að halda áfram að gera það sem manni er fyrir bestu andlega. Fjallið um hvað læra megi af fordæmi Jesú. — Sjá Insight on the Scriptures, 2. bindi, bls. 68, gr. 3-5.
16 mín: Skildu eftir blöð þar sem þau koma að mestu gagni. Ræða með þátttöku áheyrenda. Farið yfir tillögurnar í Vaknið! á ensku 8. janúar 1995, bls. 22-4. Útskýrið hvers vegna gagnlegt sé að leita uppi fólk sem líklegt er að hafi áhuga á sérhæfðum greinum í blöðunum. Skoðið dæmi úr eldri blöðum og ræðið um það til hvers konar fólks, fyrirtækja eða stofnana á starfssvæði safnaðarins þetta efni hefur átt sérstakt erindi. Bjóðið áheyrendum að segja frá því hvernig þetta hefur reynst þeim vel.
Söngur 71 og lokabæn.
Vikan sem hefst 24. apríl
Söngur 137
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Greinið frá minningarhátíðaraðsókninni í söfnuðinum. Bjóðið áheyrendum að segja frá ummælum fólks sem sótti hátíðina í fyrsta sinn.
17 mín: Hjálpaðu nýjum að sækja samkomur. Ræða byggð á Þekkingarbókinni, bls. 162-3, gr. 5-8. Það er nauðsynlegt að biblíunemendur byrji að koma á samkomur eftir að hafa numið um hríð. En það er oft hægara sagt en gert. Hvernig geturðu hvatt þá til að koma? Þeir sem stýra biblíunámskeiði ættu að taka sér tíma til að fara yfir þetta efni í Þekkingarbókinni með nemendum sínum og gera síðan ákveðnar ráðstafanir til að hjálpa þeim að sameinast okkur í sannri tilbeiðslu.
18 mín: „Ertu reglulegur boðberi Guðsríkis?“ Ræða með þátttöku áheyrenda í umsjón ritarans. Útskýrið hvers vegna við gefum skýrslu um boðunarstarf okkar. (Sjá Organized To Accomplish Our Ministry, bls. 106-8.) Nefnið sum af þeim vandkvæðum sem hljótast af ef við skilum ekki starfsskýrslu í tíma. Bjóðið áheyrendum að segja frá hvaða ráðstafanir þeir geri til að skila starfsskýrslu tímanlega. Bendið á hvernig bóknámsstjórarnir geta lagt hönd á plóginn. Aðeins ein helgi er eftir af apríl og er það jafnframt svæðismótshelgi. Það fer því hver að verða síðastur til að starfa í mánuðinum. Minnið alla á að skila skýrslu um starf sitt.
Söngur 200 og lokabæn.
Vikan sem hefst 1. maí
Söngur 213
12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslu fyrir aprílmánuð. Bóknámsstjórar ættu að ganga úr skugga um að allir í hópnum þeirra hafi gert það svo að senda megi safnaðarskýrsluna til Félagsins ekki síðar en 6. maí. Farið yfir spurningakassann.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
18 mín: „Vertu staðráðinn í að fara aftur!“ Umræður við áheyrendur. Ræðið hvað veldur því að við förum ekki alltaf í endurheimsóknir. Útskýrið hvers vegna það skiptir máli að skrifa hjá sér nákvæma minnispunkta og vera fús til að fara aftur. Leggið til að boðberar taki frá svolítinn tíma í hverri viku fyrir endurheimsóknarstarfið. Rifjið upp efnið í Organized To Accomplish Our Ministry (Þjónustubókinni), bls. 88-9. Takið með frásöguna í Árbókinni 1995, bls. 45. — 1. Kor. 3:6, 7.
Söngur 68 og lokabæn.