Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 14. febrúar
Söngur 113
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín: „Prédika þú orðið, gef þig að því.“ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum. Takið með efni úr Organized to Accomplish Our Ministry (Þjónustubókinni), bls. 170. Komið með tillögur um leiðir til að auka boðunarstarfið það sem eftir lifir vetrar.
20 mín: „Þjálfaðu þig í að rökstyðja sannleikann.“ Ræða og sviðsett kynning. Útskýrið hvers vegna það skipti miklu máli að geta rökstutt sannleikann vel í boðunarstarfinu og hvernig fara megi að því. Látið tvo hæfa boðbera sýna hvernig þeir undirbúa sig fyrir boðunarstarfið samkvæmt leiðbeiningum í 3. grein og sviðsetja síðan kynninguna.
Söngur 182 og lokabæn.
Vikan sem hefst 21. febrúar
Söngur 17
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín: ‚Konur sem leggja hart á sig fyrir Drottin.‘ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið síðan yfir greinina með spurningum og svörum. Takið með efni úr Varðturninum 1. nóvember 1996, bls. 22-23, gr. 18-19. Hrósið systrum hlýlega fyrir fúsan stuðning þeirra, gagnlega þjónustu í þágu annarra og kostgæfni í prédikunarstarfinu.
20 mín: „Hvað getur hjálpað okkur að standa stöðug í trúnni?“ Ræða öldungs. Við lifum á erfiðum tímum og þurfum öll aðstoð á einhvern hátt. Ræðið um hvað öldungar og safnaðarþjónar geta gert til að styrkja þá sem eiga við erfið vandamál og kjarkleysi að glíma. (Sjá millifyrirsögnina „Shepherding That Is Upbuilding“ (Uppbyggjandi hirðastarf) í Varðturninum á ensku 15. september 1993, bls. 21-3.) Bendið á hvernig við getum hvatt hvert annað á ýmsa vegu og styrkt andlega. — Rómv. 1:11, 12.
Söngur 82 og lokabæn.
Vikan sem hefst 28. febrúar
Söngur 46
12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir febrúar. Rifjið stuttlega upp ‚fjögur auðveld skref‘ til að nota smárit til að koma af stað samræðum, á bls. 4 í Ríkisþjónustu okkar í síðasta mánuði. Sýnið hvernig nota megi smáritið Líf í friðsömum nýjum heimi til að kynna Þekkingarbókina. Notið spurningarnar í fyrstu grein smáritsins og lesið síðan fyrstu greinina á bls. 3 og Sálm 37:29. Sýni húsráðandi áhuga má fletta upp á bls. 5 í Þekkingarbókinni, lesa rammaspurningarnar og bjóða biblíunámskeið. Allir ættu að leggja sig sérstaklega fram um að koma af stað nýjum heimabiblíunámskeiðum í mánuðinum.
13 mín: „Húsmæður í brautryðjandastarfi.“ Hafið stutt inngangsorð byggð á 1. grein og fáið síðan eina systur til að lesa bréfið í 2.-7. grein. Varpið fram eftirfarandi spurningum: Hverjar eru aðstæður systurinnar? Hvaða stundaskrá fylgir hún til að standa við starfstímaskylduna? Hvernig kemur brautryðjandastarfið fjölskyldu hennar til góða? Hvers vegna veitir brautryðjandastarfið henni svo mikla gleði? Ef einhver húsmóðir í söfnuðinum er brautryðjandi mætti eiga viðtal við hana og spyrja hvernig brautryðjandastarfið er henni og fjölskyldunni til góðs. Hvetjið að lokum fjölskyldufólk í söfnuðinum til að íhuga hvort húsmóðirin á heimilinu geti gerst brautryðjandi og hvernig það geti stutt hana með ráðum og dáð.
20 mín: „Prédikaðu fagnaðarerindið með sterkri sannfæringu.“ Flytjið hvetjandi tveggja til þriggja mínútna inngang byggðan á efni 1. og 2. greinar ásamt ritningarstöðum. Farið síðan yfir 3.-12. grein með spurningum og svörum.
Söngur 61 og lokabæn.
Vikan sem hefst 6. mars
Söngur 116
5 mín: Staðbundnar tilkynningar.
10 mín: Spurningakassinn. Ræða öldungs.
10 mín: „Gættu að hvernig þú heyrir.“ Fjölskyldufaðir ræðir við konu sína og börn um hvað megi gera til að hafa meira gagn af safnaðarsamkomum og mótum. Honum finnst að allir í fjölskyldunni gætu einbeitt sér betur. Þau fara yfir tillögurnar í greininni og íhuga hvernig þau geti fylgt þeim öllum, meðal annars þeirri að ræða meira saman um það sem þau lærðu. Þau íhuga hvernig þau geti einsett sér að missa ekki af neinum samkomum eða dagskrárliðum á mótum nema alls ekki verði hjá því komist.
20 mín: „Prédikaðu fagnaðarerindið með sterkri sannfæringu.“ Rifjið stuttlega upp fyrstu 12 greinar viðaukans, sem farið var yfir í síðustu viku, og farið síðan yfir 13.-24. grein með spurningum og svörum. Notið bæði tilvísaðar og tilvitnaðar ritningargreinar vel.
Söngur 186 og lokabæn.