Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.99 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir júní

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir júní
  • Ríkisþjónusta okkar – 1999
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 7. júní
  • Vikan sem hefst 14. júní
  • Vikan sem hefst 21. júní
  • Vikan sem hefst 28. júní
Ríkisþjónusta okkar – 1999
km 6.99 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir júní

Vikan sem hefst 7. júní

Söngur 20

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Guðveldisfréttir.

15 mín: „Við þiggjum kennslu Jehóva.“ Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum. Bjóðið áheyrendum að segja frá því hvernig þeir hafi notið góðs af Guðveldisskólanum, Brautryðjandaskólanum, Ríkisþjónustuskólanum og svo framvegis. Leggið áherslu á hvernig þessir skólar hafa hjálpað þjónum Jehóva að ná betri árangri í þjónustunni.

20 mín: „Nýttu tímann vel.“ Umræður bóknámsstjóra við einn eða tvo reynda boðbera sem greina frá því hvernig þeir nýta tíma sinn til að þeir geti átt sem fyllstan þátt í boðunarstarfinu. Þeir útskýra hve mikilvægt sé að gera sér góða og nothæfa stundaskrá. Þeir segja frá ýmsu sem þurfi að forðast til að sóa ekki tímanum, svo sem að koma sér seint af stað, skipuleggja sig ekki nægilega vel fyrir fram, taka sér kaffihlé með öðrum boðberum í boðunarstarfinu eða eyða óþarflega miklum tíma í að spjalla saman. Takið tillit til staðbundinna aðstæðna og komið með gagnlegar tillögur um hvernig nýta megi tímann vel.

Söngur 23 og lokabæn.

Vikan sem hefst 14. júní

Söngur 30

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

15 mín: Tökum við þátt í aðgreiningarstarfi? Hvetjandi ræða starfshirðis byggð á Varðturninum á ensku 1. júlí 1997, bls. 30-31.

20 mín: „Geturðu rétt hjálparhönd?“ Umræður við áheyrendur í umsjón öldungs. Takið með tillögur úr Vaknið! á ensku 8. október 1995, bls. 8-9, um hvernig hjálpa megi einstæðum foreldrum. Bjóðið nokkrum boðberum að greina frá því hversu mikils virði það hefur verið þeim að fá kærleiksríka hjálp frá öðrum í söfnuðinum.

Söngur 25 og lokabæn.

Vikan sem hefst 21. júní

Söngur 33

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Sýnið hvernig nota megi bókina Spurningar unga fólksins á árangursríkan hátt í boðunarstarfinu yfir sumarmánuðina þegar líklegt er að hitta megi fleiri unglinga heima en endranær.

17 mín: Notaðu myndböndin og leikritasnældurnar vel. Væri hægt að nota myndböndin 10 og leikritasnældurnar 11, sem Félagið hefur gefið út, betur en gert er? Hefur þú og fjölskyldan þín horft á öll myndböndin eða hlustað á allar snældurnar? Ræðið um nokkur myndbandanna og hljóðsnældanna, hvernig þær geta gert biblíulestur okkar áhrifaríkari, styrkt okkur andlega og gefið góðan vitnisburð um sannleikann. Leikið stutta kafla af tveim eða þrem leikritasnældum. Biðjið áheyrendur að segja frá því hvaða myndbönd eða leikritasnældur þeim hefur fundist sérstaklega hvetjandi fyrir fjölskyldu sína eða til að beina nýjum inn til skipulagsins. Segið nokkrar frásögur um góðan árangur af notkun þeirra. (Sjá Árbókina 1999, bls. 51-2.) Hvetjið alla til að nota myndböndin og leikritasnældurnar vel.

18 mín: „Horfirðu aðeins á útlitið?“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Leggið áherslu á hvers vegna við eigum ekki að vera of fljót að mynda okkur skoðanir á fólki sem við hittum. Rifjið stuttlega upp lexíuna sem Jehóva kenndi Jónasi er hann dæmdi ranglega þá sem hann áleit óverðuga. (Sjá Varðturninn 1. október 1997, bls. 17, greinar 17-19.) Bjóðið áheyrendum að segja frá því hvers konar fólk þeir hafi hitt á starfssvæðinu, hvernig þeir hafi varðveitt jákvætt viðhorf gagnvart því og látið Jehóva um að dæma.

Söngur 34 og lokabæn.

Vikan sem hefst 28. júní

Söngur 38

12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir júní. Rifjið upp ritatilboðið fyrir júlí. Sýnið helstu bæklingana, bendið á nokkrar áhugaverðar greinar í þeim og sviðsetjið vel æfða kynningu.

13 mín: Hvers vegna leyfir Jehóva að þjónar sínir séu ofsóttir? Ræða öldungs byggð á bókinni Jehovah’s Witnesses — Proclaimers of God’s Kingdom (Boðendabókinni), bls. 676-7. (Þýðingu á efninu er að finna í kennsluræðuuppkasti nr. 87.) ‚Allar þjóðir hata okkur‘ líkt og Jesús sagði fyrir. (Matt. 24:9) Við mætum andstöðu í boðunarstarfinu, í samskiptum við veraldlega ættingja eða við félaga í skóla og á vinnustað. Ræðumaður útskýrir á uppbyggjandi hátt hvers vegna Jehóva leyfir slíkar ofsóknir eða andstöðu og hvernig þolgæði okkar hefur að lokum blessun í för með sér.

20 mín: Farið þangað sem fólk er að finna! Ræða byggð á Árbókinni 1997, bls. 42-8. Enda þótt við eigum að halda áfram að starfa reglulega hús úr húsi, ættum við að leita færis á að bera óformlega vitni — hvar sem er og hvenær sem er. Segið frásögur úr Árbókinni sem sýna hvernig sumir hafa náð góðum árangri í að bera óformlega vitni fyrir fólki í strætisvögnum, á götum úti eða á ströndinni, í kyrrstæðum bílum, á vörubílastöðvum, í síma og bréflega. Bjóðið áheyrendum, eftir því sem tími leyfir, að segja frá eigin reynslu. Hvetjið alla til að nota sérhvert tækifæri til að bera vitni fyrir fólki hvar sem það er að finna.

Söngur 27 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila