Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.99 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir apríl

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir apríl
  • Ríkisþjónusta okkar – 1999
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 5. apríl
  • Vikan sem hefst 12. apríl
  • Vikan sem hefst 19. apríl
  • Vikan sem hefst 26. apríl
Ríkisþjónusta okkar – 1999
km 4.99 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir apríl

Vikan sem hefst 5. apríl

Söngur 58

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið yfir greinina „Bjóðum Sköpunarbókina.“ Bjóðið öllum áhugasömum að sækja sérræðuna 18. apríl næstkomandi. Stef ræðunnar er „Sönn vinátta við Guð og náungann.“

15 mín: „Prédikaðu fagnaðarerindið fúslega.“ Hafið inngangsorðin stutt, innan við mínútu, og farið yfir greinina með spurningum og svörum. Ljúkið með hvatningarorðum úr bæklingnum Taktu framförum í ræðumennsku og kennslutækni, bls. 96, gr. 12-13.

20 mín: „Hvernig fjölskyldan vinnur saman að þátttöku í boðunarstarfinu.“ Samræður í fjölskyldu. Ræðið hvers vegna allir í fjölskyldunni ættu að hafa sem fastan lið á dagskrá sinni að taka þátt í boðunarstarfinu í hverri viku. Takið með efni úr Varðturninum 1. mars 1994, bls. 14-15, gr. 9-12. Hvetjið foreldra í áheyrendasal til að greina frá því hvernig þeim hefur tekist með góðum árangri að skipuleggja boðunarstarf fjölskyldunnar í hverri viku.

Söngur 31 og lokabæn.

Vikan sem hefst 12. apríl

Söngur 47

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

15 mín: Meginþættir nýja bæklingsins Bók fyrir alla menn. Rætt við áheyrendur um ástæður þess að Biblían verðskuldi athygli. Bæklingurinn er saminn til að hjálpa fólki sem er vel menntað en veit lítið um Biblíuna. Í stað þess að reyna að sannfæra fólk um að Biblían sé innblásin af Guði lætur bæklingurinn staðreyndirnar tala sínu máli. Við ættum að lesa bæklinginn og segja öðrum frá honum, meðal annars biblíunemendum okkar.

20 mín: „Aukum vitnisburðarstarfið er endirinn færist nær.“ Spurningar og svör. Eigið viðtal við einn eða tvo boðbera sem gátu eitt sinn ekki hugsað sér að taka þátt í prédikunarstarfinu en gera það nú að staðaldri af því að þeir skilja hve brýnt er að útbreiða guðsríkisboðskapinn. Takið með, eftir því sem tími leyfir, stuttar frásagnir úr Árbókinni 1997, bls. 42-8, sem sýna hvernig boðberar hafa aukið vitnisburðarstarf sitt með því að fara þangað sem fólk er að finna.

Söngur 52 og lokabæn.

Vikan sem hefst 19. apríl

Þjónustusamkoman fellur niður vegna svæðismóts í Kópavogi dagana 24. og 25. apríl.

Vikan sem hefst 26. apríl

Söngur 32

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir apríl. Lesið upp nöfn þeirra sem verða aðstoðarbrautryðjendur í maí og hvetjið fleiri til að sækja um. Komið með nokkrar hentugar tillögur að kynningarorðum fyrir nýjustu blöðin. — Sjá Ríkisþjónustu okkar fyrir október 1996, bls. 8.

17 mín: „Hvað ætti ég að gera?“ Farið stuttlega yfir greinina með áheyrendum. Sviðsetjið samtal tánings við foreldri sitt um áform sín að skólanámi loknu. Þau fara í sameiningu yfir bls. 4 í Ríkisþjónustu okkar fyrir júlí 1998. Foreldrið gefur ráðleggingar byggðar á Varðturninum 1. apríl 1996, bls. 31-2 og 1. febrúar 1997, bls. 16-18. Þar eð krafist er færri starfstíma af brautryðjendum en áður veltir táningurinn því fyrir sér hvort hann geti verið brautryðjandi meðan hann er að ljúka skólanámi.

18 mín: Viðtal við aðstoðarbrautryðjendur. Starfshirðirinn á viðtal við nokkra boðbera sem voru aðstoðarbrautryðjendur í mánuðinum og nokkra sem hafa verið það áður. Biðjið þá að greina frá því hvaða blessunar þeir hafa notið, hverju þeir hafa áorkað og hvers vegna þeir hlakka til að vera aðstoðarbrautryðjendur aftur í að minnsta kosti einn eða tvo mánuði á ári.

Söngur 82 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila