Þjónustusamkomur fyrir nóvember
Vikan sem hefst 2. nóvember
Söngur 17
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna fyrir júlí, bæði fyrir landið í heild og söfnuðinn.
15 mín: „Allir þurfa að ‚veita orðinu viðtöku‘!“ Spurningar og svör. Takið með aukatillögur úr viðauka Ríkisþjónustu okkar fyrir júní 1996, grein 21.
20 mín: „Mig langar til að stjórna biblíunámskeiði!“ Umræður starfshirðis við áheyrendur. Útskýrið hvernig þetta samstillta átak í endurheimsóknarstarfinu verður skipulagt í söfnuðinum. Reyndir boðberar starfa með nýjum eins og kostur er. Fáir ættu að vera í hverjum bíl svo að hægt sé að fara í fleiri endurheimsóknir. Rifjið upp tillögurnar í viðauka Ríkisþjónustu okkar fyrir apríl 1998, greinar 12-15. Látið hæfan boðbera sýna hvernig bjóða megi námskeið í endurheimsókn. Hvetjið alla til að kappkosta að koma af stað nýju biblíunámskeiði.
Söngur 15 og lokabæn.
Vikan sem hefst 9. nóvember
Söngur 83
13 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Spurningakassinn.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
17 mín: „Byggjum hvert annað upp með því að svara á samkomum.“ Spurningar og svör. Útskýrið hvernig það stuðli að andlegum framförum okkar þegar við svörum á samkomum. (Sjá bæklinginn Taktu framförum í ræðumennsku og kennslutækni, kafla 19, grein 4.) Bjóðið nokkrum að segja frá því hvernig þeir sigruðust á tregðu til að svara og hvaða blessun þátttaka í samkomunum hefur verið fyrir þá.
Söngur 16 og lokabæn.
Vikan sem hefst 16. nóvember
Söngur 28
8 mín: Staðbundnar tilkynningar.
20 mín: „Umsjónarmenn sem fara með forystuna — umsjónarmaður Guðveldisskólans.“ Ræða skólahirðis. Farið yfir greinar 6-12 á bls. 10-11 í Shool Guidebook (Skólahandbókinni).
17 mín: „Náðu árangri í boðunarstarfi þínu.“ Umræður með spurningum og svörum um greinar 1-7 í viðaukanum. Beinið athyglinni að því sem sérstaklega á við á svæði safnaðarins.
Söngur 57 og lokabæn.
Vikan sem hefst 23. nóvember
Söngur 41
8 mín: Staðbundnar tilkynningar. Segið frásögurnar á baksíðu Vaknið! fyrir október-desember 1998 um áhrifin sem bókin Mesta mikilmenni hefur haft á fólk. Allir boðberar ættu að vera vakandi fyrir því að bjóða bókina þegar tækifæri gefst.
17 mín: „Náðu árangri í boðunarstarfi þínu.“ Umræður með spurningum og svörum um greinar 8-21 í viðaukanum. Beinið athyglinni að því sem sérstaklega á við á svæði safnaðarins.
20 mín: Tillögur um áhrifaríkan biblíulestur. Ræða byggð á Varðturninum 1. október 1995, bls. 16-17. Bendið á þann andlega ávinning sem hafa má af daglegum biblíulestri. Rifjið upp tillögurnar og ræðið hvernig megi fylgja þeim. Látið tvo eða þrjá boðbera segja frá því hvernig það gagnist þeim að lesa orð Guðs reglulega.
Söngur 21 og lokabæn.
Vikan sem hefst 30. nóvember
Söngur 61
15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir boðunarstarfið. Hvetjið þá sem ekki komu af stað biblíunámskeiði í nóvember til að reyna áfram í desember með hjálp Þekkingarbókarinnar. Látið hæfan boðbera sviðsetja endurheimsókn byggða á rammagreininni á bls. 19 í Þekkingarbókinni; boðberinn útskýrir hvernig nota megi bókina til að öðlast skilning á kenningum Biblíunnar og kemur námskeiði af stað.
15 mín: Notaðu vel dagatal votta Jehóva fyrir árið 1999. Ræða. Bendið á það helsta sem prýðir dagatalið: (1) hrífandi myndir af merkum biblíuatburðum og kenningum, (2) vikuleg biblíulestraráætlun Guðveldisskólans, (3) árleg biblíulestraráætlun fyrir minningarhátíðarvikuna, (4) tilkynningar um skriflega upprifjun, og (5) áminningar um að taka reglulegan þátt í blaðastarfinu. Ræðið hvernig nota megi dagatalið til að hripa niður áætlun fyrir boðunarstarfið, punkta niður starfstíma og samstarf við aðra, skrá samkomuverkefni sín, og skrifa hjá sér væntanlegar farandhirðisheimsóknir og mót. Ef dagatalið er haft á áberandi stað á heimilinu eða vinnustaðnum geta tækifæri skapast til að koma af stað umræðum um Biblíuna. Segið frásöguna á bls. 8 í Árbókinni 1988.
15 mín: Njótum góðs af nýja bæklingnum, Hvað verður um okkur þegar við deyjum? Farið yfir aðalefni bæklingsins. Hann rekur uppruna kenningarinnar um ódauðleika sálarinnar og rannsakar hvernig hún varð höfuðkenning nærri allra trúarbragða heims. Bæklingurinn útskýrir á aðlaðandi hátt hvað Biblían segir um sálina, hvers vegna við deyjum, ástand hinna dánu, hvaða von sé um líf eftir dauðann og hvers vegna við þurfum að vita sannleikann um þessi mál. Allir ættu að lesa bæklinginn. Bendið á sumar af myndunum 40 og tilvitnanirnar í byrjun hvers kafla sem nota mætti til að vekja áhuga fólks. Sýnið hvernig kynna megi síðasta kafla bæklingsins þegar heimabiblíunámskeið er boðið. Bjóðið boðberum að skýra frá hvernig þeir hyggjast nota nýja bæklinginn í boðunarstarfinu.
Söngur 85 og lokabæn.