Þjónustusamkomur fyrir október
Vikan sem hefst 5. október
Söngur 5
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
15 mín: „Við nutum góðs af landsmótinu ‚Lífsvegur Guðs.‘“ Spurningar og svör. Sýnið nýju bókina og bæklinginn, og bendið á hvernig við getum fært okkur þau í nyt.
20 mín: „‚Sáum sæði Guðsríkis‘ á blaðaleiðum.“ Umræður við áheyrendur. Látið nokkra útskýra hvernig þeir hafa komið af stað blaðaleið og haldið henni við. Sviðsetjið síðan blaðakynningu þar sem lögð eru drög að því að koma aftur með næstu tölublöð. Stingið upp á hvernig minnast megi háttvíslega á framlagafyrirkomulagið.
Söngur 55 og lokabæn.
Vikan sem hefst 12. október
Söngur 18
5 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
10 mín: „Umsjónarmenn sem fara með forystuna — ritarinn.“ Ræða safnaðarritara um skyldustörf sín. Hann tekur fram að allir geti lagt sitt af mörkum með því að skila tímanlega inn skýrslum fyrir boðunarstarfið.
10 mín: Þeir hafa kostgæfinn brautryðjandaanda. Hvetjandi ræða byggð á Árbókinni 1998, bls. 104-7. Útskýrið hvers vegna það eru svona margir brautryðjendur í Japan, hvað gerir húsmæðrum þar kleift að láta andleg mál sitja í fyrirrúmi, hvað býr að baki hverri brautryðjandaumsókn og hverjir mynda stærstan hluta brautryðjendanna. Lýsið þeim góðu áhrifum sem það hefur þegar foreldrar eru brautryðjendur. Leggið áherslu á hvaða sannfæringu þurfi til að gera nauðsynlegar breytingar á lífi sínu og gerast brautryðjandi. Hvetjið alla til að hugleiða aftur alvarlega í bænarhug hvort þeir geti gerst brautryðjendur.
20 mín: „Lest þú blöðin?“ Spurningar og svör. Farið yfir gagnlegar tillögur í Skólahandbókinni, 4. kafla, 5. og 6. grein, um hvernig taka megi tíma frá til lesturs.
Söngur 46 og lokabæn.
Vikan sem hefst 19. október
Söngur 7
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Bendið á umræðuefni úr nýjustu blöðum. Segið frásögur úr Árbókinni 1997, bls. 45 og Vaknið! á ensku 22. október 1996, bls. 32. Hvetjið alla til að taka þátt í blaðastarfinu um næstu helgi.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: Að búa sig undir Varðturnsnámið. Umræður við áheyrendur í umsjón Varðturnsnámsstjórans, byggðar á Varðturninum 1. september 1986, bls. 31-32, greinum 16-18 og Skólahandbókinni, 7. kafla, 11. grein og 18. kafla, 4. til 6. grein. Biðjið áheyrendur að svara eftirfarandi: (1) Hvers vegna skiptir miklu máli að við fáum sem mest út úr hverju tölublaði Varðturnsins? (2) Hvað eigum við að gera þegar við fáum nýtt tölublað í hendur? (3) Hvaða aðferð hentar vel til að búa sig undir Varðturnsnámið? (4) Hvaða gaum þarf að gefa að ritningargreinum sem vísað er til? (5) Hvernig getum við rifjað upp það sem við höfum lært? (6) Hvaða lykilatriði ættum við að hugleiða að yfirferð lokinni? (7) Hvernig getum við undirbúið svar? (8) Hvernig má gefa fjölbreytt svör við sömu spurningu? Látið nokkra segja frá því hvað þeir hafi sjálfir gert til að hafa sem mest gagn af Varðturnsnáminu. — Sjá einnig bókina Skipulagðir til að fullna þjónustuna, bls. 65-7.
Söngur 88 og lokabæn.
Vikan sem hefst 26. október
Söngur 43
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Greinið frá því hvaða eldri rit eru fyrirliggjandi í söfnuðinum og bjóða mætti í boðunarstarfinu þegar færi gefst. Nú styttist í frídagana í desember og því gott fyrir skírða unglinga og aðra að leggja drög að því að gerast aðstoðarbrautryðjendur þá.
20 mín: Guðrækileg hlýðni á trúarlega skiptu heimili. Ræða byggð á Varðturninum á ensku 1. júní 1995, bls. 26-9. Látið fylgja vingjarnleg áminningar- og hvatningarorð til þeirra sem eiga vantrúaðan maka til að hjálpa þeim að varðveita jákvæð viðhorf og eiga náin tengsl við söfnuðinn.
15 mín: Að koma tímanlega á samkomur. Umræður tveggja eða þriggja bóknámsstjóra eða safnaðarþjóna um það vandamál að koma of seint á samkomur. Þeir viðurkenna að óvenjulegar aðstæður, meðal annars neyðartilvik, vont veður, umferðartafir og þess háttar, geta valdið seinkun hjá hverjum sem er. En sumir eru að staðaldri seinir. Hópurinn ræðir á uppbyggjandi nótum um hvað þurfi til að vera stundvís: (1) að meta af öllu hjarta þau sérréttindi að sækja samkomur, fá andlegu fæðuna og njóta félagsskaparins þar, (2) að skipuleggja einkamál sín vel og tímanlega, (3) að allir í fjölskyldunni leggi fúslega sitt af mörkum, (4) að leggja snemma af stað og gera ráð fyrir óvæntum uppákomum, og (5) að vera virkilega umhugað um að trufla ekki aðra í salnum. Allir eru sammála um að ráða megi bót á þessum vanda ef menn einsetja sér að taka sig á.
Söngur 39 og lokabæn.