Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.98 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir ágúst

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir ágúst
  • Ríkisþjónusta okkar – 1998
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 3. ágúst
  • Vikan sem hefst 10. ágúst
  • Vikan sem hefst 17. ágúst
  • Vikan sem hefst 24. ágúst
  • Vikan sem hefst 31. ágúst
Ríkisþjónusta okkar – 1998
km 8.98 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir ágúst

Vikan sem hefst 3. ágúst

Þjónustusamkoman fellur niður vegna landsmótsins 1998, „Lífsvegur Guðs,“ sem haldið er dagana 9. til 11. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Þrem hæfum bræðrum úr hverjum söfnuði skal falið fyrirfram að taka saman aðalatriði hvers mótsdags fyrir upprifjunina á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 17. ágúst.

Vikan sem hefst 10. ágúst

Söngur 51

12 mín: Staðbundnar tilkynningar, valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar og reikningshaldsskýrslan. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna fyrir maí, bæði fyrir landið í heild og söfnuðinn. Nefnið að allir boðberar ættu að hafa það sem markmið að eiga hlutdeild í boðunarstarfinu í ágúst.

15 mín: „Verður ágúst framúrskarandi mánuður?“ Spurningar og svör. Hvetjið alla til að taka þátt í boðunarstarfinu í ágúst og hvern mánuð á nýja þjónustuárinu.

18 mín: „Notaðu bæklinga til að höfða til huga og hjarta fólks.“ Ræða með þátttöku áheyrenda. Minnist stuttlega á hvaða bæklingar hafa verið gefnir út síðustu áratugi til að upplýsa fólk um mikilvæg biblíuleg mál. (Sjá Efnisskrá Varðturnsfélagsins 1986-1995, bls. 652-3.) Beinið athyglinni að tilboðsbæklingunum og ræðið um til hverra þeir kunni að höfða. Sviðsetjið eina eða tvær kynningar þar sem minnst er á framlagafyrirkomulagið.

Söngur 16 og lokabæn.

Vikan sem hefst 17. ágúst

Söngur 71

5 mín: Staðbundnar tilkynningar. Bjóðið áheyrendum að segja stuttlega frá því hvernig hægt sé að fá uppgefið nafn og heimilisfang fólks sem vitnað er fyrir á götum úti, í almenningsgörðum eða annars staðar svo að hægt sé að fylgja áhuganum eftir.

30 mín: Upprifjun landsmótsins „Lífsvegur Guðs.“ Vel undirbúin upprifjun þriggja, hæfra bræðra á dagskrá landsmótsins með takmarkaðri þátttöku áheyrenda. Gætið þess að vera stuttorðir og gagnorðir og dragið fram aðalatriði hvers mótsdags. Bendið á hvernig safnaðarmenn geta notfært sér mótsefnið í daglegu lífi sínu og boðunarstarfi.

10 mín: „Umsjónarmenn sem fara með forystuna — umsjónarmaður í forsæti.“ Ræða umsjónarmanns í forsæti. Þegar hann hefur rætt um skyldustörf sín þakkar hann söfnuðinum fyrir að vera samvinnufús við öldungana þegar þeir gæta hjarðarinnar.

Söngur 64 og lokabæn.

Vikan sem hefst 24. ágúst

Söngur 95

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Rifjið upp rammagreinina „Náum við nýju hámarki?“ í Ríkisþjónustu okkar fyrir júlí 1998. Nú er aðeins ein helgi eftir af ágúst. Hvetjið því alla til að taka þátt í boðunarstarfinu áður en mánuðurinn er á enda. Farið yfir rammagreinina „Ný dagskrá sérstaka mótsdagsins.“

35 mín: „Verum framsækin að gera menn að lærisveinum.“ Spurningar og svör. Lesið greinar 5, 10 og 11. Minnist á hvernig biblíunámsstarfinu í söfnuðinum miðar áfram. Hvetjið alla sem stjórna námskeiðum til að lesa aftur viðauka Ríkisþjónustu okkar fyrir júní 1996 með það fyrir augum að bæta kennsluhæfni sína. Farið yfir greinar 5 og 25 í þeim viðauka.

Söngur 14 og lokabæn.

Vikan sem hefst 31. ágúst

Söngur 66

3 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir ágúst.

12 mín: „Unglingar — notfærið ykkur skólagönguna.“ Spurningar og svör. Takið með viðeigandi efni úr Vaknið! á ensku 8. apríl 1992, bls. 17-19 og Varðturninum á ensku 15. júlí 1991, bls. 23-6.

15 mín: Hvernig halda má ótrauður áfram í brautryðjandastarfi. Ræða byggð á viðauka Ríkisþjónustu okkar fyrir janúar 1996. Eigið viðtal við brautryðjanda sem sigrast hefur á alvarlegum vandamálum og heldur áfram í brautryðjandastarfi.

15 mín: Hjálpaðu barni þínu að takast á við vandamál í skólanum. Öldungur ræðir við tvö eða þrjú foreldri sem eiga börn í skóla. Greinið stuttlega frá sumum algengum vandamálum sem börnin standa frammi fyrir eins og fram kemur í Vaknið! á ensku 8. ágúst 1994, bls. 5-7. Hafið síðan til hliðsjónar efnið á bls. 8-10 þegar rætt er um það hvernig foreldrar geti verndað börnin sín og haldið góðu sambandi við kennarana.

Söngur 1 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila