Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 7.98 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir júlí

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir júlí
  • Ríkisþjónusta okkar – 1998
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 6. júlí
  • Vikan sem hefst 13. júlí
  • Vikan sem hefst 20. júlí
  • Vikan sem hefst 27. júlí
Ríkisþjónusta okkar – 1998
km 7.98 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir júlí

Vikan sem hefst 6. júlí

Söngur 29

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna fyrir apríl, bæði fyrir landið í heild og söfnuðinn. Guðveldisfréttir.

15 mín: „Það er gott að vera alltaf viðstaddur!“ Spurningar og svör. Takið með efni úr Vaknið! á ensku 8. júní 1988, bls. 19-21 til að hvetja ungt fólk til að sækja samkomurnar að staðaldri.

20 mín: „Fólk þarf að heyra fagnaðarerindið.“ Látið tvo eða þrjá hæfa boðbera fara yfir kynningartillögurnar fyrir bæklingana. Útskýrið hvernig bæklingarnir geta komið að góðum notum á starfssvæði safnaðarins. Leggið áherslu á að hafa það sem markmið að koma af stað biblíunámskeiðum í Kröfubæklingnum eða Þekkingarbókinni. Sviðsetjið kynningarorð fyrir fyrstu heimsókn og síðan endurheimsókn þar sem námskeið er boðið. Munið eftir að minnast á framlagafyrirkomulagið.

Söngur 12 og lokabæn.

Vikan sem hefst 13. júlí

Söngur 39

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Hvetjið alla til að íhuga alvarlega að sækja um aðstoðarbrautryðjandastarf í ágúst en þá eru fimm heilar helgar.

15 mín: Staðbundnar þarfir.

20 mín: Er andi heimsins að eitra þig? Ræða öldungs byggð á Varðturninum á ensku 1. október 1997, bls. 25-9.

Söngur 28 og lokabæn.

Vikan sem hefst 20. júlí

Söngur 51

8 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir rammagreinina „Náum við nýju hámarki?“

12 mín: „Heimsókn sem getur verið til blessunar.“ Umræður tveggja öldunga. Útskýrið markmið hirðastarfsins eins og fram kemur í Varðturninum á ensku 15. september 1993, bls. 20-3. Segið söfnuðinum hlýlega að hann geti hlakkað til heimsókna öldunganna.

25 mín: „Brautryðjandastarfið — er það fyrir þig?“ (Greinar 1-14) Starfshirðir flytur stutt inngangsorð þar sem hann hvetur alla til að hugsa alvarlega um reglulegt brautryðjandastarf. Síðan ræðir hann 1. spurninguna og tekur með efni undir millifyrirsögninni „Ákafur brautryðjandaandi“ í Árbókinni 1998, bls. 104-5. Tveir eða þrír safnaðarmenn, sem hafa reynslu af brautryðjandastarfi, koma upp á svið til að ræða 2. spurninguna. Þeir segja frá eigin brjósti hvernig hægt er að sjá sér farborða í brautryðjandastarfi og koma með gagnlegar og raunhæfar tillögur. Tveir foreldrar bætast þá í hópinn til að ræða 3. spurninguna. Þeir koma með góðar og gildar ástæður fyrir því hvers vegna ungt fólk ætti að íhuga alvarlega að gera þjónustuna í fullu starfi að ævistarfi. Hvetjið alla til að sækja þjónustusamkomuna næstu viku þegar síðustu spurningarnar verða teknar fyrir.

Söngur 58 og lokabæn.

Vikan sem hefst 27. júlí

Söngur 66

15 mín: Tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir júlí. Greinið frá ráðstöfunum til boðunarstarfs fyrstu helgina í ágúst og hvetjið alla til þátttöku. Farið yfir greinina „Ný svæðismótsdagskrá.“

30 mín: „Brautryðjandastarfið — er það fyrir þig?“ (Greinar 15-25) Ræða öldungs og umræður. Fáið brautryðjendur safnaðarins og þá sem hafa verið brautryðjendur áður til að íhuga fyrirfram spurningar 4 og 5 og svara þeim frá eigin brjósti. Þeir skulu leggja áherslu á að það þurfi að hafa góða stundaskrá og fylgja henni, og þeir koma með dæmi um raunhæfa vikustundaskrá fyrir boðunarstarfið sem reynst hefur vel. Öldungurinn lýkur með hvetjandi ræðu um 6. spurninguna. Nýtt þjónustuár gengur í garð 1. september og þá er kjörið að hefja brautryðjandastarf. Umsóknareyðublað má fá hjá bræðrunum í starfsnefnd safnaðarins.

Söngur 16 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila