Þjónustusamkomur fyrir maí
Vikan sem hefst 4. maí
Söngur 5
8 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Guðveldisfréttir.
15 mín: „Andi Jehóva er með okkur.“ Spurningar og svör. Takið með viðeigandi efni úr Árbókinni 1998 þegar farið er yfir grein 3.
22 mín: „Veldu greinar sem höfða til áhugasviðs fólks.“ Farið yfir aðalefni greinarinnar. Útskýrið að jafnvel megi bjóða vel með farin eldri tölublöð á þennan hátt. Bjóðið boðberum að segja frá því hvaða greinar þeir hafa kynnt með góðum árangri. Látið sviðsetja kynninguna í grein 7.
Söngur 94 og lokabæn.
Vikan sem hefst 11. maí
Söngur 84
8 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
12 mín: „Hvað ætlar þú að gera í sumar?“ Öldungur ræðir við tvo eða þrjá boðbera um hvernig þeir hyggjast verja sumarmánuðunum. Þeir gera ráðstafanir til að sækja landsmótið, ræða um að auka boðunarstarf sitt, um sumarfríið og um að heimsækja vini og ættingja. Allir eru sammála um að vanrækja ekki einkanám, samkomur eða boðunarstarf og útskýra hvernig þeir hyggjast viðhalda góðri guðræðislegri stundaskrá.
25 mín: „Landsmótið 1998, ‚Lífsvegur Guðs.‘“ (Greinar 1-16) Spurningar og svör. Lesið greinar 10 og 11. Leggið áherslu á þá biblíulegu skyldu kristins manns að vera sómasamlegur til fara, hegða sér vel og hafa góða umsjón með börnum sínum.
Söngur 23 og lokabæn.
Vikan sem hefst 18. maí
Söngur 89
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir rammagreinina „Notaðu hljóðsnældurnar vel.“
15 mín: „Hefur þú ‚flein í holdinu‘?“ Spurningar og svör. Farið nokkrum orðum um efnið í „Spurningum frá lesendum“ í Varðturninum á ensku 15. nóvember 1987, bls. 29.
20 mín: „Landsmótið 1998, ‚Lífsvegur Guðs.‘“ (Greinar 17-22) Spurningar og svör. Lesið 17. greinina og ritningarstaðinn sem vísað er til. Leggið áherslu á nauðsyn þess að fara eftir settum reglum og sýna öðrum tillitssemi, sérstaklega þegar við veljum okkur sæti. Ljúkið með stuttri ræðu um „Minnispunktar fyrir landsmótið.“
Söngur 59 og lokabæn.
Vikan sem hefst 25. maí
Söngur 47
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín: Staðbundnar þarfir.
20 mín: Hvers vegna ég met safnaðarsamkomur mikils. Öldungur ræðir við hóp boðbera sem sækir samkomurnar að staðaldri. Í hópnum mættu vera hjón, roskinn einstaklingur og unglingur. Þau segja frá því hvers vegna þau sækja alltaf samkomurnar — vegna góðs félagsskapar, kennslu frá Guði og hollra ráða sem hjálpa þeim að glíma við hversdagsleg vandamál og halda sér andlega sterkum. Athugasemdir þeirra leggja áherslu á þá miklu blessun sem fellur öllum í skaut með því að sækja samkomurnar að staðaldri.
Söngur 100 og lokabæn.