Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Einstök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Júní: Bókin Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Júlí og ágúst: Hvern sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? Þar sem við á má bjóða bæklinginn Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru?
◼ Þegar starfað er á óúthlutuðu svæði geta boðberar boðið Þekkingarbókina eða Kröfubæklinginn. Ef húsráðandinn á þegar bæði ritin má bjóða honum einhver önnur. Allir ættu að hafa úrval smárita meðferðis til að skilja eftir þar sem fólk er ekki heima eða gefa þeim sem ekki þiggja önnur rit. Gefa ætti húsráðendum eintak af Guðsríkisfréttum nr. 35 ef boðberar eða söfnuðir eiga enn einhver fyrirliggjandi. Leitast skal við að fylgja áhuganum eftir, sérstaklega á óúthlutuðum svæðum sem sérbrautryðjendur eru að starfa á eða nálægir söfnuðir komast með góðu móti til.
◼ Maí ætti að henta mörgum vel til aðstoðarbrautryðjandastarfs þar sem fimm heilar helgar eru í mánuðinum.
◼ Barmmerki fyrir landsmótið 1997 verða send til safnaðanna án þess að sérstaklega þurfi að panta þau. Ef söfnuðirnir þurfa fleiri merki má panta þau á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Plasthulstur fyrir barmmerkið þarf að panta sérstaklega fyrir þá safnaðarmenn sem óska þess.
◼ Eins og tilkynnt var í bréfi Félagsins til safnaðanna verða ekki lengur framleiddir innbundnir árgangar af Varðturninum og Vaknið! á íslensku. Við viljum þess vegna minna alla boðbera á að halda eftir eintökum af blöðunum fyrir einkabókasafn sitt. Hægt er að panta tímaritabox í bókadeild safnaðarins sem henta vel til að geyma blöð á snyrtilegan hátt. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að Félagið hafi eldri tölublöð fyrirliggjandi ef okkur skyldi vanta inn í árgangana síðar meir. Þess vegna er nauðsynlegt að allir haldi blöðunum vel til haga.
◼ Hinn 1. janúar síðastliðinn var bóknámshópur settur á laggirnar fyrir enskumælandi fólk á höfuðborgarsvæðinu. Við mælum með því að boðberar beini áhugasömum, sem skilja takmarkaða íslensku en tala ensku, til þessa bóknámshóps, óháð þjóðerni þeirra. Það eru einnig tilmæli okkar að allir boðberar á höfuðborgarsvæðinu skrifi niður nöfn og heimilisföng útlendinga, sem þeir hitta í boðunarstarfinu, og afhendi umsjónarmanni í forsæti í sínum söfnuði. Hann kemur upplýsingunum síðan áfram til bóknámsstjórans.
◼ Geisladiskurinn Watchtower Library — 1997 Edition hefur verið gefinn út á sjö tungumálum til viðbótar ensku og þýsku. Þetta gagnlega rannsóknarverkfæri verður nú einnig fáanlegt á dönsku, frönsku, hollensku, japönsku (þarf japanska útgáfu af Windows) og portúgölsku. Þessar útgáfur innihalda rit Félagsins frá 1980 til 1997 en enska, ítalska, spænska og þýska útgáfan innihalda rit frá 1970 (enska útgáfan er með Varðturninn frá 1950). Söfnuðir geta byrjað að panta Watchtower Library — 1997 Edition á þessum málum. Geisladiskarnir eru framleiddir í mörgum löndum þannig að pantanir verða afgreiddar um leið og diskarnir berast. Hafið í huga að þetta eru dýr verkfæri sem ætluð eru til notkunar en ekki til skrauts.
◼ Nýr geisladiskur fáanlegur:
Kingdom Melodies, geisladiskur nr. 8. (cdm-8)