Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 4.98 bls. 5–6
  • Skrifleg upprifjun í guðveldisskólanum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skrifleg upprifjun í guðveldisskólanum
  • Ríkisþjónusta okkar – 1998
Ríkisþjónusta okkar – 1998
km 4.98 bls. 5–6

Skrifleg upprifjun í guðveldisskólanum

Upprifjun með lokaðar bækur á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 5. janúar til 20. apríl 1998. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.

[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna til að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]

Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar séu réttar eða rangar:

1. Orðin „lifið heilir“ í Postulasögunni 15:29, NW, voru fyrirheit um það að menn myndu njóta betri heilsu ef þeir héldu sér frá blóði og saurlifnaði. [Vikulegur biblíulestur; sjá w91 1.11. bls. 9 gr. 7 neðanmáls]

2. Djúp umhyggja Páls fyrir andlegri velferð kristinna manna í Korintu knúði hann til að skrifa fyrra bréf sitt til þeirra meðan á annarri trúboðsferð hans stóð. [si bls. 210 gr. 3]

3. Enda þótt Jósafat konungur reiddi sig á Jehóva, var óviturlegt af honum að mægjast við Akab. [it-1 bls. 1271 gr. 11; bls. 1272 gr. 1]

4. Orðið „símonska,“ sem á rætur sínar að rekja til atviksins í Postulasögunni 8:9-24, á við galdraiðkun og kukl. [Vikulegur biblíulestur; sjá w90 1.6. bls. 25 gr. 8]

5. Í Rómverjabréfinu 8:6, 7, á orðið ‚hold‘ við fallið ástand okkar sem ófullkomnir menn með arfgenga tilhneigingu til syndar. [Vikulegur biblíulestur; sjá w91 1.7. bls. 13 gr. 4]

6. Í samræmi við Efesusbréfið 5:33 merkir djúp lotning eða virðing eiginkonu fyrir manni sínum ekki að henni sé óheimilt að láta skoðun sína í ljós, sérstaklega ef eitthvað angrar hana. [kl bls. 144 gr. 12-13]

7. Það var Jetró, prestur í Midíanslandi, sem lagði til að Móse dreifði valdi sínu. [it-2 bls. 73 gr. 2]

8. Tilgangur Guðs að leyfa heiðingjum að koma inn í söfnuðinn var mönnum ekki fyllilega ljós fyrr en postularnir sáu að það sem var að gerast var uppfylling á spádómi. Á sama hátt viðurkenna vottar Jehóva að skilningur þeirra á vissum málum hefur verið leiðréttur jafnhliða því að Guð hefur upplýst þá jafnt og þétt. [jv bls. 629 gr. 4-5]

9. Í Postulasögunni 20:20 eiga orðin „í heimahúsum“ einvörðungu við hirðisheimsóknir á heimili trúbræðra af því að samhengið sýnir að Páll var að tala við öldunga safnaðarins. [Vikulegur biblíulestur; sjá w91 1.6. bls. 24 gr. 5]

10. Ef við þjálfum hjarta okkar í því að meta andleg mál að verðleikum og biðjum um anda Guðs til að hjálpa okkur við það, þá forðumst við ‚hyggju holdsins.‘ (Rómv. 8:6, 7) [Vikulegur biblíulestur; sjá w91 1.7. bls. 13 gr. 5]

Svarið eftirfarandi spurningum:

11. Hvaða frásögn í Postulasögunni sýnir fram á að það eitt að hafa aðgang að orði Guðs og lesa það sjálfur sé ekki nóg til að afla sér þeirrar nákvæmu þekkingar sem kemur mönnum inn á veginn til lífsins? [Vikulegur biblíulestur; sjá w92 1.3. bls. 12 gr. 16]

12. Hvað gefa orð Páls til kynna: „Þau [yfirvöld] sem til eru, þau eru skipuð af Guði“? (Rómv. 13:1) [kl bls. 131 gr. 7]

13. Hvers vegna notar Nýheimsþýðingin orðalagið „voru vegna forsjónar Guðs kallaðir kristnir“ í Postulasögunni 11:26, þar sem aðrar biblíuþýðingar fela ekki í sér hugmyndina um ‚forsjón Guðs‘? [Vikulegur biblíulestur; sjá w90 1.6. bls. 27 gr. 19]

14. Hvaða sannfæring votta Jehóva knýr þá til kostgæfni við útgáfu og dreifingu Biblíunnar? [jv bls. 603 gr. 3]

15. Til hvers konar einkanáms hvetur Postulasagan 17:11? [si bls. 205 gr. 38]

16. Hvað staðfesti Páll um Gyðinga og menn af öðrum þjóðum í bréfi sínu til kristinna manna í Róm? [si bls. 206 gr. 2]

17. Að hvaða marki breytir kraftur orðs Guðs persónuleika kristins manns samkvæmt Rómverjabréfinu 12:2? [Vikulegur biblíulestur; sjá w90 1.10. bls. 27 gr. 3]

18. Hver er ‚leyndardómurinn‘ sem Páll talar um í Rómverjabréfinu 11:25? [Vikulegur biblíulestur; sjá w84 1.3. bls. 20 gr. 16]

19. Af hverju er kristni söfnuðurinn réttlættur í því að brottreka iðrunarlausa syndara? (1. Kor. 5:11, 13) [Vikulegur biblíulestur; sjá gE96 8.9. bls. 27 gr. 2-3]

20. Hvernig hjálpar það við að yfirbuga hið vonda að safna glóðum elds á höfuð andstæðings? (Rómv. 12:20, 21) [Vikulegur biblíulestur; sjá gE86 22.1. bls. 6 gr. 5]

Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:

21. Filippus útskýrði fyrir eþíópska hirðmanninum hvernig spádómur ______________ hefði uppfyllst og við þessa upplýsingu bað maðurinn auðmjúklega um að fá að _________________________. (Post. 8:28-35) [si bls. 204 gr. 33]

22. Þegar deilt var um _________________________ studdi ___________________ ákvörðun sína með því að segja: „Í samræmi við þetta eru orð spámannanna, svo sem ritað er.“ (Post. 15:15-18) [Vikulegur biblíulestur; sjá si bls. 204 gr. 33]

23. Fyrirheit Jesaja um að „rótarkvistur Ísaí“ myndi standa sem „hermerki fyrir þjóðirnar“ og að lýðirnir myndu „leita til hans“ rættist á _________________________. (Jes. 11:10) [it-2 bls. 51 gr. 13]

24. Samkvæmt útskýringu Páls á hinu táknræna olíutré í 11. kafla Rómverjabréfsins, eru 12 táknrænar ættkvíslir _________________________ komnar af _________________________ í ættlegg ______________________ líkt og hinar 12 ættkvíslir Ísraels voru komnar af Abraham í ættlegg sonarins Ísaks. [Vikulegur biblíulestur; sjá w84 1.3. bls. 20 gr. 15]

25. Það var í júlí 1917, eftir dauða Russells, að Varðturnsfélagið gaf út bókina _________________________ , skýringarrit við _________________________ og _________________________ líka _________________________. [jv bls. 647 gr. 2]

Veljið rétta svarið í hverri af eftirfarandi fullyrðingum:

26. Með ræðu sinni í Postulasögunni 17. kafla færði Páll háttvíslega rök fyrir (drottinvaldi; réttlæti; kærleika) hins lifandi Guðs. [Vikulegur biblíulestur; sjá si bls. 204 gr. 37]

27. (Páll; Pétur; Lúkas) hrósaði mönnunum í (Beroju; Makedóníu; Jerúsalem) hlýlega og kallaði þá ‚veglynda.‘ (Post. 17:11) [Vikulegur biblíulestur; sjá w95 1.10. bls. 14 gr. 3]

28. Lygin eða ósannindin, sem minnst er á í Rómverjabréfinu 1:25, á við (skurðgoðadýrkun; óhreinar kynlífsathafnir; það að ljúga). [Vikulegur biblíulestur; sjá it-2 bls. 245 gr. 2]

29. Árið 1878 mættu C. T. Russell og félagar hans mikilli prófraun á trú sína og hollustu við orð Guðs. Deiluefnið var (hver væri hinn „trúi og hyggni þjónn“; ósýnileg nærvera Jesú; fórnargildi holds og blóðs Jesú). [jv bls. 619 gr. 3]

30. Páll skrifaði fyrra bréf sitt til Korintumanna meðan hann var í (Róm; Efesus; Korintu) um árið (52; 55; 56). [si bls. 210 gr. 3]

Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:

Sálm. 73:28; Orðskv. 24:3; Jes. 65:13; Post. 10:34, 35; 2. Kor. 12:7-9

31. Þjónar Jehóva ættu að líta menn af öllum þjóðernum sömu augum og hann. [Vikulegur biblíulestur; sjá w88 1.9. bls. 26 gr. 6]

32. Frumreglur Biblíunnar eru eins og verkfæri sem gera mönnum kleift að byggja upp hamingjusama fjölskyldu. [kl bls. 140 gr. 3]

33. Þeir sem nálægja sig Jehóva njóta sannrar hamingju og hugarfriðar. [kl bls. 151 gr. 3]

34. Jehóva hefur ávallt deilt út andlegri fæðu til fólks síns sem hóps. [kl bls. 162 gr. 6]

35. Jehóva kann að leyfa erfiðu ástandi að vara um hríð en hann svarar vissulega bænum og veit hvenær best er að gera það. [kl bls. 156 gr. 15]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila