Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.97 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir desember

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir desember
  • Ríkisþjónusta okkar – 1997
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 1. desember
  • Vikan sem hefst 8. desember
  • Vikan sem hefst 15. desember
  • Vikan sem hefst 22. desember
  • Vikan sem hefst 29. desember
Ríkisþjónusta okkar – 1997
km 12.97 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir desember

Vikan sem hefst 1. desember

Söngur 27

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.

15 mín: „Tölum um Jehóva dag hvern.“ Spurningar og svör. Takið með athugasemdir út frá Handbók Guðveldisskólans, námskafla 16, tölugrein 14-16, þegar farið er yfir tölugrein 4.

20 mín: „Fræðum fólk um mesta mikilmenni sem lifað hefur.“ Öldungur ræðir við áheyrendur um hvernig bókin Mesta mikilmenni sem lifað hefur getur hjálpað fólki að meta Biblíuna að verðleikum og viðurkenna hana sem innblásið orð Guðs. Ræðið stuttlega við tvo boðbera um það hvernig þeir hafi búið sig undir að nota tillögurnar að kynningarorðum í tölugrein 3-8. Hafið sýnikennslu um eina þeirra ásamt tilheyrandi endurheimsókn.

Söngur 67 og lokabæn.

Vikan sem hefst 8. desember

Söngur 28

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

20 mín: Hvers vegna ætti að skýra frá illu athæfi? Ræða öldungs byggð á Varðturninum (á ensku) frá 15. ágúst 1997, blaðsíðu 26-30.

15 mín: „Þín er saknað.“ Öldungur ræðir efnið við áheyrendur með góðri þátttöku þeirra. Nefnið hve margir að meðaltali sækja safnaðarsamkomurnar. Bjóðið nokkrum að greina frá því hvers vegna þeir endurnærast af því að vera með bræðrum sínum á samkomunum.

Söngur 76 og lokabæn.

Vikan sem hefst 15. desember

Söngur 30

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Komið með tillögur um hvernig bregðast megi kurteislega við hátíðarkveðjum. Greinið frá sérstökum ráðstöfunum sem gerðar hafa verið til boðunarstarfsins yfir helgidagana.

10 mín: Staðbundnar þarfir.

25 mín: „Við ættum að vera kennarar, ekki aðeins prédikarar.“ Spurningar og svör. Endursegið efnið í tölugrein 11 í 15. kafla Handbókar Guðveldisskólans þegar farið er yfir tölugrein 11.

Söngur 77 og lokabæn.

Vikan sem hefst 22. desember

Söngur 42

8 mín: Staðbundnar tilkynningar.

17 mín: „Guðveldisskólinn árið 1998.“ Ræða skólahirðis. Farið yfir ýmislegt sem allir geta gert til að hafa enn meira gagn af skólanum á komandi ári. Hvetjið alla til að halda í við nýju áætlunina um „aukabiblíulesefni“ í hverri viku.

20 mín: Prédikið fagnaðarerindið alls staðar. Ræðið við áheyrendur um Þjónustubókina, blaðsíðu 92-7, og notið þessar spurningar: (1) Hvers vegna ber notkun rita okkar góðan árangur við að útbreiða fagnaðarerindið? Hvers vegna ættum við að bjóða rit við hvert tækifæri? Hvers vegna er mikilvægt að nefna framlagafyrirkomulagið? (2) Hvers vegna ættum við að vera vakandi fyrir því að bera óformlega vitni? Hvaða leiðir má meðal annars nota til að bera óformlega vitni? (Bjóðið nokkrum að greina frá reynslu sinni af óformlegum vitnisburði.) (3) Hvers vegna ætti söfnuðurinn að leggja sig fram við að fara vandlega yfir starfssvæðið sem honum hefur verið úthlutað? Þegar söfnuðurinn hefur nóg svæði, hverjir eru þá kostir þess að hafa sitt einkasvæði? (4) Hvaða gagn höfum við af ráðstöfunum sem gerðar eru til hópstarfs? Hvernig getum við skipulagt boðunarstarf okkar til þess að tryggja að við nýtum tíma okkar sem best?

Söngur 100 og lokabæn.

Vikan sem hefst 29. desember

Söngur 81

5 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum. Ef breyting verður á samkomutíma safnaðar ykkar á nýja árinu hvetjið þá alla vingjarnlega til að halda áfram að sækja samkomur reglulega með söfnuðinum á hinum nýja samkomutíma.

10 mín: Komið með nokkrar tillögur um hvernig bjóða megi í janúar bókina Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Hafið eina sýnikennslu. Við ættum líka að halda áfram að leitast við að hefja biblíunámskeið annaðhvort í Kröfubæklingnum eða Þekkingarbókinni.

20 mín: Höfum tilgang með prédikun okkar. Öldungur og einn eða tveir safnaðarþjónar rifja upp það sem fram kemur í Þjónustubókinni á blaðsíðu 8-12. Beinið sjónum einkum að hinum knýjandi ástæðum þess að vera jákvæður gagnvart boðunarstarfinu, leitast við að taka framförum sem boðberi fagnaðarerindisins og starfa alltaf náið með söfnuði Guðs.

10 mín: Hvernig hefur gengið að nota bæklinginn Vottar Jehóva og menntun undanfarna mánuði? Fáið nokkra boðbera, bæði börn og fullorðna, til að segja frá reynslu sinni, jafnt innan sem utan skólans. Bjóðið líka áheyrendum að segja frá góðum árangri af notkun þessa bæklings.

Söngur 96 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila