Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 10.97 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir október

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir október
  • Ríkisþjónusta okkar – 1997
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 6. október
  • Vikan sem hefst 13. október
  • Vikan sem hefst 20. október
  • Vikan sem hefst 27. október
Ríkisþjónusta okkar – 1997
km 10.97 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir október

Vikan sem hefst 6. október

Söngur 50

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.

15 mín: „Munu allir menn nokkurn tíma elska hver annan?“ Spurningar og svör. Farið yfir það helsta í Fréttum um Guðsríki nr. 35. Bendið á hvers vegna fólk á svæðinu hefur gagn af þessu efni. Leggið áherslu á nauðsyn þess að ráðgera núna að taka fullan þátt í dreifingu fréttaritsins og vera dugleg við að fylgja eftir þeim áhuga sem við finnum.

20 mín: „Dreifum Fréttum um Guðsríki nr. 35 sem víðast.“ Hefst með ræðu starfshirðis. Farið yfir tölugrein 5-8 með spurningum og svörum. Nefnið staðbundnar ráðstafanir til aukins starfs. Ræðið um leiðir til að tryggja að farið sé yfir allt svæðið. Fréttir um Guðsríki nr. 35 má nota þegar vitnað er fyrir fólki á biðstöðum strætisvagna, í búðum og litlum fyrirtækjum, bílastæðum og annars staðar. Komið með tillögur um hvernig hjálpa má nýjum sem vilja hefja boðunarstarf. Takið með tillögur úr viðaukanum í Ríkisþjónustu okkar frá apríl 1995, grein 11. Á sumum svæðum gæti það haft sína kosti að starfa einn og vera ekki með starfstösku þegar Fréttum um Guðsríki er dreift. Tvenn eða þrenn stutt kynningarorð sett fram í sýnikennslum.

Söngur 52 og lokabæn.

Vikan sem hefst 13. október

Söngur 23

12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Reikningshaldsskýrslan. Bendið á eitthvað í Varðturninum og Vaknið! sem nota má sem umræðuefni þegar við kynnum blöðin. Minnið alla á að í boðunarstarfi okkar um helgar leggjum við áherslu á að bjóða blöðin auk þess sem við notum Fréttir um Guðsríki nr. 35. Við ættum að fylgja öllum áhuga eftir. Minnið bræðurnar á að koma með nýja bæklinginn, A Book for All People, á þjónustusamkomuna í næstu viku.

15 mín: Staðbundnar þarfir.

18 mín: „Hvernig bregst þú við sinnuleysi?“ Tveir öldungar ræða efnið sín á milli. Fléttið inn í samræðurnar nokkrum atriðum úr greininni „Hvernig þú getur unnið á sinnuleysi“ í Varðturninum (á ensku) frá 15. júlí 1974, blaðsíðu 445-6.

Söngur 53 og lokabæn.

Vikan sem hefst 20. október

Söngur 18

15 mín: Staðbundnar tilkynninga. Rifjið upp nokkrar reynslufrásagnir úr Árbókinni 1996, blaðsíðu 6-8 um ‚Dreifingu Frétta um Guðsríki um allan hnöttinn.‘ Dragið fram það sem einstaklingar lögðu á sig til að dreifa síðustu Fréttum um Guðsríki. Hvetjið alla til að eiga fulla hlutdeild í að dreifa Fréttum um Guðsríki nr. 35.

15 mín: Meginþættir nýja bæklingsins, A Book for All People (Bók fyrir alla). Rætt við áheyrendur um ástæður þess að Biblían verðskuldi að við skoðum hana. Þessi bæklingur var saminn til að hjálpa fólki sem kann að vera vel menntað en veit lítið um Biblíuna. Í stað þess að reyna að sannfæra fólk um að Biblían sé innblásin af Guði lætur bæklingurinn staðreyndirnar sjálfar tala. Við ættum að lesa hann og deila honum með öðrum, þar með töldum biblíunemendum okkar.

15 mín: „Ert þú vottur allar stundir?“ Ræða öldungs.

Söngur 55 og lokabæn.

Vikan sem hefst 27. október

Söngur 19

12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Skoðið hvernig dreifing Frétta um Guðsríki nr. 35 gengur. Bjóðið áheyrendum að segja uppörvandi reynslufrásagnir úr þessu starfi. Skýrið frá því hve mikið starfssvæði er búið að fara yfir og hvað þurfi að gera til að ljúka yfirferðinni 16. nóvember. Þegar búið er að fara yfir allt svæðið bjóðum við Þekkingarbókina það sem eftir er mánaðarins. Undirstrikið að markmiðið sé að fá þá sem tóku vel við Fréttum um Guðsríki til að hefja biblíunám.

15 mín: Hvernig finna má von þótt örvænting blasi við. Ræða öldungs byggð á Varðturninum (á ensku) 15. maí 1997, bls. 22-5.

18 mín: Láttu ljós þitt skína. Ræða og umræður út frá Þjónustubókinni, blaðsíðu 84-8. Gerið ráðstafanir fyrirfram til að láta boðbera koma með afmarkaðar athugasemdir um eftirfarandi spurningar: (1) Hvers vegna prédika vottar Jehóva hús úr húsi? (2) Í hvaða mæli var þessari aðferð beitt á fyrstu öldinni? (3) Hvers vegna er brýnt að halda áfram að prédika hús úr húsi nú á tímum? (4) Hvaða kringumstæður gætu gert okkur erfitt að taka að staðaldri þátt í því starfi? (5) Hvernig getum við fengið hjálp til þess að láta ekki deigan síga? (6) Hvernig fáum við blessun fyrir að láta ljós okkar skína? (7) Hvað getum við gert til þess að ná betri árangri í því að ná sambandi við fólk? Gefið dæmi um þetta með því að láta þrjá eða fjóra boðbera segja frá ánægjulegri reynslu sinni þegar þeir voru í búðastarfinu eða götustarfinu.

Söngur 57 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila