Þjónustusamkomur fyrir júní
Vikan sem hefst 2. júní
Söngur 81
8 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna frá febrúar bæði fyrir allt landið og söfnuð ykkar.
15 mín: „Gerum okkar ýtrasta.“ Spurningar og svör. — Sjá einnig Varðturninn, 1. ágúst 1993, blaðsíðu 30-1.
22 mín: „Þekking frá Guði svarar mörgum spurningum.“ Stjórnandinn ræðir greinina við tvo eða þrjá boðbera, þar á meðal ungling. Fer nokkrum orðum um tölugrein 1 þar sem hann leggur áherslu á hvers vegna Þekkingarbókin hjálpar okkur svona vel að svara spurningum. Þátttakendur æfa kynningarorð sín á milli og eftir hverja æfingu nefnir stjórnandinn hvað mætti betur fara.
Söngur 88 og lokabæn.
Vikan sem hefst 9. júní
Söngur 33
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
15 mín: Minnisatriði fyrir sumarið. Ræða og umræður við áheyrendur. Flest okkar ætla að gera eitthvað sérstakt yfir sumarmánuðina, og meðal annars gæti það falið í sér að fara í sumarfrí, heimsækja ættingja eða njóta einhverrar afþreyingar. Hvernig getum við háttað málum þannig að guðveldislegt starf verði ekki útundan? Ræðið um eftirfarandi: (1) Að vera viðstaddur landsmótið alla þrjá mótsdagana. (2) Að halda áfram að sækja samkomur reglulega, hvort sem við erum á heimaslóðum eða annars staðar. (3) Að gera ráðstafanir til að eiga reglulega hlutdeild í boðunarstarfinu, og senda starfsskýrsluna til safnaðarins ef við erum að heiman. (4) Að taka með sér í ferðalögin birgðir af ritum til að nota í óformlegum vitnisburði. (5) Að nota björtu sumarkvöldin til aukins boðunarstarfs. (6) Að gerast aðstoðarbrautryðjandi í einn eða fleiri mánuði í sumar. (7) Að öldungarnir haldi góðu skipulagi á safnaðarstarfinu og gæti þess að einhverjir annist störf þeirra sem eru fjarverandi.
20 mín: Mikil þörf er á að kenna öðrum. Ræða öldungs. Lítið yfir þjónustuskýrsluna fyrir allan heiminn árið 1996 á blaðsíðu 33 í Árbókinni 1997. Hið aukna átak, sem nú er í gangi til að vitna fyrir fólki hvar sem það er að finna, ber ávöxt. Núna er sérstaklega brýnt að fara aftur til þeirra sem þiggja rit og kenna fólki sannleikann. Þegar við hittum fólk á förnum vegi ættum við að biðja það hæversklega um nafn og heimilisfang til þess að hægt sé að fara þangað í endurheimsókn. Við verðum að gera meira en aðeins sá sæði Guðsríkis; við verðum líka að vökva það. (1. Kor. 3:6-8) Þegar sæði er sáð í góða jörð getur góð kennsla hjálpað þeim einstaklingi að skilja orðið. (Matt. 13:23) Okkur ber að taka þátt í kennslustarfinu í eins ríkum mæli og af eins mikilli leikni og okkur er unnt. (Hebr. 5:12a) Takið með punkta úr viðaukanum í Ríkisþjónustu okkar fyrir júní 1996, tölugrein 25-6. Leggið áherslu á að leitast sé við að koma af stað biblíunámskeiðum í annaðhvort Kröfubæklingnum eða Þekkingarbókinni.
Söngur 90 og lokabæn.
Vikan sem hefst 16. júní
Söngur 18
5 mín: Staðbundnar tilkynningar.
23 mín: „Landsmótið 1997 ‚Trúin á orð Guðs.‘“ Spurningar og svör. Lesið tölugreinar 6, 8, 11 og 12. Undirstrikið þá áherslu sem Biblían leggur á það að kristinn maður gæti vandlega að útliti sínu og hegðun, hafi góða umsjón með börnum sínum og sýni reglusemi og tillitssemi.
17 mín: Hvernig menn geta komist að því hvort trú þeirra sé sönn eða fölsk. Bróðir stýrir umræðum við tvo eða þrjá hæfa boðbera sem byggðar eru á Vaknið! (á ensku) frá 22. desember 1989, blaðsíðu 18. Margt fólk, sem virðist vera einlægt, fær heimsókn frá okkur hvað eftir annað. Það þiggur hins vegar aldrei biblíunám. Ræðið hvernig nota má atriði í þessari grein í Vaknið! til að láta menn koma auga á nauðsyn þess að breyta í samræmi við nákvæma þekkingu. Vísið til lykilatriða í 5. kafla Þekkingarbókarinnar: „Tilbeiðslu hverra viðurkennir Guð?“ Lesið tölugrein 20. Fara má í endurheimsókn til slíkra einstaklinga til að hvetja þá vingjarnlega og hæversklega til að þiggja nám og sækja samkomur.
Söngur 89 og lokabæn.
Vikan sem hefst 23. júní
Söngur 86
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín: Hvað segja þeir um okkur? Ræða byggð á upplýsingunum sem finna má í Watch Tower Publications Index 1986-1995, blaðsíðu 341-3. Veljið einstök „Ummæli annarra“ um votta Jehóva — hegðun okkar og starf. Sýnið hvernig það sem aðrir hafa séð til okkar hefur verkað vel á þá. Útskýrið hvers vegna þetta ætti að örva okkur til að hegða okkur alltaf á viðeigandi hátt og halda ótrauðir áfram starfi okkar. Bendið á hvernig nota megi slík jákvæð ummæli þegar við tölum við kunningja og áhugasamt fólk sem langar til að vita meira um okkur.
20 mín: „Foreldrar — kennið börnum ykkar að prédika.“ Spurningar og svör. Takið með leiðbeiningarnar í Þjónustubókinni á blaðsíðu 99-100, undir fyrirsögninni „Ungu fólki hjálpað.“
Söngur 93 og lokabæn.
Vikan sem hefst 30. júní
Söngur 99
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir júní.
20 mín: „Unglingar — hver eru andleg markmið ykkar?“ Tveir feður ræða saman um greinina. Þeir íhuga hvernig þeir geti hjálpað börnum sínum að gera sér að fullu ljóst hvers vegna það er algerlega nauðsynlegt að setja sér andleg markmið, sem munu færa þeim andlegar blessanir, í stað þess að keppa eftir efnislegum áhugamálum. — Sjá einnig Þjónustubókina, blaðsíðu 116-18.
15 mín: Búum okkur undir að bjóða ritatilboð júlímánaðar. Veljið einn eða tvo bæklinga sem fengið hafa góðar viðtökur á starfssvæðinu og rifjið upp hvað þeir hafa sérstaklega til að bera. Komið með tillögur um efni úr bæklingunum sem fella má inn í kynningu á þeim. Minnið á að nefna framlagafyrirkomulagið, skrá hvar menn þáðu rit og fara aftur og kynda undir áhuganum.
Söngur 97 og lokabæn.