Þjónustusamkomur fyrir maí
Vikan sem hefst 5. maí
Söngur 53
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar.
12 mín: „Fylgjum Jesú stöðugt.“ Spurningar og svör. Takið með reynslufrásagnir úr Varðturninum 1. nóvember 1993, blaðsíðu 22.
23 mín: „Sýnum öllum sem láta í ljós áhuga einlæga umhyggju.“ Umræður við áheyrendur. Leggið áherslu á nauðsyn þess að fylgja eftir öllum áhuga sem við verðum vör við. Komið með tillögur um nokkrar háttvísar leiðir til að biðja þá sem við hittum á förnum vegi um heimilisfang til þess að við getum gefið þeim frekari vitnisburð. Látið hæfa boðbera sýna notkun tveggja þeirra kynningarorða sem stungið er upp á í tölugrein 6-9. Rifjið upp það sem fram kemur í rammanum „Árangursríkar endurheimsóknir“ á blaðsíðu 3 í viðaukanum við Ríkisþjónustu okkar fyrir mars 1997. Hvetjið alla til að ætla sér einhvern tíma í hverri viku til að fara í endurheimsóknir.
Söngur 64 og lokabæn.
Vikan sem hefst 12. maí
Söngur 55
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
12 mín: Spurningakassinn. Ræða flutt af öldungi.
23 mín: „Beinum nemendum til skipulagsins að baki nafni okkar.“ Farið með spurningum og svörum yfir tölugreinar 1-6 í viðaukanum í Ríkisþjónustu okkar fyrir apríl 1997. Lesið tölugreinar 5-6 og tilvísaða ritningarstaði. Segið frá reynslunni í ykkar söfnuði af viðbrögðum biblíunemenda við að sjá myndbandið Vottar Jehóva — skipulagið að baki nafninu.
Söngur 70 og lokabæn.
Vikan sem hefst 19. maí
Söngur 59
7 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
20 mín: „Stýrum heimabiblíunámum þannig að nemendurnir taki framförum.“ Hæfur bróðir ræðir greinina við einn eða tvo boðbera sem hafa náð góðum tökum á því að stýra biblíunámum. Með því að nota brot úr Þekkingarbókinni sem dæmi greina þeir frá kennslutækni sem hjálpar þeim að láta námið halda áfram á jöfnum hraða og gerir þeim kleift að skynja hvað nemandinn sé í raun og veru að læra. — Sjá viðaukann við Ríkisþjónustu okkar fyrir júní 1996, tölugreinar 5, 8 12 og 21.
18 mín: „Beinum nemendum til skipulagsins að baki nafni okkar.“ Farið með spurningum og svörum yfir tölugreinar 7-14 í viðaukanum í Ríkisþjónustu okkar fyrir apríl 1997. Látið leikinn kennara sýna hvernig eiga megi vingjarnlegar og hreinskilnar samræður við nemanda um nauðsyn þess að sækja samkomur.
Söngur 57 og lokabæn.
Vikan sem hefst 26. maí
Söngur 63
15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Skoðið bókatilboðið fyrir júní. Sýnið hvernig nota megi tölugreinar 17-19 á blaðsíðu 10-11 í Þekkingarbókinni til að undirbúa stutt kynningarorð. Minnið boðberana á að nefna framlagafyrirkomulagið. Hvetjið alla til að leggja sig fram við að reyna að stofna biblíunám. Leggið áherslu á þörfina á því að hjálpa áhugasömu fólki að taka hröðum framförum. — Sjá Varðturninn frá 1. mars 1996, blaðsíðu 13-14.
12 mín: „Hvers vegna höldum við áfram að fara aftur til fólks?“ Spurningar og svör. Takið með nokkur atriði í rammanum á blaðsíðu 570 í Boðendabókinni.
18 mín: Staðbundnar þarfir. Ræða öldungs eða samræður milli tveggja öldunga þar sem fjallað er um eitthvað sérstakt sem söfnuðurinn þarf á að halda andlega. Gefið hvatningu út frá Biblíunni og raunhæfar tillögur til úrbóta.
Söngur 77 og lokabæn.