Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.96 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir ágúst

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir ágúst
  • Ríkisþjónusta okkar – 1996
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 5. ágúst
  • Vikan sem hefst 12. ágúst
  • Vikan sem hefst 19. ágúst
  • Vikan sem hefst 26. ágúst
Ríkisþjónusta okkar – 1996
km 8.96 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir ágúst

Vikan sem hefst 5. ágúst

Þjónustusamkoman fellur niður vegna landsmótsins 1995 „Friðarboðberar Guðs,“ sem haldið er dagana 9. til 11. ágúst í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi.

Vikan sem hefst 12. ágúst

Söngur 59

5 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Reikningshaldsskýrslan.

30 mín: Upprifjun á aðalatriðum dagskrárinnar á landsmótinu 1996 „Friðarboðberar Guðs.“ Þetta er upprifjun á dagskrá mótsins hvern dag þess og skyldi bræðrum, sem færir eru um að draga saman og leggja áherslu á aðalatriðin, falið þetta verkefni áður en mótið hefst. Vel undirbúin og flutt upprifjun hjálpar meðlimum safnaðarins að muna eftir aðalatriðunum til að notfæra sér þau í persónulegu lífi sínu og í boðunarstarfinu. Athugasemdir frá áheyrendum ættu að vera stuttar og gagnorðar.

10 mín: „Kunngerum fagnaðarerindið með bæklingum.“ (Tölugreinar 1-5) Notið fyrstu tölugreinina í örstutt inngangsorð. Farið jákvæðum orðum um kosti þess að nota bæklinganna „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“ og Stjórnin sem koma mun á paradís í boðunarstarfinu. Hafið vel æfðar sýnikennslur þar sem fram kemur hvernig fara má að í fyrstu heimsókn og endurheimsókn með þessa bæklinga. Látið ungan boðbera sýna, með aðstoð föður síns eða móður, kynningarorð með bæklinginn Stjórnin sem koma mun á paradís. Boðberarnir kunna að vilja sníða kynningarorð sín eftir tillögunum á baksíðu Ríkisþjónustu okkar.

Söngur 57 og lokabæn.

Vikan sem hefst 19. ágúst

Söngur 26

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir Spurningakassann.

15 mín: „Ekki látið af að boða fagnaðarerindið.“ Ræða og umræður við áheyrendur. Takið með stuttan úrdrátt frá Innsýn í Ritningarnar, 2. bindi, blaðsíðu 673, grein 1.

10 mín: „Kunngerum fagnaðarerindið með bæklingum.“ (Tölugreinar 6-8) Rifjið með örfáum orðum upp innihald bæklingsins Nafn Guðs sem vara mun að eilífu. Hafið sýnikennslur þar sem notaðar eru tillögurnar í greininni að kynningarorðum í fyrstu heimsókn og endurheimsókn. Hvetjið alla til að fara aftur til þeirra sem þiggja rit hjá okkur.

10 mín: „Framlög til alþjóðastarfs Félagsins standa undir uppbyggingu.“ Hvetjandi ræða öldungs. Takið með tölur úr Árbókinni er sýna framfarirnar í starfi Guðsríkis í nokkrum þeirra landa sem myndirnar eru frá.

Söngur 77 og lokabæn.

Vikan sem hefst 26. ágúst

Söngur 52

5 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir aðalatriðin í „Ný dagskrá sérstaka mótsdagsins.“

13 mín: „Hver er hæfur til að prédika?“ Öldungur ræðir greinina við tvo eða þrjá boðbera. Leggið áherslu á að við fáum þá bestu þjálfum sem völ er á og sem gerir okkur að fullu hæf til að flytja fagnaðarboðskapinn frá Guði. Við höfum enga ástæðu til að finnast við óhæf til að prédika.

17 mín: „Hvernig nota skal Þekkingarbókina til að gera menn að lærisveinum.“ Umræður við áheyrendur um tölugreinar 17-26 í viðaukanum við Ríkisþjónustu okkar fyrir júní 1996. Takið með frásagnir einhverra boðbera sem stýra biblíunámi í Þekkingarbókinni og ræðið við þá fyrirfram. Þeir gætu sagt eitthvað jákvætt um það hvernig þeir hafa nýtt sér tillögurnar í viðaukanum og hvernig það hefur hjálpað þeim að stýra biblíunáminu þannig að nemandinn tekur meiri framförum. Hvetjið alla til að halda viðaukanum til haga og lesa hann yfir til upprifjunar í hvert sinn sem þeir stofna nýtt biblíunám.

10 mín: Ræðið um tilboðið í september. Við munum nota bókina Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Gefið dæmi um hversu fjölhæf bókin er. Í 1.-15. kafla er ágreiningurinn um hvernig lífið á jörðinni varð til skoðaður rækilega með ítarlegri heimildakönnun; kafli 16 fjallar um spurninguna sem fólk um allan heim hefur staðið ráðþrota andspænis: „Hvers vegna leyfir Guð þjáningar?“; sautjándi og átjándi kaflinn byggja upp trú á Biblíuna sem áreiðanlegt, innblásið orð Guðs; í 19. og 20. kaflanum er dregið skýrt fram fagnaðarerindið um Guðsríki sem tryggja mun líf í paradís á jörð og útskýrt hvernig menn geti öðlast það. Látið hæfan boðbera nota einn af þessum meginþáttum í efnistökum Sköpunarbókarinnar í stuttri sýnikennslu um hvernig bjóða megi hana.

Söngur 48 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila