Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 7.96 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir júlí

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir júlí
  • Ríkisþjónusta okkar – 1996
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 1. júlí
  • Vikan sem hefst 8. júlí
  • Vikan sem hefst 15. júlí
  • Vikan sem hefst 22. júlí
  • Vikan sem hefst 29. júlí
Ríkisþjónusta okkar – 1996
km 7.96 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir júlí

Vikan sem hefst 1. júlí

Söngur 17

12 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna fyrir apríl, bæði safnaðarins og landsins í heild. Farið yfir greinina „Vaknið! júlí—september“ og hvetjið boðberana til að koma því í sem flestar hendur.

15 mín: „Efnum heit okkar dag frá degi.“ Spurningar og svör. Takið með upplýsingar úr Innsýn, 2. bindi, blaðsíðu 1162, efnisgrein 6-7, þar sem fram kemur að heit er alvarleg skuldbinding.

18 mín: „Líktu eftir Jehóva og láttu þér einlæglega annt um aðra.“ (Tölugreinar 1-3) Notið fyrstu tölugreinina til að draga fram stef greinarinnar. Farið yfir tölugrein 2-3 eingöngu og hafið sýnikennslur þar sem fram kemur hvernig fara má að í fyrstu heimsókn og í endurheimsókn með bæklinginn Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur? Sýnið hvernig boðberar gætu samið sín eigin kynningarorð fyrir annan bækling sem hæfir vel starfssvæði ykkar. Takið með tillögur um hvernig nefna megi að frjáls framlög til alþjóðastarfsins séu fúslega þegin.

Söngur 47 og lokabæn.

Vikan sem hefst 8. júlí

Söngur 19

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

15 mín: „Líktu eftir Jehóva og láttu þér einlæglega annt um aðra.“ (Tölugreinar 4-5) Ræðið aðeins um tölugreinar 4-5 og sumt af því helsta í bæklingnum Þegar ástvinur deyr. Hafið að því búnu sýnikennslur þar sem notuð eru kynningarorðin sem stungið er upp á fyrir fyrstu heimsókn og endurheimsókn.

20 mín: „Fleiri bræður þarf í brautryðjandastarfið.“ Spurningar og svör. Lítið, eftir því sem tíminn leyfir, yfir tillögurnar í viðaukanum í Ríkisþjónustu okkar fyrir janúar 1996 um hvernig megi sjá sér farborða sem brautryðjandi.

Söngur 16 og lokabæn.

Vikan sem hefst 15. júlí

Söngur 70

5 mín: Staðbundnar tilkynningar.

15 mín: „Hefur þú reynt að fara í boðunarstarfið á kvöldin?“ Ræða með þátttöku áheyrenda og viðtölum. Segið frá hvernig gengið hefur að fara í starfið hús úr húsi seint á daginn og snemma kvölds. Takið með reynslufrásagnir sem sýna góðan árangur af slíku starfi.

10 mín: „Líktu eftir Jehóva og láttu þér einlæglega annt um aðra.“ (Tölugreinar 6-8) Notið síðustu tölugreinina til að hvetja alla til að fara án tafar í endurheimsókn til þeirra sem þáðu bæklinga. Sýnikennsla þar sem efnið í tölugrein 6-7 er notað til að sýna hvernig bjóða megi bæklinginn Hver er tilgangur lífsins? í fyrstu heimsókn og hvernig hefja megi biblíunám í fyrsta kafla Þekkingarbókarinnar í endurheimsókninni. Minnið boðberana á að þeir geti samið sín eigin kynningarorð fyrir aðra bæklinga og haft til fyrirmyndar þær tillögur að kynningarorðum sem settar eru fram í Ríkisþjónustu okkar.

15 mín: „Landsmótið 1996 ‚Friðarboðberar Guðs.‘“ Farið yfir greinar 1-13 með spurningum og svörum. Lesið tölugreinar 8, 9 og 12.

Söngur 93 og lokabæn.

Vikan sem hefst 22. júlí

Söngur 85

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Bendið stuttlega á efni í blöðunum sem nota má til að kynna þau og minnið boðberana á að leggja áherslu á dreifingu Vaknið!

15 mín: Farið yfir „Landsmótið 1996 ‚Friðarboðberar Guðs,‘“ grein 14-17, og „Minnisatriði fyrir landsmótið“ með spurningum og svörum.

20 mín: „Hvernig nota skal Þekkingarbókina til að gera menn að lærisveinum.“ Ræða sem tekur yfir efnið í tölugreinum 12-16 í viðaukanum í Ríkisþjónustu okkar frá júní 1996. Tvær sýnikennslur þar sem boðberar eru að stýra biblíunámum. Sú fyrri sýnir hvernig kenna megi nemanda í biblíunámi að búa sig undir hverja námsstund með því að strika undir lykilorðin sem svara neðanmálsspurningunum við greinina einna skýrast. Sú síðari sýnir hvað segja mætti til að hvetja biblíunemandann til að sækja opinbera fyrirlesturinn og Varðturnsnámið.

Söngur 54 og lokabæn.

Vikan sem hefst 29. júlí

Söngur 94

10 mín: Staðbundnar tilkynningar.

20 mín: Hvað þarf til að fá biblíunám? Öldungur stýrir umræðum tveggja eða þriggja sem hafa náð góðum árangri í biblíunámsstarfinu og ræða þeir um leiðir til að ná betri árangri í að stofna biblíunám með fólki: (1) Biðjum Jehóva um hjálp. (2) Tökum reglulega þátt í boðunarstarfinu hús úr húsi til að finna þá sem hafa áhuga. (3) Skráum niður alla sem sýndu áhuga og látum ekki dragast að fara í endurheimsókn. (4) Bjóðum alltaf biblíunám þegar viðmælandinn sýnir áhuga. (Sjá millifyrirsögnina „Biblíunámum komið af stað“ á blaðsíðu 20 í Varðturninum (á ensku) frá 15. febrúar 1996.) (5) Byggjum upp tiltrú á hæfni okkar til að kenna með því að nota tillögurnar fjórar sem settar eru fram á blaðsíðu 23-27 í Varðturninum frá 1. nóvember 1984.

15 mín: Kepptu að því marki að þjóna í fullu starfi. Samræður milli öldungs og eins eða tveggja unglinga og skulu þær byggðar á Varðturninum (á ensku) frá 15. desember 1988, blaðsíðu 25-7. Unglingarnir hafa verið að velta fyrir sér og reyna að ákveða hvaða takmarki þeir eiga að stefna að eftir að framhaldsskólanámi þeirra lýkur. Þeir sýna áhuga á þeim kostum sem því fylgja fjárhagslega að komast í gott starf í heiminum. Öldungurinn bendir á góðar ástæður fyrir því að miklu betra sé að taka stefnuna á brautryðjandastarfið. Unglingarnir samsinna því en efast um að þeir geti séð sér farborða samhliða brautryðjandastarfi. Öldungurinn endursegir nokkrar reynslufrásagnanna í greininni í Varðturninum sem sýna að brautryðjandastarf er markmið sem unnt er að ná og færir mörgum gleði. Samræðunum lýkur með því að unglingarnir láta í ljós þakklæti fyrir það sem öldungurinn lagði til málanna og segjast staðráðnir í að íhuga alvarlega að stefna að því marki að eiga fulla hlutdeild í þjónustunni við Guðsríki.

Söngur 31 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila