Þjónustusamkomur fyrir júní
Vikan sem hefst 3. júní
Söngur 81
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið nokkrum orðum um síðustu þjónustuskýrslu, bæði þá sem er fyrir landið allt og birt er í Ríkisþjónustu okkar, svo og þjónustuskýrslu safnaðarins fyrir sama mánuð.
15 mín: „Líkið eftir trú þeirra.“ Spurningar og svör. Rifjið upp það sem ber því vitni að menn búi yfir trú og tilgreint er í ramma á blaðsíðu 27 í Varðturninum frá 1. mars 1992. Hafið viðtal við einn eða tvo boðbera til að komast að raun um hvað hafi hjálpað þeim að halda ótrauðir áfram regluföstu starfi sínu í þágu Guðsríkis um áraraðir.
20 mín: „Útbreiðum þekkinguna sem leiðir til eilífs lífs.“ (Tölugrein 1-3) Farið yfir 1. tölugrein. (Takið með athugasemdir frá Varðturninum frá 1. mars 1996, blaðsíðu 12-13, greinar 11-12.) Útskýrið að nýja uppsetningin á baksíðu Ríkisþjónustu okkar sé til þess ætluð að hjálpa okkur að vera betur undir það búin að fylgja fyrstu heimsóknunum eftir. Sökum þess að það er oft skynsamlegt að fara í endurheimsókn áður en einn eða tveir dagar eru liðnir, munum við á sömu þjónustusamkomunni taka til athugunar tillögur að kynningarorðum bæði fyrir starfið hús úr húsi og fyrir endurheimsóknir. Farið stuttlega yfir tölugrein 2 og 3 og hafið að því loknu sýnikennslu um hvora grein. Kynningarorðin í fyrstu heimsókninni ættu að innifela stuttar athugasemdir um hvernig fólk getur lagt eitthvað af mörkum til alþjóðastarfsins. Á næstu tveimur þjónustusamkomum verður farið yfir þau kynningarorð sem eftir eru í baksíðugreininni.
Söngur 60 og lokabæn.
Vikan sem hefst 10. júní
Söngur 30
7 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.
8 mín: Börnin þjálfuð í boðunarstarfinu. Ræða öldungs. Frá ungum aldri ættu börnin okkar að taka virkan þátt með okkur í boðunarstarfinu. Þjálfunin og reynslan, sem þau fá, mun leggja styrkan grunn að trú þeirra og kostgæfni síðar á ævinni. Mikilvægt er að þau geri sér grein fyrir þörfinni á að taka boðunarstarfið alvarlega og hegða sér eins og þeim ber að gera. Börnin verða að forðast öll ólæti; þau eiga ekki að vera að leika sér þegar þau eru í boðunarstarfinu. Best er að þau starfi með fullorðnum. Hjálpa ætti þeim að taka þátt í að kynna boðskapinn í þeim mæli sem hæfni þeirra og geta leyfir. (Sjá Varðturninn frá 1. mars 1989, blaðsíðu 11, grein 20.) Foreldrar eru ábyrgir fyrir því að umsjón sé höfð með börnunum; þeir ættu ekki að senda þau í samansafnanir án þess að einhver fullorðinn sé til að sjá um þau. Hrósið börnunum þegar þau standa sig vel.
10 mín: „Útbreiðum þekkinguna sem leiðir til eilífs lífs.“ (Tölugrein 4-5) Stutt inngangsorð og síðan sýnikennslur þar sem notuð eru kynningarorðin fyrir fyrstu heimsókn og endurheimsókn í tölugrein 4 og 5. Hvetjið boðberana til að láta ekki dragast að fara aftur til allra sem þiggja Þekkingarbókina.
20 mín: „Hvernig gera skal menn að lærisveinum með Þekkingarbókinni.“ Hafið stutt inngangsorð sem byggð eru á tölugrein 1-2. Farið yfir tölugrein 3-11 með spurningum og svörum. Útskýrið að það sem eftir sé af viðaukanum verði tekið til umfjöllunar á þjónustusamkomum í júlí og ágúst. Hvetjið alla til að halda viðaukanum til haga, eins og raunar ætti ávallt að gera með hvert tölublað af Ríkisþjónustu okkar.
Söngur 42 og lokabæn.
Vikan sem hefst 17. júní
Söngur 68
5 mín: Staðbundnar tilkynningar.
10 mín: Spurningakassinn. Starfshirðir ræðir um efnið með einhverri þátttöku áheyrenda.
15 mín: „Vingjarnlegar samræður geta náð til hjartans.“ Spurningar og svör. Bjóðið einum eða tveimur boðberum að koma með hvetjandi frásagnir af því hvernig fólk hefur brugðist vel við tilraunum þeirra til að koma af stað vingjarnlegum samræðum.
15 mín: „Útbreiðum þekkinguna sem leiðir til eilífs lífs.“ (Tölugreinar 6-7) Undirstrikið að markmiðið með endurheimsóknum sé að vekja upp áhuga manna á sannleikanum, hefja biblíunám með þeim og binda fastmælum hvenær við getum komið aftur til þeirra. Eftir að hafa litið stuttlega yfir kynningarorðin í tölugreinum 6 og 7 skyldu þau kynningarorð sett fram í tveimur sýnikennslum sem sýna hvernig hefja megi biblíunám. Lesið tölugrein 17 á blaðsíðu 14 í Varðturninum frá 1. mars 1996.
Söngur 93 og lokabæn.
Vikan sem hefst 24. júní
Söngur 3
10 mín: Staðbundnar tilkynningar.
15 mín: Staðbundnar þarfir. (Eða flytjið ræðu út frá stefinu „Farið rétt með orð sannleikans“ og sem byggð er á efninu í Varðturninum (á ensku) frá 1. janúar 1996, blaðsíðu 29-31.)
20 mín: „Hjálpum þeim að þjóna á ný.“ Ræða öldungs og umræður. Leggið til að notað sé efni úr greininni „Snúið ykkur til mín, þá mun ég snúa mér til ykkar,“ sem er að finna í Varðturninum (á ensku) frá 1. ágúst 1992, til að uppörva þá sem orðnir eru óvirkir. Nefnið nokkra meginþætti greinarinnar.
Söngur 66 og lokabæn.