Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.95 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir ágúst

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir ágúst
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 7. ágúst
  • Vikan sem hefst 14. ágúst
  • Vikan sem hefst 21. ágúst
  • Vikan sem hefst 28. ágúst
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 8.95 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir ágúst

Vikan sem hefst 7. ágúst

Þjónustusamkoman fellur niður vegna landsmótsins 1995 „Glaðir menn sem lofa Guð“ dagana 11. til 13. ágúst í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi.

Vikan sem hefst 14. ágúst

Söngur 36

5 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar frá Ríkisþjónustu okkar. Reikningshaldsskýrslan.

30 mín: Upprifjun á aðalatriðum dagskrárinnar á landsmótinu 1995 „Glaðir menn sem lofa Guð.“ Þetta er upprifjun á dagskrá mótsins hvern dag þess og skyldi bræðrum, sem færir eru um að draga saman og leggja áherslu á aðalatriðin, falið þetta verkefni áður en mótið hefst. Vel undirbúin og flutt upprifjun hjálpar meðlimum safnaðarins að muna eftir aðalatriðunum til að notfæra sér þau í persónulegu lífi sínu og í boðunarstarfinu. Athugasemdir frá áheyrendum ættu að vera stuttar og gagnorðar.

10 mín: „Kennið orð Guðs — notið bæklinga.“ Bróðirinn, sem annast þennan dagskrárlið, mun ræða við tvo aðra boðbera um ýmsar hliðar bæklinganna og hvernig hentugt er að bjóða þá á svæði safnaðarins.

Söngur 32 og lokabæn.

Vikan sem hefst 21. ágúst

Söngur 92

5 mín: Staðbundnar tilkynningar.

10 mín: Nýtið ykkur skólagönguna eins vel og hægt er. Öldungur sýnir hvernig foreldri gæti talað við son eða dóttur á unglingsaldri um val námsefnis og námsbrauta í skóla. Ræðið nauðsyn þess að velja námsefni sem nýtist nemandanum vel þegar hann leitast við að taka upp þjónustu við Guðsríki í fullu starfi, ekki aðeins um stutta stund heldur til frambúðar. — Sjá Varðturninn 1. apríl 1993, blaðsíðu 26-28, grein 3-11.

15 mín: „Foreldrar sem fagna.“ Ræða öldungs. Takið með athugasemdir byggðar á Varðturninum 1. janúar 1988, blaðsíðu 11-13, grein 14-23.

15 mín: „Kristin hegðun í skólanum.“ Spurningar og svör. Hvetjið foreldra til að fara yfir efnið í Varðturninum (á ensku) 15. júlí 1991, blaðsíðu 23-6 með börnum sínum, einkum þær greinar sem fjalla um mál sem líklegt er að börnin eigi eftir að standa frammi fyrir.

Söngur 73 og lokabæn.

Vikan sem hefst 28. ágúst

Söngur 88

5 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir helstu atriðin í „Dagskrá sérstaka mótsdagsins í haust.“ Hvetjið alla til að sækja þetta einsdags mót.

10 mín: „Hversu ber ykkur þá ekki að ganga fram?“ Spurningar og svör. Eyðið engum tíma í inngangsorð heldur komið beint að efninu.

20 mín: „Við bjóðum okkur fúslega fram til sérhvers góðs verks.“ Ræða (8 mínútur) öldungs út frá aðalatriðunum í tölugrein 1-9 og síðan farið yfir grein 10-15 með spurningum og svörum. Vekið athygli á staðbundnum þörfum og á hvaða hátt allir geti lagt hönd á plóginn.

10 mín: „Árangursríkar endurheimsóknir krefjast áhrifaríkrar kennslu.“ Farið yfir meginatriðin og hafið eina stutta sýnikennslu.

Söngur 109 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila