Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.95 bls. 2
  • Þjónustusamkomur fyrir júní

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir júní
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 5. júní
  • Vikan sem hefst 12. júní
  • Vikan sem hefst 19. júní
  • Vikan sem hefst 26. júní
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 6.95 bls. 2

Þjónustusamkomur fyrir júní

Vikan sem hefst 5. júní

Söngur 21

12 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Farið yfir „Aftur er komið sumar!“ Hvetjið alla til að gæta þess að skila inn starfsskýrslum tímanlega þó að þeir séu í fríi fjarri heimili sínu.

15 mín: „Jehóva veitir kraft.“ Spurningar og svör. Takið með efnið sem fram kemur á blaðsíðu 32 í Varðturninum (á ensku) 1. febrúar 1992.

18 mín: „Jehóva er skapari okkar.“ Ræðið efnið við áheyrendur. Hafið tvær sýnikennslur um hvernig nota megi kynningarorðin sem stungið er upp á. Takið með nokkrar stuttar tillögur um hvernig megi fara í endurheimsóknir til þeirra sem fengu Fréttir um Guðsríki í apríl og maí.

Söngur 104 og lokabæn.

Vikan sem hefst 12. júní

Söngur 73

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan.

17 mín: „Kristur sem fyrirmynd ungmenna.“ Spurningar og svör. Leggið áherslu á mikilvægi þess að setja sér verðugt og raunhæft markmið og keppa staðfastur að því marki. Takið með nokkrar athugasemdir um þetta efni frá Varðturninum (á ensku) 1. september 1986, blaðsíðu 4-6.

18 mín: „Hjálpum þeim sem ekki hafa trú.“ Bóknámsstjóri rennir yfir greinina með tveim eða þrem boðberum og ræðir síðan um hvernig nota eigi efnið og leggur áherslu á nauðsyn þess að undirbúa sig áður en farið er í endurheimsóknir. Þeir æfa síðan kynningarorð sín hver á öðrum.

Söngur 10 og lokabæn.

Vikan sem hefst 19. júní

Söngur 64

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og Guðveldisfréttir.

18 mín: „Einföldun á landsmótinu 1995.“ Ræða öldungs með einhverri þátttöku áheyrenda. Leggið áherslu á hvers vegna þessi einföldun mála hefur reynst nauðsynleg, að hvaða gagni hún kemur við mótshald þjóna Jehóva um víða veröld og hvernig hún hjálpar þeim að sinna þeim mikla fjölda sem núna streymir inn í skipulag Guðs. Bendið á nauðsyn þess að sýna útsjónarsemi til að taka aðeins með sér nauðsynlegt nesti og annað tengt því til mótsins.

17 mín: „Nýttu tímann þinn vel.“ Spurningar og svör. Undirstrikið mikilvægi þess að nota vel tímann sem tekinn er frá til boðunarstarfsins. Í tengslum við þann tíma, sem fer í sjónvarpið, skal rifja upp tillögurnar undir fyrirsögninni „Hafðu stjórn á því“ í Vaknið! júlí-september, 1991, blaðsíðu 11.

Söngur 72 og lokabæn.

Vikan sem hefst 26. júní

Söngur 33

15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Ræðið fáeinum orðum um mikilvægi þess að fara í endurheimsóknir. Stærsti hluti kennslustarfs okkar er unninn þegar við förum aftur til fólks til að glæða áhugann sem við fundum. Fáir geta tekið andlegum framförum fyrir tilstuðlan ritanna eingöngu. Þegar við látum undir höfuð leggjast að fara í endurheimsókn missum við af besta tækifærinu sem við höfum til að hjálpa fólki. Biblíunámin eru afrakstur endurheimsókna. Margir boðberar hafa náð bestum árangri með því að fara í endurheimsókn eftir einn eða tvo daga í stað þess að bíða með það í viku. — Sjá Þjónustubókina, blaðsíðu 88-9.

12 mín: Spurningakassinn. Spurningar og svör. Komið með viðbótarathugasemdir sem byggðar eru á Handbók Guðveldisskólans, blaðsíðu 91-2.

18 mín: „Landsmótið 1995 ‚Glaðir menn sem lofa Guð.‘“ Spurningar og svör. Leggið áherslu á mikilvægi þess að vera viðstaddur dagskrána alla þrjá dagana og einbeita sér að henni. Hvetjið foreldra til að búa börnin sín undir að sita kyrr og fylgjast af athygli með dagskránni og láta ógert að vera með hamagang í dagskrárhléum. Dragið athyglina að „Minnisatriði fyrir landsmótið“ og hvetjið þá sem geta til að bjóða sig fram til sjálfboðaliðsstarfs í tengslum við mótið.

Söngur 13 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila