Þjónustusamkomur fyrir júlí
Vikan sem hefst 4. júlí
Söngur 10
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og viðeigandi tilkynningar frá Ríkisþjónustu okkar. Hvetjið boðberana til að birgja sig upp af bæklingum til að nota í boðunarstarfinu.
17 mín: „Drögum ekki úr starfinu hús úr húsi.“ Spurningar og svör. Bjóðið þeim áheyrendum, sem komust fyrst í kynni við sannleikann þegar boðberar hittu þá hús úr húsi, að gefa athugasemdir um hve þakklátir þeir séu fyrir það.
18 mín: „Hjálpum öðrum að læra sannleikann.“ Umræður við áheyrendur. Látið hæfa boðbera sýna hvernig nota má tvenn eða þrenn kynningarorðanna sem stungið er upp á. Undirstrikið gangsemi þess kynningin sé stutt og auðskilin.
Söngur 26 og lokabæn.
Vikan sem hefst 11. júlí
Söngur 95
12 mín: Staðbundnar tilkynningar. Lesið reikningshaldsskýrsluna ásamt þökkum frá Félaginu fyrir framlög ef einhverjar eru. Hrósið boðberunum fyrir framlög þeirra. (2. Mós. 35:29) Hvetjið boðberana til að fara í starfið snemma á kvöldin, en það er góður tími fyrir starf hús úr húsi og endurheimsóknir.
15 mín: Staðbundnar þarfir, eða ræða út frá greininni „Hafnaðu skröksögum“ í Varðturninum 1. júní 1994.
18 mín: „Hvernig heyra þeir nema við förum aftur?“ Umræður við áheyrendur. Tillögurnar í tölugrein 3 og 4 settar fram í sýnikennslu. Bætið við athugasemdum sem sýna hvers vegna fara ætti í endurheimsóknir með það markmið að stofna nám.
Söngur 28 og lokabæn.
Vikan sem hefst 18. júlí
Söngur 33
15 mín: Staðbundnar tilkynningar. Farið yfir aðalatriðin í „Einfölduð tilhögun við dreifingu ritanna — hvað hefur reynslan sýnt“ og hvetjið boðberana til að rifja upp það sem sagði í km 7.93 og km 8.93 um þessi mál. Hvetjið til þátttöku í blaðastarfinu næstu helgi.
8 mín: Spurningakassinn. Umræður með spurningum og svörum.
22 mín: „Finnum áhugasama með áhrifaríku boðunarstarfi á götum úti.“ Starfshirðirinn, eða annar hæfur öldungur sem nær góðum árangri í götustarfinu, ræðir greinina við tvo eða þrjá boðbera sem hafa líka reynslu í götustarfinu. Inn í umræðurnar má flétta tveimur eða þremur stuttum starfsfrásögnum. Sýnið hvernig nota megi nýjustu blöðin í þessu starfi.
Söngur 62 og lokabæn.
Vikan sem hefst 25. júlí
Söngur 73
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og Guðveldisfréttir. Sýnikennslur um hvernig bjóða megi nýjustu blöðin. Hvetjið alla til þátttöku í blaðadreifingunni.
15 mín: „Hinir ungu þurfa gott fordæmi.“ Spurningar og svör. Viðtal við eitt eða tvö ungmenni sem sýna gott fordæmi. Látið þau útskýra hvaða andleg markmið þau hafi sett sér og hvernig viðleitni þeirra hafi fært aukna blessun.
20 mín: Gerum kynningarorð okkar áhrifaríkari. Fjölskylda hefur æfingatíma sem hún byggir á tillögunum á blaðsíðu 99, grein 9, í Handbók Guðveldisskólans. Einn fjölskyldumeðlimurinn fer með kynningarorðin í sýnikennslu, hinir koma með hrós og tillögur úrbóta. Takið með algenga mótbáru á ykkar svæði og ræðið hvernig megi yfirstíga hana.
Söngur 32 og lokabæn.