Þjónustusamkomur fyrir apríl
Vikan sem hefst 4. apríl
Söngur 95
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og tilkynningar frá Ríkisþjónustu okkar. Minnið alla á sérræðuna sem flutt verður 10. apríl og ber heitið “Sönn trúarbrögð mæta þörfum mannkynsins.“ Gera skyldi sérstakt átak til að hjálpa nýjum að koma og hlusta á þessa ræðu. Ræðið efnið í rammanum “Haltu áfram að leita fyrst Guðsríkis“ við áheyrendur og hvetjið alla til að missa ekki af neinum þætti á dagskrár svæðismótsins.
15 mín: „Varðturninn og Vaknið! — tímarit sannleikans.“ Spurningar og svör. Bjóðið áheyrendum að greina frá aðferðum sem þeir hafa notað til að auka blaðadreifingu sína. Látið nokkra segja reynslufrásagnir eftir því sem tíminn leyfir.
20 mín: „Bjóðum bestu blöð í heimi.“ Ræðið efnið við áheyrendur og leggið áherslu á hið sérstaka gagn sem hafa má af blöðunum. Þegar farið er yfir tölugrein 2 ætti að biðja skilvirkan boðbera fagnaðarerindisins um að útskýra hvernig megi fara yfir efni blaðanna og búa sig undri að kynna þau. Sýnikennsla um hvernig bjóða megi nýjustu blöðin, bæði Varðturninn og Vaknið! Ljúkið atriðinu með því að hvetja áheyrendurna til að nota blöðin vel, í eigin þágu og annarra.
Söngur 11 og lokabæn.
Vikan sem hefst 11. apríl
Dagskrá samkomunnar fellur niður vegna svæðismótsins í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi 16. og 17. apríl.
Vikan sem hefst 18. apríl
Söngur 13
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Ræðið helstu atriðin í Spurningakassanum.
15 mín: „Þjónustusamkoman gerir okkur hæf til sérhvers góðs verks.“ Spurningar og svör. Takið með sýnikennslu um hvernig fjölskylda býr sig undir samkomu; leggið áherslu á mikilvægi þess að (1) undirbúa sig, (2) fylgjast vandlega með og (3) vera þátttakandi.
20 mín: „Hreinlæti heiðrar Guð.“ Öldungur ræðir efni greinarinnar við áheyrendur. Lýkur með stuttri ræðu sem rifjar upp ráðleggingarnar sem gefnar eru í Varðturninum 1. nóvember 1989, blaðsíðu 24-29.
Söngur 48 og lokabæn.
Vikan sem hefst 25. apríl
Söngur 10
5 mín: Staðbundnar tilkynningar og Guðveldisfréttir.
15 mín: „Förum aftur til þeirra sem þáðu blöð eða bæklinga.“ Ræðið efnið við áheyrendur. Bjóðið heim athugasemdum um hvers vegna þörf er á að þekkja efni blaðanna vel og að sundurgreina vandlega fyrri viðbrögð húsráðandans til að ákvarða hvernig best sé að hefja samræðurnar í endurheimsókninni. Látið, eftir því sem tíminn leyfir, hæfa boðbera sýna notkun tillagnanna í greininni.
25 mín: „Þjónaðu Jehóva truflunarlaust.“ Farið yfir efnið í viðaukanum með spurningum og svörum. Dragið skýrt fram aðalatriðin og lesið lykilritningarstaði eftir því sem tími gefst til.
Söngur 18 og lokabæn.