Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 7.93 bls. 2–6
  • Þjónustusamkomur fyrir júlí

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þjónustusamkomur fyrir júlí
  • Ríkisþjónusta okkar – 1993
  • Millifyrirsagnir
  • Vikan sem hefst 5. júlí
  • Vikan sem hefst 12. júlí
  • Vikan sem hefst 19. júlí
  • Vikan sem hefst 26. júlí
Ríkisþjónusta okkar – 1993
km 7.93 bls. 2–6

Þjónustusamkomur fyrir júlí

Vikan sem hefst 5. júlí

Söngur 68

5 mín: Staðbundnar tilkynningar. Hvetjið alla til að afla sér nægilegs magns rita og blaða og eiga fulla hlutdeild í boðunarstarfinu næstu helgi. Kynnið næsta dagskrárlið sem mun fjalla um bréf Félagsins til allra safnaða, dagsett 25. júní 1993.

18 mín: Umsjónarmaður í forsæti tekur á tveimur mínútum saman helstu atriðin í fyrstu fjórum greinunum í bréfinu til allra safnaða dagsett 25. júní 1993. Að því búnu ber ritari safnaðarins fram spurningarnar sem settar eru fram með feitu letri í bréfinu og umsjónarmaður í forsæti les hvert svar beint upp úr því. Þeir geta rætt stuttlega saman um þýðingu hvers svars. Leggið áherslu á að framleiðslukostnaður ritanna verður áfram hinn sami og mun vafalaust halda áfram að hækka með aukinni verðbólgu. Réttsinnað fólk mun af frjálsum vilja leggja fram fjármuni vegna þess að það metur að verðleikum þá andlegu fjársjóði sem er að finna í ritunum. Umsjónarmaður í forsæti lýkur atriðinu með tveggja mínútna yfirliti yfir lokagreinina í bréfinu frá 25. júní. Næsta dagskráratriði mun fjalla um hvernig bjóða á ritin í boðunarstarfinu.

22 mín: „Notum bæklingana af leikni í júlí.“ Nota skal hæfan öldung sem lesið hefur vandlega bréfið frá 25. júní til allra safnaða.

(5 mín.) STJÓRNANDI: Les tölugrein 1 til 7 í greininni í Ríkisþjónustu okkar á bls. 8. Hvetur alla til að nota þessi kynningarorð í júlí. Undirstrikar að kynningarorðin hér á eftir muni greinilega njóta blessunar Jehóva en þau kalli á vandlegan undirbúning og umhugsun af hálfu allra. Biður áheyrendurna að taka sérstaklega eftir hvernig ritin eru boðin með einfölduðu tilhöguninni. Í þessum inngangsorðum ætti að leggja áherslu á að bjóða má ritin, ef fólk sýnir áhuga, og einfaldlega segja: „Rit okkar eru boðin ókeypis en við munum fúslega þiggja smávegis framlag til starfs okkar.“

(4 mín.) Sýnikennsla. Látið reyndan brautryðjanda eða boðbera sýna notkun kynningarorðanna sem stungið er upp á í tölugrein 2 og 3. STJÓRNANDI: Leggðu áherslu á að mörgum boðberum gengur vel að stofna biblíunám með því að lesa efnisgrein úr smáriti og spyrja húsráðandann um skoðun hans á efninu. Áður en boðberinn kveður ætti hann að vekja áhuga á endurheimsókn með því að bera fram spurningu eins og: ‚Hvernig getum við treyst því að fyrirheit Biblíunnar um nýjan og réttlátan heim muni rætast?‘ [Gefa skal kost á svari.] Síðan segir boðberinn að hann muni með ánægju ræða svarið við spurningunni í næstu heimsókn.

(3 mín.) STJÓRNANDI: Hvernig getur boðberinn metið hvort áhugi sé til staðar? Ætla má að húsráðandinn hafi áhuga ef hann segir beint að hann hafi ánægju af að lesa ritin okkar, lætur í ljós skoðun á viðfangsefninu, fylgist með þegar við lesum úr Biblíunni, og þó einkum ef hann samþykkir að við komum aftur til að halda samræðunum áfram. Ef húsráðandinn sýnir nægilegan áhuga til þess að honum sé boðið rit gæti boðberinn sýnt ritið er fjallar um spurninguna sem áður var borin fram til að örva áhugann á endurheimsókn. Sýnikennsla. Við réttar aðstæður gæti boðberinn sagt: „Ef þú hefðir ánægju af að lesa þetta góða rit vildi ég gjarnan skilja það eftir hjá þér.“ Húsráðandinn spyr þá: „Hvað kostar það?“ Boðberinn svarar: „Starf okkar er ekki sölustarf. Það sem við erum að gera hér í dag er sjálfboðastarf sem fer fram í meira en 200 löndum um heim allan til þess að hjálpa fólki að kynnast veginum til eilífs lífs. Ef þú kærir þig um að leggja eitthvað fram til þessa starfs tek ég með ánægju við því.“ Húsráðandinn segir: „Ég skal gefa ___ krónur í þetta.“ Boðberinn lýkur samtalinu með því að þakka fyrir og setur peningana í umslag sem hann er með í því skyni.

(3 mín.) Sýnikennsla. Öldungur eða safnaðarþjónn kynnir blöðin fyrir manni. Bróðirinn ber fram spurningu varðandi efni ákveðinnar greinar í Varðturninum og getur síðan sagt ef húsráðandinn sýnir einhvern áhuga: „Ef þú myndir vilja lesa þessi tvö blöð væri mér ánægja að skilja þau eftir hjá þér.“ Húsráðandinn svarar: „Já, þakka þér fyrir. Ég hef áhuga á þessu efni.“ Bróðirinn segir: „Það gleður mig að geta fært þér þessar upplýsingar. Ég held að þér muni finnast efnið mjög fróðlegt. Ég myndi gjarnan vilja koma aftur í næstu viku og heyra álit þitt á því. Varðturninn er gefinn út á 112 tungumálum í upplagi sem nemur næstum 16.500.000 eintökum um heim allan. Starf þetta er kostað með frjálsum framlögum. Ef þú kærir þig um að gefa dálítið framlag til þessa fræðslustarfs væri okkur ánægja að taka við því.“ Húsráðandinn svarar: „Ég er ekki með neina smápeninga á mér núna, en kannski næst. Ég þakka fyrir blöðin.“ Bróðirinn segir: „Mín var ánægjan. Í næsta tölublaði Varðturnsins er borin fram spurningin: ‚Unglingar — eftir hverju keppið þið?‘ Ég mun líta við þegar það er komið út. Ég er viss um að einhverjir á heimilinu munu kunna að meta það efni.“

(7 mín.) STJÓRNANDI: Nefndu að hér hafi verið lagður grunnur að góðri blaðaleið. Sömu kynningarorð mætti nota í götustarfinu. Fáðu athugasemdir frá áheyrendum um hvernig boðberarnir buðu rit án þess að biðja um ákveðna upphæð fyrir þau. Undirstrikaðu að framlag er ekki skilyrði fyrir því að fólk geti fengið rit. Bentu á að blöðin voru látin í hendur einstaklingi sem var fús til að lesa þau þó að hann hafi ekki getað lagt nokkra fjármuni fram í það sinn. Við önnur tækifæri kunna einstaklingar, sem þiggja rit, að leggja fúslega fram peninga til starfs Guðsríkis. Í báðum tilvikum getum við verið mjög vinsamleg. Hins vegar ættum við ekki að bjóða þeim ritin sem sýna ekki áhuga. Tilgangur okkar er að boða fagnaðarerindið um ríki Guðs og gera menn að lærisveinum. Allir boðberar Guðsríkis munu venjast þessari breyttu kynningaraðferð og taka framförum með tímanum. Leggðu sérstaka áherslu á að við ‚erum ekki að pranga með Guðs orð.‘ (2. Kor. 2:17) Við treystum að Jehóva styðji þetta fyrirkomulag. Ljúktu með því að minna alla á það atriði sem fram kemur í annarri efnisgreininni í bréfinu frá 25. júní undir millifyrirsögninni „Hvernig munu ritin verða boðin úti á akrinum?“ „Árangur og ánægja í prédikunarstarfi okkar skyldi ekki mæld eftir fjölda rita sem dreift er eða hversu fjárframlögin til alþjóðaprédikunarstarfsins eru há. Öllu heldur ættum við að mæla árangurinn í boðunarstarfinu eftir þeim áhuga sem okkur tekst að vekja á voninni sem Guðsríki veitir og eftir því hve margt fólk við finnum sem kynni að nema Biblíuna með okkur.“

Söngur 106 og lokabæn.

Vikan sem hefst 12. júlí

Söngur 33

5 mín: Staðbundnar tilkynningar og tilkynningar frá Ríkisþjónustu okkar. Greinið frá ráðstöfunum til boðunarstarfsins næstu helgi.

25 mín: „Einfölduð tilhögun við dreifingu ritanna.“ Hæfur öldungur ræðir efni greinarinnar við áheyrendur. Öldungurinn getur einnig tekið með atriði frá bréfi Félagsins, dagsettu 25. júní 1993. Síðan sýnir vel undirbúinn og reyndur boðberi hvernig nota má upplýsingarnar, sem fram komu í þessu atriði, í boðunarstarfinu. Boðberinn notar þau tölublöð, sem boðin verða í boðunarstarfinu næstu helgi, og dregur húsráðanda inn í samræður um efni einnar greinar. Þegar boðberinn bendir á sérstakt atriði í blaðinu segir húsráðandinn: „Þetta virðist áhugavert.“ Boðberinn segir: „Mér væri ánægja að skilja blaðið eftir hjá þér svo að þú getir lesið þessa grein og aðrar í blaðinu.“ Húsráðandinn spyr: „Hvað kostar það?“ Boðberinn svarar: „Þér er velkomið að fá blaðið endurgjaldslaust ef þú ætlar að lesa það. Þú getur séð hér á útgefandasíðunni að þetta tímarit er liður í alþjóðlegri biblíufræðslu sem kostuð er með frjálsum framlögum. [Vísaðu til þess sem segir á blaðsíðu 4 í Vaknið! og neðarlega til hægri á blaðsíðu 2 í Varðturninum.] Ég er aðeins einn af meira en fjórum milljónum votta Jehóva sem leggja fram tíma sinn og efni í sjálfboðaþjónustu til að framkvæma þetta mikilvæga starf í meira en tvö hundruð löndum. Ef aðrir vilja láta eitthvert lítilræði af hendi rakna til þessa starfs þá er þeim það velkomið.“ Húsráðandinn gefur framlag og boðberinn setur peningana í umslag sem hann ber með sér í þeim tilgangi. Hann lætur í ljós þakklæti fyrir framlagið og segist munu koma við síðar með næstu tölublöð tímaritanna. Sýnið í annarri stuttri sýnikennslu hvernig boðberinn skilur ekki eftir rit vegna þess að húsráðandinn hefur í raun ekki áhuga á boðskapnum um Guðsríki þótt hann sé fús til að tala. Í þriðju stuttu sýnikennslunni skal sýna hvernig skilja má eftir smárit hjá einhverjum sem sýnir einlægan áhuga en er mjög upptekinn þá stundina og það virðist ekki viðeigandi eins og á stendur að útskýra hvernig starf okkar er fjármagnað. Boðberinn lofar að koma aftur þegar betur stendur á. Þegar hann kemur aftur mun hann leitast við að komast að raun um hvort húsráðandinn hafi raunverulegan áhuga á starfi okkar og, sé svo, þá útskýra eðli boðunarstarfs okkar og hvernig staðið er undir kostnaði við það.

15 mín: „Notum bæklinga til að leita uppi þá sem hafa áhuga.“ Spurningar og svör. Bæklingarnir, sem vísað er til í tölugrein 5, eru Ættum við að trúa á þrenninguna?, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur? og Stjórnin sem koma mun á paradís. Upplýsið söfnuðinn um hvaða bæklingar eru fáanlegir og biðjið um athugasemdir um hvaða bæklingar séu sérstaklega hentugir til að nota í þessum mánuði á svæði safnaðarins. Hvetjið bræðurna með eldmóði til að eiga fullan þátt í að bjóða bæklingana í júlí. Bendið einnig á að oft vilji fólk, sem þiggur bækling, gjarnan fá blöðin líka.

Söngur 30 og lokabæn.

Vikan sem hefst 19. júlí

Söngur 28

10 mín: Staðbundnar tilkynningar og guðveldisfréttir. Öldungur ræðir um þjónustuskýrslu safnaðarins fyrir júnímánuð og kemur með hrós og uppörvun. Ræðir einnig um eina eða tvær heppilegar leiðir til að kynna blöðin í starfinu næstu helgi.

20 mín: „Förum aftur til að örva áhuga fólks á Biblíunni.“ Að loknum stuttum inngangsorðum skal hafa sýnikennslu um endurheimsókn til einhvers sem sýndi áhuga en þáði ekki rit. Sýnið einnig hvernig heimsækja má aftur einstakling sem var of upptekinn til að eiga samtal við boðberann en þáði smáritið Mun þessi heimur bjargast? Sýnið í báðum tilvikum hvernig boðberinn kemur samræðunum af stað og örvar áhugann.

15 mín: „Getur þú gert það?“ Ræðið efnið við áheyrendur. Hafið viðtal við einn eða tvo reglulega brautryðjendur eða einn eða tvo boðbera sem þjóna sem aðstoðarbrautryðjendur af og til. Látið þá segja frá því hvernig þeir tóku þá ákvörðun að gera meira og hvernig þeir skipuleggja starfsemi sína.

Söngur 109 og lokabæn.

Vikan sem hefst 26. júlí

Söngur 95

10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Minnið alla á að rifja upp efnið í greininni „Hafðu fullt gagn af landsmótinu ‚Kennsla Guðs‘“ í Ríkisþjónustu okkar fyrir maí. Hvetjið einkum foreldra til að fara yfir viðeigandi atriði með börnum sínum áður en mótsdagarnir renna upp.

15 mín: „Metum ritin að verðleikum.“ Spurningar og svör. Hafið sýnikennslu þar sem boðberi er í blaðastarfinu. Húsráðandi sýnir áhuga á upplýsingunum frá Biblíunni og lýsingunni á blöðunum og segist munu lesa þau. Þá segir boðberinn: „Ég trúi því að þú munir hafa gagn af þeim eins og margir aðrir hafa haft. Þessum blöðum er dreift um allan heiminn og Varðturninn er fáanlegur á 112 tungumálum. Þetta starf er kostað með frjálsum framlögum. Við þiggjum gjarnan smá framlög frá þeim sem vilja styðja þetta starf.“ Ekki ætti að tala þannig um fjármögnun starfsins að húsráðandanum finnist hann skuldbundinn til að láta fé af hendi rakna.

20 mín: „Notum vel Varðturninn og Vaknið!“ Spurningar og svör. Hjálpið öllum til að gera sér ljós og nýta þau mörgu tækifæri sem daglega gefast til að útbreiða blöðin, bæði nýjustu tölublöðin og þau sem eldri eru.

Söngur 20 og lokabæn.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila