Þjónustusamkomur fyrir júní
Vikan sem hefst 7. júní
Söngur 61
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Vekið athygli á og farið stuttlega yfir „Minnisatriði fyrir sumarið.“ Sýnið gildi þess að hafa blöð við höndina til að nota við óformlegan vitnisburð.
15 mín: „Hjálpum öðrum að sjá að Guð ber í raun umhyggju fyrir okkur.“ Rætt um efnið með spurningum og svörum. Hvetjið boðberana til að nota bæklingana eins mikið og hægt er á næstu mánuðum. Hvetjið ungmennin til að nota skólafríið viturlega og vera óhrædd við að bera vitni um trú sína.
20 mín: „Notum smárit til að kynna bæklinga.“ Efnið rætt við áheyrendur. Hafið tvær vel undirbúnar sýnikennslur. Í þeirri fyrri ætti að nota tillöguna sem sett er fram í tölugrein 2. Þegar boðberinn hefur kynnt smáritið kemst hann að raun um að húsráðandinn hefur lítinn sem engan áhuga og ákveður því að bjóða honum eitt blað í stað þess að nota bækling. Í seinni sýnikennslunni skyldi nota sömu kynningarorðin og í tölugrein 2 en í þetta sinn sýnir húsráðandinn áhuga. Boðberinn heldur þá áfram samtalinu, kynnir bæklinginn Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur? og býður húsráðanda. Vekur athygli hans á efni í bæklingnum og ber fram spurningu sem hann segist gjarnan vilja svara næst þegar hann komi í heimsókn. Minnið boðberana á nauðsyn þess að láta ekki dragast að fara í endurheimsóknir.
Söngur 4 og lokabæn.
Vikan sem hefst 14. júní
Söngur 17
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Komið með tillögur um hvernig bjóða megi nýjustu blöðin. Tillögurnar ættu að vera raunhæfar og stuttorðar.
15 mín: Spurningakassinn. Ræða öldungs. Vekið athygli á þeirri ábyrgð okkar að hegða okkur á réttan og viðeigandi hátt þegar við erum viðstödd skírnarathöfn. Takið með skyld atriði frá spurningakassanum í Ríkisþjónustu okkar fyrir desember 1991.
20 mín: „Hvers vegna smárit eru svona verðmæt í þjónustu okkar núna.“ Efnið rætt með spurningum og svörum. Hafið, eftir síðustu tölugreinina, stutta sýnikennslu sem sýnir hversu auðvelt það í raun og veru er að nota smáritin þegar við berum óformlega vitni.
Söngur 15 og lokabæn.
Vikan sem hefst 21. júní
Söngur 10
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Nefnið mest áberandi atriðin í þjónustuskýrslunni fyrir marsmánuð. Nefnið einnig hver var hlutdeild safnaðarins á staðnum í þjónustuskýrslu þess mánaðar. Lesið upp reikningshaldsskýrsluna. Farið hrósunarorðum um hvernig meðlimir safnaðarins standa undir útgjöldun hans og styðja einnig alþjóðastarf Félagsins.
15 mín: „Hvernig hefja má biblíunám með því að nota bæklingana.“ Efnið rætt með spurningum og svörum. Eftir að farið hefur verið yfir tölugrein 2 skal hafa vel undirbúna sýnikennslu um hvernig stofna megi biblíunám í bæklingnum Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur? Boðberinn fylgir tillögunum í tölugrein 2. Viðbrögð húsráðandans ættu að vera í samræmi við það sem almennt gerist á svæði safnaðarins. Umsjónarmaður lýkur atriðinu með því að hvetja boðberana til að leitast við að nota tillögur Ríkisþjónustu okkar og skiptast á skoðunum og frásögnum um hvaða aðferðir reynist einkum vel á svæði safnaðarins.
20 mín: Ræða um sköpun, byggð á Rökræðubókinni, blaðsíðu 84-8 (í ensku útgáfunni). Ræðumaður ætti að gæta þess að velja ekki fleiri atriði til umfjöllunar en hann getur gert góð skil á hinum úthlutaða tíma.
Söngur 107 og lokabæn.
Vikan sem hefst 28. júní
Söngur 16
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Guðveldisfréttir. Vekið athygli á fáeinum atriðum í nýjustu blöðunum er nota mætti sem umræðugrundvöll í starfinu hús úr húsi eða þegar borið er vitni á óformlegan hátt.
20 mín: „Verum regluleg í boðunarstarfinu.“ Ræða flutt af starfshirði eða öðrum hæfum bróður. Rifjið upp upplýsingar í bókinni Organized to Accomplish Our Ministry (Þjónustubókinni) á blaðsíðu 106-10 eftir því sem tíminn leyfir. Leggið áherslu á nauðsyn þess að allir taki reglulega þátt í boðunarstarfinu á akrinum og láti ekki dragast að skila inn starfsskýrslu strax og nánuðinum er lokið.
15 mín: Staðbundnar þarfir. Fara mætti yfir atriði sem söfnuðurinn þarf sérstaklega að gefa gaum að samkvæmt því sem farandhirðirinn benti á í skýrslu sinni síðast þegar hann heimsótti söfnuðinn, eða fjalla mætti um annað efni sem mætir sérþörfum safnaðarins.
Söngur 105 og lokabæn.