Blessun brautryðjandastarfsins
„Blessun [Jehóva], hún auðgar, og erfiði mannsins bætir engu við hana.“ — ORÐSKVIÐIRNIR 10:22.
1, 2. (a) Hvað sagði brautryðjandi nokkur um þjónustu í fullu starfi? (b) Af hverju eru brautryðjendur í aðstöðu til að njóta meiri gleði af því að gera menn að lærisveinum?
„ER HÆGT að hugsa sér meiri gleði en þá að sjá manneskju, sem maður hefur haft í biblíunámi, verða boðberi Jehóva? Það er hrífandi og trústyrkjandi að sjá hvernig orð Guðs getur hvatt fólk til að breyta lífi sínu svo að það þóknist Jehóva.“ Þetta skrifaði brautryðjandi frá Kanada sem hefur þjónað í fullu starfi í meira en 32 ár. Hann segir um brautryðjandastarf sitt: „Ég get ekki hugsað mér að gera nokkuð annað. Ég get að minnsta kosti ekki ímyndað mér að nokkuð annað veiti jafnmikla gleði.“
2 Ertu sammála því að það sé mikill gleðigjafi að eiga þátt í að hjálpa einhverjum öðrum inn á veginn til lífsins? Brautryðjendur eru auðvitað ekki einir um að njóta slíkrar gleði. Allir þjónar Jehóva eiga að ‚gera menn að lærisveinum‘ og þeir gera sitt ítrasta til þess. (Matteus 28:19) En þar eð brautryðjendur geta varið miklum tíma til boðunarstarfsins eru þeir oft í aðstöðu til að hafa meiri gleði en aðrir af því að gera menn að lærisveinum. En brautryðjandastarf hefur ýmis önnur laun í för með sér. Ef þú talar við brautryðjendur kemstu að raun um að brautryðjandastarfið er afbragðsleið til að njóta ‚blessunar Jehóva sem auðgar.‘ — Orðskviðirnir 10:22.
3. Hvað gæti hvatt okkur í þjónustunni við Jehóva?
3 Fyrir skömmu voru brautryðjendur úr ýmsum heimshlutum beðnir að lýsa þeirri blessun sem þeir hafa notið í starfi sínu. Hvað skyldu þeir hafa sagt? En vertu ekki niðurdreginn þótt þjónusta þín sé takmörkuð sökum heilsubrests, aldurs eða annarra aðstæðna. Mundu að það sem skiptir máli er að þjóna Jehóva af allri sálu í hverju því sem þú getur. En ábendingar sumra brautryðjendanna geta kannski aukið áhuga þinn á því að leggja út í þetta gefandi starf ef þess er nokkur kostur.
Djúp gleði og lífsfylling
4, 5. (a) Af hverju er það svona gefandi starf að segja öðrum frá fagnaðarerindinu? (b) Hvað finnst brautryðjendum um þjónustu sína?
4 „Sælla er að gefa en þiggja,“ sagði Jesús. (Postulasagan 20:35) Já, óeigingirni og gjafmildi hefur umbun í för með sér, sérstaklega þegar um er að ræða að koma fagnaðarerindinu á framfæri við aðra. (Orðskviðirnir 11:25) Það er varla hægt að gefa meiri gjöf en þá að hjálpa öðrum manni að afla sér þekkingar á Guði sem leiðir til eilífs lífs. — Jóhannes 17:3.
5 Það kemur ekki á óvart að þeir sem þjóna í fullu starfi skuli minnast oft á þá gleði og lífsfyllingu sem þeir hafi af starfi sínu. „Ég veit ekki af nokkru öðru starfi sem gæti hafa veitt mér þá ánægju sem ég hef af því að segja öðrum frá sannleikanum,“ segir 64 ára brautryðjandi frá Bretlandi. Ekkja í Saír segir hvaða þýðingu brautryðjandastarfið hefur haft fyrir hana: „Brautryðjandastarfið var mér mikil huggun eftir að ég missti manninn minn. Því meir sem ég fer út í starfið til að hjálpa öðrum, þeim mun minna finn ég fyrir missinum. Ég set trú mína á loforð Jehóva og hugsa aðallega um hvernig ég geti hjálpað þeim sem ég er að kenna til að breyta lífi sínu. Ég sef vært á hverri nóttu og hjarta mitt er fullt af gleði.“
6. Hvaða sérstakrar gleði hafa sumir brautryðjendur notið?
6 Sumir, sem hafa verið brautryðjendur um áratuga skeið, hafa orðið þeirrar sérstöku gleði aðnjótandi að þjóna á afskekktum svæðum og stofna söfnuði sem urðu smám saman að heilum farandsvæðum. Í Abashiri á Hokkaídó, nyrstu eyju Japans, er systir sem hefur verið brautryðjandi í 33 ár. Hún minnist þess að á fyrsta svæðismótinu — fyrir alla Hokkaídó — voru aðeins 70 viðstaddir. Og núna? Nú eru 12 farandsvæði á eynni og meira en 12.000 boðberar samanlagt. Hugsaðu þér hve hjarta hennar hlýtur að vera barmafullt af gleði þegar hún sækir svæðismót og umdæmismót ásamt stórum hópum annarra boðbera Guðsríkis á eynni!
7, 8. Hvaða gleði hafa flestir notið sem verið hafa brautryðjendur lengi?
7 Aðrir, sem verið hafa brautryðjendur um margra ára skeið, hafa notið þeirrar gleði að sjá biblíunemendur skírast og sækjast síðan eftir auknum þjónustusérréttindum. Systir í Japan hefur þjónað á níu mismunandi brautryðjandasvæðum frá 1957, og hún minnist þess að hafa einu sinni látið unga konu, sem vann í banka, fá tímaritið Vaknið! Unga konan var skírð innan níu mánaða. Síðar giftist hún og þau hjónin urðu sérbrautryðjendur. Þegar áðurnefnd systir var að sinna þriðja brautryðjandaverkefni sínu heimsótti nýr farandhirðir söfnuðinn ásamt eiginkonu sinni — sem reyndist vera fyrrverandi biblíunemandi hennar. Þú getur rétt ímyndað þér gleði þessarar brautryðjandasystur!
8 Það er ekkert undarlegt að þeir sem hafa gert brautryðjandastarfið að ævistarfi skuli líta á það sem „óviðjafnanleg sérréttindi og fjársjóð“ eins og bróðir orðaði það eftir 22 ára brautryðjandastarf.
Merki um umhyggju Jehóva
9. Hverju heitir Jehóva þjónum sínum og hvað þýðir það fyrir okkur?
9 Jehóva sér þjónum sínum fyrir öllu sem þeir þurfa og lofar að halda þeim uppi bæði andlega og efnislega. Davíð konungur til forna gat vel sagt: „Ungur var ég og gamall er ég orðinn, en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn né niðja hans biðja sér matar.“ (Sálmur 37:25) Þetta loforð Guðs leysir okkur auðvitað ekki undan þeirri skyldu að sjá efnislega fyrir fjölskyldum okkar, og það gefur okkur ekki heimild til að notfæra okkur örlæti kristinna bræðra. (1. Þessaloníkubréf 4:11, 12; 1. Tímóteusarbréf 5:8) En Jehóva yfirgefur okkur aldrei ef við færum fúslega fórnir til að þjóna honum betur. — Matteus 6:33.
10, 11. Hvað þekkja margir brautryðjendur af reynslunni um getu Jehóva til að sjá fyrir þeim?
10 Brautryðjendur um heim allan vita af reynslunni að Jehóva sér fyrir þeim sem treysta á umhyggju hans. Tökum sem dæmi brautryðjendahjón er fluttust í lítinn bæ þar sem vantaði fleiri boðbera Guðsríkis. Eftir fáeina mánuði varð vinnan stopul og spariféð gekk til þurrðar. Þá fengu þau reikning upp á 81 dollar fyrir bílatryggingu. „Við gátum með engu móti borgað hann,“ segir bróðirinn. „Við báðum mjög ákaft þetta kvöld.“ Næsta dag fengu þau kort frá fjölskyldu sem átti sjálf í fjárhagserfiðleikum. Þau höfðu fengið endurgreiðslu á skatti, og þar eð endurgreiðslan var hærri en þau höfðu búist við vildu þau láta brautryðjendahjónin njóta góðs af. Kortinu fylgdi ávísun að upphæð 81 dollari! „Ég gleymi aldrei þessum degi — hárin risu á hnakkanum af geðshræringu!“ segir bróðirinn. „Við vorum svo þakklát fyrir örlæti þessarar fjölskyldu.“ Jehóva kann líka að meta slíka góðvild sem er einkennandi fyrir það örlæti sem hann hvetur þjóna sína til að sýna. — Orðskviðirnir 19:17; Hebreabréfið 13:16.
11 Margir brautryðjendur hafa frá einhverju svipuðu að segja. Ef þú spyrð þá segja þeir að þeir hafi aldrei verið ‚yfirgefnir.‘ Sjötíu og tveggja ára brautryðjandi lítur um öxl eftir 55 ára feril í fullu starfi og segir: „Jehóva hefur aldrei brugðist mér.“ — Hebreabréfið 13:5, 6.
„Afbragðsleið til að efla tengslin við Jehóva“
12. Af hverju er boðun fagnaðarerindisins svona einstök sérréttindi?
12 Það eru sérréttindi að Jehóva skuli yfirleitt biðja okkur að boða fagnaðarerindið um ríkið. Hann lítur á okkur — þótt ófullkomin séum — sem „samverkamenn“ sína í þessu björgunarstarfi. (1. Korintubréf 3:9; 1. Tímóteusarbréf 4:16) Þegar við prédikum Guðsríki fyrir öðrum, þegar við boðum endalok illskunnar, þegar við útskýrum fyrir fólki hinn dásamlega kærleika hans að sjá fyrir lausnargjaldinu, þegar við opnum hið lifandi orð hans og kennum hjartahreinu fólki þau dýrmætu sannindi sem það geymir, þá eflum við sjálfkrafa tengslin við skapara okkar, Jehóva. — Sálmur 145:11; Jóhannes 3:16; Hebreabréfið 4:12.
13. Hvað segja sumir um áhrif brautryðjandastarfsins á samband sitt við Jehóva?
13 Brautryðjendur geta notað mikinn tíma í hverjum mánuði til að læra um Jehóva og fræða fólk um hann. Hvaða áhrif finnst þeim það hafa á samband sitt við Guð? „Brautryðjandastarfið er afbragðsleið til að efla tengslin við Jehóva,“ svarar öldungur í Frakklandi sem hefur verið brautryðjandi í meira en tíu ár. Annar brautryðjandi þar í landi, sem hefur þjónað 18 ár í fullu starfi, segir: „Brautryðjandastarfið gefur okkur tækifæri til að ‚finna og sjá að Jehóva er góður‘ og byggja upp æ sterkara samband við skapara okkar dag frá degi.“ (Sálmur 34:9) Systur á Bretlandi, sem verið hefur brautryðjandi í 30 ár, er eins innanbrjósts. „Það styrkir samband mitt við Jehóva að þurfa að notfæra mér anda hans til leiðsagnar í starfi mínu,“ segir hún. „Ég hef virkilega fundið fyrir því að andi Jehóva hefur margoft vísað mér á ákveðin heimili á réttum tíma.“ — Samanber Postulasöguna 16:6-10.
14. Hvaða gagn hafa brautryðjendur af því að nota Biblíuna og biblíutengd rit dag eftir dag til að kenna öðrum?
14 Margir brautryðjendur vita af reynslunni að þekking þeirra á orði Guðs eykst við það að nota Biblíuna og biblíutengd rit dag eftir dag til að útskýra og kenna biblíuleg sannindi. Áttatíu og fimm ára bróðir á Spáni, sem verið hefur brautryðjandi í 31 ár, segir: „Brautryðjandastarfið hefur hjálpað mér að fá dýpri þekkingu á Biblíunni, þekkingu sem ég hef notað til að hjálpa mörgum öðrum til að kynnast Jehóva og tilgangi hans.“ Systir á Bretlandi, með 23 ára brautryðjandastarf að baki, segir: „Boðun fagnaðarerindisins í fullu starfi hefur hjálpað mér að byggja upp góða, andlega matarlyst.“ Að útskýra fyrir öðrum ‚rökin fyrir voninni, sem í þér er,‘ getur styrkt sannfæringu þína varðandi trúna sem er þér svo kær. (1. Pétursbréf 3:15) Brautryðjandi í Ástralíu segir: „Brautryðjandastarfið eflir trú mína þegar ég tjái mig fyrir öðrum.“
15. Hvað hafa margir verið fúsir til að gera til að verða brautryðjendur og halda því áfram, og hvers vegna?
15 Ljóst er að þessir brautryðjendur eru sannfærðir um að þeir hafi valið sér þjónustugrein sem veitir þeim ómælanlega blessun frá Jehóva. Það er engin furða að margir hafa verið fúsir til að hagræða lífi sínu þannig að þeir gætu gerst brautryðjendur og haldið því áfram, og jafnvel fórnað veraldlegum starfsframa og efnislegum auði til þess. — Orðskviðirnir 28:20.
Þráir hjarta þitt að gera meira?
16, 17. (a) Hvað geturðu gert ef þú ert að velta fyrir þér hvort þú getir gerst brautryðjandi? (b) Hvernig líður sumum sem geta ekki verið brautryðjendur?
16 Eftir að hafa skoðað það sem brautryðjendur segja um blessun brautryðjandastarfsins veltirðu kannski fyrir þér hvort þú getir gerst brautryðjandi. Ef svo er, hví ekki að tala við brautryðjanda sem hefur verið farsæll í starfi? Það gæti líka verið hjálplegt að ræða við einn af öldungunum í söfnuðinum, einhvern sem þekkir þig — heilsufar þitt, takmörk þín og fjölskylduábyrgð. (Orðskviðirnir 15:22) Raunsæjar ábendingar annarra geta auðveldað þér að meta hvort þú getir gerst brautryðjandi. (Samanber Lúkas 14:28.) Þú uppskerð ríkulega blessun ef þú getur gerst brautryðjandi. — Malakí 3:10.
17 En hvað um hina mörgu, trúföstu boðbera Guðsríkis sem eru ekki í aðstöðu til að starfa sem brautryðjendur þótt þá langi til að gera meira í boðunarstarfinu? Lítum til dæmis á hvernig systur nokkurri er innanbrjósts sem er að basla við að ala upp fjögur börn ein síns liðs. „Ég er döpur,“ segir hún, „vegna þess að ég var reglulegur brautryðjandi áður, en núna eru aðstæður þannig að ég get ekki farið eins mikið út í boðunarstarfið og ég var vön.“ Þessari systur þykir innilega vænt um börnin sín og vill sjá vel fyrir þeim. Samtímis þráir hún að gera meira í boðunarstarfinu. „Ég hef yndi af starfinu,“ segir hún. Öðrum dyggum kristnum mönnum er eins innanbrjósts því að kærleikur þeirra til Jehóva veldur því að þá langar til að þjóna honum „af öllu hjarta.“ — Sálmur 86:12.
18. (a) Hvers væntir Jehóva af okkur? (b) Af hverju ættum við ekki að vera niðurdregin ef aðstæður takmarka það sem við getum gert?
18 Mundu að Jehóva væntir þess að við þjónum sér af allri sálu. Það er einstaklingsbundið hve mikið það er. Sumir geta hagað málum sínum þannig að þeir geti starfað sem reglulegir brautryðjendur. Margir aðrir gerast aðstoðarbrautryðjendur, annaðhvort af og til eða að staðaldri, og eru 60 klukkustundir í mánuði í boðunarstarfinu. Langflestir þjónar Jehóva eru hins vegar safnaðarboðberar og prédika og kenna af allri sálu sem slíkir. Vertu því ekki niðurdreginn ef heilsa, aldur, fjölskylduábyrgð eða annað takmarkar það sem þú getur gert. Svo lengi sem þú gerir þitt besta er þjónusta þín verðmæt í augum Guðs, alveg eins og þjónusta þeirra sem eru boðberar í fullu starfi!
Allir geta sýnt anda brautryðjandans
19. Hvað er brautryðjandaandi?
19 Þú getur sýnt anda brautryðjandans enda þótt þú getir ekki starfað sem brautryðjandi. Hvað er brautryðjandaandi? Ríkisþjónusta okkar í júlí 1988 sagði: „Skilgreina mætti hann sem jákvætt viðhorf til þeirra fyrirmæla að prédika fagnaðarerindið og gera menn að lærisveinum, gefa sig allan að því að sýna fólki kærleika og umhyggju, vera fórnfús, finna gleði í því að fylgja vel í fótspor meistarans, og gleðjast mjög yfir andlegum hlutum, ekki efnislegum.“ Hvernig getur þú sýnt brautryðjandaanda?
20. Hvernig geta foreldrar sýnt anda brautryðjandans?
20 Ef þú ert foreldri með ung börn á framfæri geturðu hvatt þau af öllu hjarta til að gerast brautryðjendur. Jákvæð afstaða þín til boðunarstarfsins getur innprentað þeim hve nauðsynlegt sé að láta þjónustuna við Jehóva ganga fyrir öllu öðru í lífinu. Þú gætir boðið brautryðjendum og farandumsjónarmönnum ásamt eiginkonum í heimsókn þannig að börnin geti notið góðs af fordæmi þeirra sem hafa yndi af því að þjóna í fullu starfi. (Samanber Hebreabréfið 13:7.) Jafnvel á trúarlega skiptum heimilum getur trúað foreldri, bæði í orðum og gerðum, hjálpað börnunum að setja sér það markmið að þjóna Jehóva í fullu starfi. — 2. Tímóteusarbréf 1:5; 3:15.
21. (a) Hvernig getum við öll stutt brautryðjendurna? (b) Hvað geta öldungar gert til að hvetja brautryðjendurna?
21 Í söfnuðinum getum við öll stutt dyggilega við bakið á þeim sem eru brautryðjendur. Gætirðu til dæmis gert þér far um að starfa með brautryðjanda, einkum á tímum sem hann þyrfti að öðrum kosti að starfa einn? Það gæti reynst ykkur báðum ‚sameiginleg uppörvun.‘ (Rómverjabréfið 1:11, 12) Ef þú ert öldungur geturðu jafnvel gert enn meira til að hvetja brautryðjendurna. Þegar öldungaráðið kemur saman ætti það með reglulegu millibili að fjalla um þarfir brautryðjendanna. Þegar brautryðjandi er niðurdreginn eða á í einhverjum erfiðleikum ættir þú ekki að mæla með því í fljótræði að hann hætti brautryðjandastarfi. Enda þótt slíkt geti verið nauðsynlegt í sumum tilvikum má ekki gleyma að brautryðjandastarfið er dýrmæt sérréttindi sem geta verið brautryðjandanum mjög kær. Kannski þarf ekki meira til en örlitla hvatningu og nokkur raunhæf ráð eða aðstoð. Í bréfi frá útibúi Félagsins á Spáni segir: „Þegar öldungar hvetja til brautryðjandastarfs, styðja brautryðjendurna í boðunarstarfinu og fara reglulega í hirðisheimsóknir til þeirra eru brautryðjendurnir glaðari, finnst þeir koma að gagni og vilja halda áfram þrátt fyrir hindranir sem verða í veginum.“
22. Hverju ættum við að vera staðráðin í á þessum háskatímum mannkynssögunnar?
22 Við lifum á háskatímum í sögu mannkynsins. Jehóva hefur falið okkur björgunarstarf. (Rómverjabréfið 10:13, 14) Hvort sem við getum unnið að því í fullu starfi sem brautryðjendur eða ekki skulum við hafa anda brautryðjandans. Við skulum vera fórnfús og hafa á tilfinningunni að mikið liggi á. Verum staðráðin í að gefa Jehóva það sem hann biður okkur um — þjónustu af allri sálu. Og munum að þegar við gefum allt sem við getum, hvort sem það líkist smápeningum ekkjunnar eða dýru olíunni hennar Maríu, þá erum við að þjóna af allri sálu og Jehóva metur mikils þjónustu af allri sálu!
Manstu?
◻ Af hverju veitir brautryðjandastarf bæði lífsfyllingu og gleði?
◻ Hvað þekkja margir brautryðjendur af reynslu sinni um getu Jehóva til að sjá fyrir þjónum sínum?
◻ Hvaða áhrif finnst brautryðjendum starf sitt hafa á samband sitt við Jehóva?
◻ Hvernig geturðu sýnt brautryðjandaanda?
[Mynd á blaðsíðu 18]
Brautryðjendur hafa mikla gleði af því að gera menn að lærisveinum.
[Mynd á blaðsíðu 18]
Börnin þín geta haft gott af því að umgangast boðbera í fullu starfi.
[Mynd á blaðsíðu 18]
Öldungar geta hvatt brautryðjendur í boðunarstarfinu.