Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w95 1.8. bls. 7–9
  • Þeir öðlast gleði sem finna sannleikann

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þeir öðlast gleði sem finna sannleikann
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Sannar kenningar Biblíunnar veita gleði
  • Sannar meginreglur Biblíunnar veita gleði
  • Rækta þarf gleðina
  • Þegar makinn er ótrúr
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2010
  • ,Göngum á vegi sannleikans‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2022
  • Njóttu gleðinnar af því að gefa!
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2001
  • Gleði – eiginleiki sem við fáum frá Guði
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2018
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
w95 1.8. bls. 7–9

Þeir öðlast gleði sem finna sannleikann

FINNSKUR maður fann bókina Aldaáætlun Guðs uppi á háalofti hjá sér. Hann byrjaði að lesa hana þegar í stað og eftir skamma stund sagði hann við sjálfan sig: ‚Þetta er sannleikurinn, þetta er sannleikurinn.‘ Þegar hann kom niður af háaloftinu sagði hann við konuna sína: „Ég hef fundið hina sönnu trú.“

Þessi maður fann sannleikann með dálítið óvenjulegum hætti, en reyndar gætu margir vottar Jehóva sagt frá svipuðum viðbrögðum. Allir geta þeir sagt frá þeirri gleði sem það veitir að finna sannleikann. Eftirfarandi frásögur bera vitni um það.

Sannar kenningar Biblíunnar veita gleði

Margarita Königer ólst upp í München í Þýskalandi á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar þar sem sundursprengd og brennandi hús voru algeng sjón. Bróðir hennar dó í stríðinu. Þegar hún sótti messur í kaþólsku kirkjunni heyrði hún beðið fyrir þýskum hermönnum og foringjanum Hitler. Eftir stríðið fékk hún námsstyrk til að sækja háskóla í Bandaríkjunum sem skiptinemi. Hún komst að raun um að fólk var vingjarnlegt við hana þar og hún fór að velta fyrir sér hvað fengi fólk, sem er eðlilegt að vilja búa í friði, til að vantreysta og hata hvert annað í stríði. Eftir að hún kom aftur heim til München komst hún í samband við votta Jehóva og fékk svör við spurningum sínum með því að nema Biblíuna með þeim. Hún segir: „Mér var sýnt í Biblíunni að illar andaverur ættu hlut að máli . . . Biblían kallar þá ‚heimsdrottna‘ og segir jafnvel að Satan ‚afvegaleiði alla heimsbyggðina.‘ . . . Í ljósi hinna óguðlegu og djöfullegu verka þjóða og manna er þetta svar bæði skynsamlegt og fullnægjandi.“ — Efesusbréfið 6:12; Opinberunarbókin 12:9.

Margarita heldur áfram: „Það veitti mér mikla gleði að læra um ráðstafanir Guðs til að leysa vandamál jarðar. Það verður ekki gert með einhverri hugmyndafræði eða stjórn manna, eins og lærðir menn heimsins stinga upp á. Biblían sýnir að ný himnesk stjórn mun taka málefni jarðarinnar í sínar hendur. . . . Jesús Kristur kenndi fylgjendum sínum að biðja: ‚Til komi þitt ríki.‘ . . . Mér varð ljóst að þetta ríki er raunveruleg stjórn og að það er eina leiðin til að koma á sönnum friði um heim allan.“ Margarita hefur þjónað sem trúboði í næstum 30 ár í einum fimm Afríkulöndum, og hefur notað síðastliðin 19 ár til að boða auðmjúkum mönnum í Óagadógó í Búrkína Fasó sannleikann.

Reynsla Margaritu er ekkert einstök. Margir hafa hafa brugðist jafnjákvætt við þegar þeir hafa komist að raun um að klerkar kristna heimsins beggja vegna víglínunnar biðja Guð um sigur í stríði. Hjartahreinir menn sjá hve skynsamleg sú skýring Biblíunnar er að Guð komi ekki nálægt styrjöldum mannanna heldur að þær brjótist út vegna þess að „allur heimurinn er á valdi hins vonda.“ Þeir sem leita sannleikans komast að raun um að sannkristnir menn eiga ekki að tilheyra heiminum heldur vera hlutlausir gagnvart málefnum hans. Þegar áhugasamt fólk uppgötvar að vottar Jehóva hafa tekið slíka afstöðu sannfærist það um að það hafi fundið sannleikann. Gleði þess og von vex samfara aukinni þekkingu á því hvers vegna Guð hefur leyft illskuna og hvernig hann mun bráðlega koma á friði og réttlæti á jörðinni fyrir atbeina ríkis síns. — 1. Jóhannesarbréf 5:19; Jóhannes 17:16; Matteus 6:9, 10.

Sannar meginreglur Biblíunnar veita gleði

Daniel Rosero frá Ekvador fannst lífið tilgangslaust svo að hann byrjaði að drekka. Í kirkjunni, sem hann sótti, var honum kennt að það eina sem hann ætti í vændum væri dauði og logandi helvíti. Hann hugsaði með sér: „Það er þá best að drekka bara fyrst ég á að brenna!“ Hann átti eiginkonu og sjö börn, sem hann sá ekki farborða, og átti í stöðugu rifrildi við Deliu, eiginkonu sína. Sunnudagsmorgun einn, þegar vottar Jehóva heimsóttu þau og hófu með þeim biblíunám, urðu straumhvörf í lífi þeirra. Þegar Daniel sótti svæðismót votta Jehóva í fyrsta sinn gerði hann sér ljóst að hann hefði fundið sannleikann. Hann segir: „Ég varð gagntekinn af skipulaginu. Fólki kom vel saman. Maður fann fyrir kærleikanum meðal mannfjöldans. Enginn reykti. Enginn var með ljótan munnsöfnuð. . . . Ég man að ég hugsaði með mér: ‚Þetta er sannleikurinn!‘ Það var ekki ótti við dauðann eða ótti við heimsendi sem ýtti á mig. Það var hreinleiki skipulagsins.“

Rosero-fjölskyldan eins og hún lagði sig gerðist vottar Jehóva. Fjölskyldulífið og fjárhagurinn batnaði þegar þau fóru eftir meginreglum Biblíunnar. Delia Rosero segir: „Þetta er allt sannleika Biblíunnar að þakka. Hver veit hvað orðið hefði um börnin mín ef þau hefðu ekki kynnst orði Guðs? Öll sjö eru skírð og staðföst í trúnni. Sannleikurinn hefur gerbreytt lífi mínu og gert mig hamingjusama.“

Reynsla Rosero-fjölskyldunnar er ekkert einsdæmi. Margir eiga við vandamál að etja nú á tímum, meðal annars vegna þess að siðferðisstaðlar Biblíunnar eru yfirleitt ekki virtir lengur eins og var meðal fyrri kynslóða. Flest trúarbrögð hafa fylgt straumnum, annaðhvort í nafni umburðarlyndis eða af því að þeim þóttu gömul siðaboð úrelt með breyttum tímum. Rosero-fjölskyldan fálmaði því í myrkri eins og margir aðrir, af því að hún hafði ekki Biblíuna að leiðarljósi. En þegar slíkt auðmjúkt fólk skilur afstöðu Guðs til siðferðismála og fjölskyldulífs fer það tafarlaust eftir því sem það lærir. Saga þess sýnir hve góðum árangri það skilar.

Rækta þarf gleðina

Þetta þýðir þó ekki að kristinn maður sé í stöðugri sæluvímu. Kristnir menn fara auðvitað ekki varhluta af erfiðleikum fólks almennt, svo sem atvinnuleysi, veikindum og dauða. Þeir þurfa líka að heyja stöðuga baráttu gegn ófullkomleika sínum og veikleikum. Frásaga Biblíunnar segir að Lot hafi ‚mæðst af svívirðilegum lifnaði hinna guðlausu‘ í borginni Sódómu. Trúfastir kristnir menn geta ekki umflúið slíka líðan þegar þeir horfa á illskuna vaða uppi í kringum sig. — 2. Pétursbréf 2:7, 8.

En þeir sem hafa fundið sannleikann standa þó betur að vígi en hinir. Trúaður maður, sem syrgir látinn ástvin, þarf ekki að vera ‚hryggur eins og hinir, sem ekki hafa von.‘ Sorgin verður ekki hamslaus. Hið sama gildir um önnur vandamál. Sá sem hefur fundið sannleikann veit að yfirstandandi erfiðleikar eru aðeins tímabundnir. Vonin auðveldar honum að þrauka. Jafnvægi í lífsháttum gerir líka sitt. — 1. Þessaloníkubréf 4:13.

Páll hvatti kristna menn: „Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.“ (Filippíbréfið 4:4) Þetta sýnir að þótt allir geti verið glaðir er það ekki sjálfgefið. Áhyggjur þessa gamla heimskerfis gætu verið þrándur í götu. Auk þess segir Biblían okkur að við þurfum að rækta með okkur gleðina sem er einn af ávöxtum anda Guðs. (Galatabréfið 5:22) Ef þú heldur áfram að afla þér þekkingar á sannleikanum og minna sjálfan þig á hinn andlega auð, sem hann hefur veitt þér og veitir enn, þá dvínar gleði þín ekki. Hún verður æ sterkari því nær sem dregur þeim tíma er Guð „mun þerra hvert tár“ af augum manna og hvorki „harmur né vein né kvöl“ verður framar til. — Opinberunarbókin 21:4.

[Mynd á blaðsíðu 8]

Margir verða snortnir af þeirri gleði og góða skipulagi sem einkennir mót votta Jehóva.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila