Þú ert hjartanlega velkominn
Dauði mannsins Jesú Krists fyrir meira en 1900 árum var mikilvægasti atburðurinn í mannkynssögunni. Hann veitti okkur þá von að öðlast eilíft líf á jörð sem verður paradís. Við einfalda hátíðarathöfn notaði Jesús ósýrt brauð og vín sem táknmyndir um mannslíkama sinn sem hann fórnaði af kærleika. Síðan sagði hann lærisveinum sínum: „Gjörið þetta í mína minningu.“ (Lúkas 22:19) Ætlar þú að minnast þessa mikilvæga atburðar? Vottar Jehóva bjóða þér að koma og halda þessa minningarhátíð með sér. Hún fer fram eftir sólsetur á þeim degi sem svarar til 14. dags nísanmánaðar samkvæmt tunglalmanaki biblíunnar. Þú getur sótt hátíðina í þeim ríkissal sem næstur er heimili þínu. Láttu Votta Jehóva í þínu byggðarlagi gefa þér upp nákvæma stund og stað. Á þessu ári verður minningarhátíðin haldin föstudaginn 14. apríl.