Unninn sigur á Satan og verkum hans
„Gefið yður því Guði á vald, standið gegn djöflinum, og þá mun hann flýja yður.“ — JAKOBSBRÉFIÐ 4:7.
1. Hvernig hefur hönd hins vonda haft áhrif á mannkynið nú á dögum?
JOB sagði réttilega: „Jörðin hefur verið gefin hinum vonda í hendur.“ (Jobsbók 9:24, NW) Og núna blasa erfiðustu tímar allrar mannkynssögunnar við okkur. Af hverju? Af því að nú standa yfir ‚síðustu dagar‘ djöfullegrar stjórnar Satans yfir jörðinni. Það er engin furða að fyrir áeggjan Satans skuli ‚vondir menn og svikarar magnast í vonskunni, villandi aðra og villuráfandi sjálfir.‘ (2. Tímóteusarbréf 3:1, 13) Ofsóknir, ranglæti, grimmd, glæpir, efnahagsþrengingar, langvinn veikindi, þrautir ellinnar og þunglyndi — allt þetta og margt annað getur lagst þungt á okkur.
2. Hvernig getum við staðist árásir Satans nú á dögum?
2 Óvinurinn mikli, Satan djöfullinn, gerir einbeitta árás á mannkynið og sérstaklega á sanna tilbiðjendur Guðs. Markmið hans er að snúa öllum ráðvöndum mönnum gegn Guði og draga þá niður í tortímingu með sér og djöflaenglum sínum. Við erum þó fullvissuð um að djöfullinn flýi okkur ef við erum þolgóð í ráðvendni okkar. Líkt og Jesús getum við ‚lært hlýðni‘ við Guð af þjáningum okkar og öðlast eilíft líf vegna óverðskuldaðrar góðvildar hans. — Hebreabréfið 5:7, 8; Jakobsbréfið 4:7; 1. Pétursbréf 5:8-10.
3, 4. (a) Hvaða þrengingar þurfti Páll að ganga í gengum? (b) Hverju hafði Páll áhyggjur af sem kristinn öldungur?
3 Páll postuli var einnig prófreyndur á marga vegu. Hann skrifaði um meðmæli sín sem þjónn Krists: „Ég fremur. Meira hef ég unnið, oftar verið í fangelsi, fleiri högg þolað og oft dauðans hættu. Af Gyðingum hef ég fimm sinnum fengið höggin þrjátíu og níu, þrisvar verið húðstrýktur, einu sinni verið grýttur, þrisvar beðið skipbrot, verið sólarhring í sjó. Ég hef verið á sífelldum ferðalögum, komist í hann krappan í ám, lent í háska af völdum ræningja, í háska af völdum samlanda og af völdum heiðingja, í háska í borgum og í óbyggðum, á sjó og meðal falsbræðra. Ég hef stritað og erfiðað, átt margar svefnlausar nætur, verið hungraður og þyrstur og iðulega fastað, og ég hef verið kaldur og klæðlaus.
4 Og ofan á allt annað bætist það, sem mæðir á mér hvern dag, áhyggjan fyrir öllum söfnuðunum. Hver er sjúkur, án þess að ég sé sjúkur? Hver hrasar, án þess að ég líði?“ (2. Korintubréf 11:23-29) Páll varðveitti ráðvendni þegar hann var ofsóttur og varð fyrir þrengingum, og sem kristnum öldungi var honum mikið í mun að styrkja veikburða bræður og systur í söfnuðinum og hjálpa þeim að varðveita ráðvendni. Þetta er kristnum öldungum nú á tímum gott fordæmi!
Ráðvendni í ofsóknum
5. Hver er mótleikurinn gegn beinum ofsóknum?
5 Hvaða brögðum beitir Satan til að brjóta ráðvendni manna á bak aftur? Eins og fram kemur hér á undan eru beinar ofsóknir eitt grimmilegasta bragð hans, en til er mótleikur gegn þeim. Efesusbréfið 6:10, 11 ráðleggur okkur: „Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins.“
6. Hvernig er hægt að sýna fram á að vottar Jehóva hafa unnið „fullan sigur“?
6 Vottar Jehóva hafa oft lent í prófraunum núna á síðustu dögum. Við getum því sagt með Páli: „Í öllu þessu vinnum vér fullan sigur fyrir fulltingi hans, sem elskaði oss.“ (Rómverjabréfið 8:37) Það sannar sagan af ráðvendni votta Jehóva í fangabúðum í Þýskalandi, Austurríki, Póllandi og Júgóslavíu á valdatíma nasista frá 1933 til 1945, undir kúgun kommúnista í Austur-Evrópu frá 1945 til 1989 og í þeim ofsóknum, sem hafa gengið yfir sums staðar í Afríku og Rómönsku Ameríku á síðustu árum.
7. Hvaða áhrifamikil fordæmi um ráðvendni höfum við frá Eþíópíu?
7 Vottar Jehóva í Eþíópíu gáfu hrífandi dæmi um ráðvendni á árunum 1974 til 1991. Einn hinna stjórnmálasinnuðu manna, sem fangelsuðu vottana, sagði bróður sem var í haldi: „Það væri betra að sleppa ljónum úr dýragarðinum en að láta ykkur ganga lausa aftur!“ Þessir grimmu ofsækjendur pynduðu þjóna Jehóva og eftir nokkur ár fyrirskipaði áfrýjunardómstóll aftökur. Lík eins bróður var sýnt opinberlega sem víti til varnaðar. Frjálslyndari dómstóll sleppti öðrum bræðrum, sem áfrýjuðu dauðadóminum, og sumir þessara trúföstu ‚sigurvegara‘ tóku þátt í dagskránni á umdæmismótinu „Kennsla Guðs“ í Addis Ababa snemma árs 1994.a — Jóhannes 16:33; samanber 1. Korintubréf 4:9.
8. Hvernig hefur Satan reynt að gera sér mat úr „þjóðernishreinsunum“?
8 Satan hefur mistekist að brjóta ráðvendni slíkra drottinhollra bræðra og systra á bak aftur með beinni árás. Hvaða öðrum slóttugum vélabrögðum beitir hann þá? Opinberunarbókin 12:12 segir um hina síðustu daga: „Vei sé jörðunni og hafinu, því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“ Þar sem Satan hefur mistekist að afmá drottinholla þjóna Jehóva með ofsóknum, reynir hann í reiði sinni að tortíma heilu þjóðunum, vafalaust í þeim tilgangi að gera út af við fólk Jehóva með hinum. Af þeim sökum hafa átt sér stað svokallaðar þjóðernishreinsanir á slóðum fyrrverandi Júgóslavíu, og reynt hefur verið að fremja þjóðarmorð í Líberíu, Búrúndi og Rúanda.
9. Hvers vegna snúast vopnin oft í höndum Satans? Nefndu dæmi.
9 En oft snúast vopnin í höndum Satans því að þjáningarnar, sem hann veldur, vekja hjartahreina menn til vitundar um að eina von þeirra sé ríki Guðs sem vottar Jehóva prédika kostgæfilega. (Matteus 12:21) Og áhugasamt fólk streymir til Guðsríkis! Til dæmis voru 1307 viðstaddir minningarhátíðina um dauða Jesú í hinni stríðshrjáðu Bosníu og Hersegóvínu hinn 26. mars 1994, 291 fleiri en árið á undan. Aðsóknarmet voru sett í Sarajevo (414), Zenica (223), Túsla (339), Banja Luka (255) og öðrum bæjum. Í grannríkinu Króatíu náðist nýtt aðsóknarmet, 8326. Ofbeldið umhverfis hindraði votta Jehóva í þessum löndum ekki í að hlýða þeim fyrirmælum um að ‚boða dauða Drottins, þangað til hann kemur.‘ — 1. Korintubréf 11:26.
Í hinu stríðshrjáða Rúanda
10, 11. (a) Hvað hefur gerst í Rúanda sem á að heita kristið land? (b) Hvað sögðu trúboðar?
10 Árið 1993 voru 2080 boðberar í Rúanda og 4075 sóttu umdæmismótið „Kennsla Guðs“ þar sem 230 létu skírast. Af þeim sóttu 142 um aðstoðarbrautryðjandstarf þegar í stað. Heimabiblíunámin urðu 7655 — greinilega fleiri en Satan gat unað! Enda þótt mikill meirihluti landsmanna játi kristna trú braust út blóðugt ættbálkastríð. Blaðið L’Osservatore Romano, gefið út í Páfagarði, viðurkenndi: „Þetta er hreint og beint þjóðarmorð sem jafnvel kaþólskir menn bera því miður ábyrgð á.“ Áætlað er að um hálf milljón karla, kvenna og barna hafi fallið og um tvær milljónir misst heimili sín eða neyðst til að flýja. Vottar Jehóva varðveittu kristið hlutleysi sitt og reyndu að halda hópinn. Hundruð bræðra okkar og systra voru drepin. En í einum söfnuði með 65 boðbera, þar sem 13 voru drepnir, jókst samkomusókn upp í 170 í ágúst 1994. Vottar í öðrum löndum voru meðal þeirra fyrstu til að koma hjálpargögnum þangað. Við biðjum fyrir þeim sem eftir lifa. — Rómverjabréfið 12:12; 2. Þessaloníkubréf 3:1, 2; Hebreabréfið 10:23-25.
11 Mitt í öllum hryllingnum komust trúboðarnir þrír, sem voru í Rúanda, undan. Þeir skrifa: „Við gerum okkur ljóst að bræður okkar um heim allan hafa staðið frammi fyrir svipuðum aðstæðum eða verri, og við vitum að allt er þetta hluti táknsins um hina síðustu daga þessa illa heimskerfis. En fyrst þegar maður lendir sjálfur í slíku fær maður að sannreyna þetta og lærir að meta hve dýrmætt lífið er. Vissir ritningarstaðir hafa tekið á sig nýja merkingu fyrir okkur, og við hlökkum til þess tíma þegar hins fyrra verður ekki minnst framar. Uns það gerist viljum við vera önnum kafnir í þjónustu Jehóva.“
Ráðvant ungt fólk
12, 13. (a) Hvaða ráðvanda stefnu tók ung stúlka? (b) Hvar geta börn og unglingar meðal okkar leitað uppörvunar nú á dögum?
12 Jesús gaf til kynna að þeir sem ættingjar útskúfuðu sannleikans vegna myndu fá „hundraðfalt“ í umbunarskyni. (Markús 10:29, 30) Entellia, tíu ára stúlka í norðurhluta Afríku, fékk að reyna það, en hún fékk ást á nafni Guðs — Jehóva — jafnskjótt og hún heyrði það. Hún nam með vottum Jehóva og fór fótgangandi á samkomur og til baka, eina og hálfa klukkustund hvora leið, jafnvel þótt fjölskylda hennar, sem var trúnni andsnúin, læsti hana oft úti þegar hún kom heim. Þrettán ára gömul byrjaði hún að prédika hús úr húsi og andstaða fjölskyldunnar jókst. Dag einn bundu ættingjar hana á höndum og fótum og létu hana liggja í steikjandi sólinni í sjö klukkustundir. Af og til skvettu þeir á hana óhreinu vatni. Þeir börðu hana grimmilega, eyðilögðu í henni annað augað og ráku hana loks að heiman. En hún fékk vinnu á spítala og lærði síðan hjúkrun. Hún lét skírast tvítug og gerðist þegar í stað aðstoðarbrautryðjandi. Fjölskyldan varð snortin af ráðvendni hennar og opnaði heimilið aftur fyrir henni, og nú hafa níu úr fjölskyldunni þegið biblíunám.
13 Entellia sótti mikla uppörvun í Sálm 116, einkum vers 1-4 sem hún las aftur og aftur: „Ég elska [Jehóva], af því að hann heyrir grátbeiðni mína. Hann hefir hneigt eyra sitt að mér, og alla ævi vil ég ákalla hann. Snörur dauðans umkringdu mig, angist Heljar mætti mér, ég mætti nauðum og harmi. Þá ákallaði ég nafn [Jehóva]: „Ó, [Jehóva], bjarga sál minni!‘“ Jehóva svarar slíkum bænum!
14. Hvernig hafa pólskir vottar sýnt afburðaráðvendni?
14 Eins og á dögum Jesú hefur Satan oft notað trúarofstæki til að blása upp ofsóknarbál — en án árangurs. Fordæmi bræðra okkar í Póllandi, sem er lýst í Árbók votta Jehóva 1994, er framúrskarandi. Jafnvel börn og unglingar þurftu að sanna ráðvendni sína. Árið 1946 var einum þeirra, 15 ára stúlku, sagt: „Gerðu bara kaþólskt krossmark. Annars bíður byssukúla eftir þér!“ Hún varðveitti ráðvendni, var dregin út í skóg, pynduð hrottalega og skotin. - Samanber Matteus 4:9, 10.
Önnur vélabrögð Satans
15, 16. (a) Hver er hin djöfullega stjórnarstefna Satans og hvernig getum við staðið gegn honum? (b) Hvers vegna þurfa hinir ungu okkar á meðal ekki að hrasa?
15 Hin djöfullega stjórnarstefna Satans er greinilega sú að „ríkja eða rústa“! Hann ræður yfir mörgum grimmdarvopnum í vopnabúri sínu. Það er því engin furða að Páll postuli skuli vara okkur við: „Baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum. Takið því alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli, þegar þér hafið sigrað allt.“ (Efesusbréfið 6:12, 13) Langanir efnishyggjunnar, spillt skemmtun og áróður, djöfulleg tónlist, hópþrýstingur í skólanum, fíkniefnaneysla og drykkjuskapur — allt getur þetta eyðilagt líf okkar. Postulinn ráðleggur því í framhaldinu: „Takið umfram allt skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda.“ — Efesusbréfið 6:16.
16 Þetta virðist vera sérlega nauðsynlegt nú á tímum í ljósi þeirrar afkáralegu tónlistar sem Satan hellir yfir þennan heim. Í sumum tilvikum eru bein tengsl við Satansdýrkun. Í skýrslu frá skrifstofu lögreglustjórans í San Diego-sýslu í Bandaríkjunum sagði: „Hér voru haldnir hljómleikar þar sem hljómsveitin fékk 15.000 krakka til að söngla ‚Natas‘ — það er að segja Satan aftur á bak.“ Satansdýrkun hefur verið líkt við gryfju sem unglingar falla í „af því að þeir hafa reikað um örvæntingarfullir, reiðir og einmanna.“ Þið unglingar í kristna söfnuðinum þurfið ekki að falla í hana! Jehóva sér ykkur fyrir andlegum herklæðum sem skeyti Satans ná aldrei í gegnum. — Sálmur 16:8, 9.
17. Hvernig er hægt að sigrast á þunglyndi?
17 Hin eldlegu skeyti Satans eru til þess gerð að spila á tilfinningarnar. Óvinur okkar getur notfært sér álag lífsins, svo sem líkamleg veikindi eða alvarlegt þunglyndi, til að láta suma fá á tilfinninguna að þeir séu einskis virði. Við gætum orðið niðurdregin yfir því að geta ekki notað mikinn tíma í þjónustu Guðs eða yfir því að missa af sumum safnaðarsamkomum. Kærleiksrík umhyggja öldunganna og annarra góðhjartaðra bræðra og systra getur hjálpað okkur að sigrast á erfiðleikum. Munum alltaf að Jehóva elskar trúfasta þjóna sína. (1. Jóhannesarbréf 4:16, 19) Sálmur 55:23 segir: „Varpa áhyggjum þínum á [Jehóva], hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum.“
18. Hvaða vélabrögð Satans þurfa sumir að kljást við?
18 Slóttug „vélabrögð“ Satans hafa nýverið birst í enn einni mynd. Í sumum löndum hefur margt fullvaxta fólk fundið fyrir áleitnum hugsunum og þeirri yfirþyrmandi tilfinningu að satansdýrkendur hafi misnotað þá gróflega sem börn. Hvaðan koma slíkar hugmyndir? Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir eru skoðanir veraldlegra sérfræðinga mjög skiptar. Sumir telja slíkar hugsanir raunverulegar minningar, aðrir telja þær hugaróra — ef til vill framkallaðar með vafasamri sálfræðimeðferð — og enn aðrir álíta þær eins konar skynvillu sem orsakast af einhverju áfalli í bernsku.
19. (a) Hvaða hugsanir sóttu á Job? (b) Hvernig geta öldungar fylgt fordæmi Elíhús?
19 Athyglisvert er að það sóttu hugsanir á Job, þjón Guðs, sem Satan kom á framfæri fyrir milligöngu Elífasar og Sófars. Þessar hugsanir ollu honum kvíða eða ‚heilabrotum.‘ (Jobsbók 4:13-18; 20:2, 3) Job fann þar af leiðandi til ‚gremju‘ sem varð þess valdandi að hann ‚hafði eigi taumhald á tungu sinni‘ og talaði um þær „ógnir“ og „skelfingar“ sem sóttu á hug hans. (Jobsbók 6:2-4; 30:15, 16) Elíhú hlustaði hljóður á Job og hjálpaði honum í einlægni að koma auga á hið alvitra sjónarmið Jehóva í málinu. Eins er það nú á dögum að skilningsríkir öldungar sýna að þeir láta sér annt um þá sem þjakaðir eru, með því að leggja ekki meiri ‚þunga‘ eða þrýsting á þá. Í staðinn hlusta þeir þolinmóðir á þá eins og Elíhú gerði og smyrja þá síðan með sefandi olíu orðs Guðs. (Jobsbók 33:1-3, 7; Jakobsbréfið 5:13-15) Hver sá sem á í tilfinningaróti vegna erfiðleika, raunverulegra eða ímyndaðra, eða ‚hræðist drauma og sýnir‘ eins og Job, getur fundið sefandi, biblíulega hughreystingu innan safnaðarins. — Jobsbók 7:14; Jakobsbréfið 4:7.
20. Hvernig er hægt að hjálpa kristnum mönnum, sem eru þjakaðir, að halda andlegu jafnvægi sínu?
20 Nú sem stendur má kristinn maður vera viss um að Satan sé með einum eða öðrum hætti á bak við þessar hræðilegu hugsanir. Ef einhverjir í söfnuðinum eiga í höggi við slíkt, er viturlegt af þeim að sjá slík ógnvekjandi hughrif sem beina tilraun Satans til að setja þá úr andlegu jafnvægi. Þeir þarfnast biblíulegs stuðnings, þolinmæði og skilnings. Með því að leita til Jehóva í bæn og njóta góðs af andlegri hjarðgæslu, eru þeir sem þjakaðir eru að notfæra sér ofurmagn kraftarins frá Guði. (Jesaja 32:2; 2. Korintubréf 4:7, 8) Þannig geta þeir haldið trúfastir út og neitað að láta illar, áleitnar hugsanir hafa áhrif á frið safnaðarins. (Jakobsbréfið 3:17, 18) Já, þeir geta staðið gegn djöflinum og sýnt sama hugarfar og Jesús er hann sagði: „Vík brott, Satan!“ — Matteus 4:10; Jakobsbréfið 4:7.
21. Hvernig varar Biblían við slóttugum aðferðum Satans?
21 Við vitum að markmið Satans er að spilla hugsunum okkar með einhverjum hætti eins og Páll postuli varaði við í 2. Korintubréfi 11:3: „Ég er hræddur um, að eins og höggormurinn tældi Evu með flærð sinni, svo kunni og hugsanir yðar að spillast og leiðast burt frá einlægri og hreinni tryggð við Krist.“ Núverandi spilling alls holds eða mannlegs samfélags, sem er fráhverft Guði, minnir okkur á spillinguna sem hinir siðspilltu og ofbeldisfullu kynblendingar, „risarnir,“ ollu á dögum Nóa. (1. Mósebók 6:4, 12, 13; Lúkas 17:26) Það er því ekkert undarlegt að Satan skuli gefa reiði sinni útrás með slóttugum kænskubrögðum, einkum gegn fólki Guðs. — 1. Pétursbréf 5:8; Opinberunarbókin 12:17.
22. Hvaða blessunar má vænta þegar Satan hefur verið rutt úr vegi?
22 Satan er ekki einu sinni nefndur í lokaköflum Jobsbókar. Ráðvendni Jobs hafði sannað að sú illa ögrun Satans, að menn geti ekki verið ráðvandir gagnvart Guði, væri röng. Eins verður það í náinni framtíð þegar „mikill múgur“ ráðvandra manna ‚kemur úr þrengingunni miklu‘ — þá verður Satan varpað í undirdjúpið. Menn og konur trúarinnar, þeirra á meðal hinn trúfasti Job, munu slást í hópinn með þessum ‚mikla múgi‘ til að njóta paradísarblessunar enn stórkostlegri en blessunarinnar sem Job var umbunað með! — Opinberunarbókin 7:9-17; 20:1-3, 11-13; Jobsbók 14:13.
[Neðanmáls]
a Sjá Árbók votta Jehóva 1992, bls. 177.
Spurningar til upprifjunar
◻ Hvaða gott fordæmi um ráðvendni gáfu Job, Jesús og Páll?
◻ Hvernig hafa ráðvandir menn boðið Satan byrginn?
◻ Hvernig geta börn og unglingar staðist slóttug vélabrögð Satans?
◻ Hvað er hægt að gera til að takast á við vélabrögð Satans?
[Mynd á blaðsíðu 7]
Meswat og Yoalan í Eþíópíu þjóna Jehóva núna í fullu starfi eftir fyrirmynd föður síns sem var líflátinn.
[Mynd á blaðsíðu 7]
Entellia, ung ráðvönd kona í norðurhluta Afríku.