Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w89 1.7. bls. 4–7
  • Satansdýrkun nú á dögum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Satansdýrkun nú á dögum
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Galdrar, spíritismi og kukl
  • Satansdýrkun og tónlist
  • Meira en skaðlaus stundartíska
  • Áhrif djöfulsins á heim sem er fullur haturs
  • Satan — er hann til?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
  • Óvinur eilífs lífs
    Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð
  • Satan
    Vaknið! – 2013
  • Gættu þín á óvini þínum, djöflinum!
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
w89 1.7. bls. 4–7

Satansdýrkun nú á dögum

ENGINN vafi leikur á að Satan vill láta tilbiðja sig. Hann gerði Jesú freistandi tilboð og sagði: „Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú fellur fram og tilbiður mig.“ (Matteus 4:9) Jesús neitaði að sjálfsögðu að gera það, en ekki hafa allir fylgt fordæmi hans. Satansdýrkun er útbreidd á okkar tímum.

Í kanadíska dagblaðinu The Calgary Herald birtist greinaröð undir fyrirsögninni „Lærisveinar djöfulsins.“ Dagblaðið vitnaði meðal annars í skýrslu lögreglumanns sem sagði: „Með viðtölum hef ég komist að raun um að satansdýrkun takmarkast ekki við neinn ákveðinn þjóðfélagshóp. Upplýsingar, sem lögreglan í Calgary og kanadíska riddaralögreglan hafa safnað, gefa til kynna að einungis í Calgary séu um 5000 virkir satansdýrkendur.“

Blaðafregnir úr ýmsum áttum gefa til kynna að satansdýrkun í ýmsum myndum sé að skjóta upp kollinum víða í Norður-Ameríku og Evrópu. Meira að segja lögreglan hefur sýnt áhuga á satansdýrkun. Hvers vegna? Vegna þess að oft finnast tengsl milli afbrota og satansdýrkunar. Haft var eftir rannsóknarlögreglumanni fyrir nokkru: „Við erum hér að fást við trú sem fólk aðhyllist á sama hátt og menn aðhyllst kristni, gyðingdóm eða íslam. Afbrotin eru ekki framin afbrotanna vegna heldur trúarinnar vegna.“

Morðið á Sharon Tate, sem Manson-öfgahópurinn framdi í Kaliforníu árið 1969, er alþekkt dæmi. Að því er söguprófessorinn Jeffrey Russell segir „hélt Manson því fram að hann væri bæði Kristur og Satan. . . . Lærisveinn Mansons, Tex Watson, sagði þegar hann kom til að myrða Sharon Tate: ‚Ég er djöfullinn, ég er hér til að vinna verk djöfulsins.‘“ En satansdýrkun er ekki alltaf svona augljós.

Galdrar, spíritismi og kukl

Satansdýrkun er hvergi nærri takmörkuð við beina tilbeiðslu á Satan. Páll postuli aðvaraði: „Það sem heiðingjarnir blóta, það blóta þeir illum öndum, en ekki Guði.“ (1. Korintubréf 10:20) Og dýrkun illra anda er í raun hið sama og satansdýrkun, því að Satan er nefndur ‚höfðingi illra anda.‘ (Markús 3:22) En hverjar af athöfnum þjóðanna geta flokkast undir djöfladýrkun eða satansdýrkun? Við finnum nokkur dæmi í orðum Guðs til Ísraels: „Eigi skal nokkur finnast hjá þér . . . sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi, eða töframaður eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gjörir, er [Jehóva] andstyggilegur.“ — 5. Mósebók 18:10-12.

Við erum hér vöruð við blóðfórnum og ákalli illra anda sem tíðkast meðal vúdúpresta í Brasilíu eða hóngana og mambóa á Haíti. Við erum líka vöruð við þeim sem halda því fram að þeir geti komist í samband við sálir látinna og fást við andaglas eða því um líkt. — Samanber 1. Samúelsbók 28:3-20.

Galdrar eru stundaðir víða í Afríku. Í Suður-Afríku er galdralæknirinn valdamikill og fólk tekur hann mjög alvarlega. Komið hefur fyrir að æstur múgur hafi ráðist á fólk og brennt það lifandi, en það átti að hafa komið því til leiðar að sumir þorpsbúa hefðu orðið fyrir eldingum! Galdralæknar í þorpinu sökuðu saklaust fólk um að standa að baki þessum „ónáttúrlegu“ atvikum og létu síðan binda þá við tré og brenna. Slík trú á kukl og galdra er einnig djöfladýrkun.

En djöfladýrkun er ekki einskorðuð við Afríku. Árið 1985 var Herbert D. Dettmer, sem afplánaði fangelsisdóm á betrunarhæli í Virginíu í Bandaríkjunum, veitt leyfi héraðsdómstóls til að hafa aðgang að klæðnaði og hlutum sem hann taldi sig þurfa til að iðka trú sína í fangelsinu. Og hver var trú hans? Samkvæmt réttarskjölum tilheyrði hann „Church of Wicca“ (þekktari undir heitinu galdrar).“ Herbert Dettmer fékk þar með leyfi til að nota í tilbeiðslu sinni brennistein, sjávarsalt, kerti, reykelsi, vekjaraklukku og hvíta skikkju.

Margt bendir þannig til að galdrakukl sé útbreitt á Vesturlöndum. Breska dagblaðið Manchester Guardian Weekly sagði einu sinni: „Fyrir fimm árum voru taldar vera um 60.000 nornir á Bretlandseyjum; núna [1985] telja sumar nornir að talan sé komin upp í 80.000. Mánaðarritið Prediction, sem fjallar um stjörnuspeki og dulspeki, er selt í 32.000 eintökum.“

Satansdýrkun og tónlist

Í bók sinni Mephistopheles — The Devil in the Modern World beinir prófessor Russell athygli okkar að öðrum vettvangi þar sem unnið er að markmiðum Satans. Hann segir: „Mjög ört dró úr opinskárri satansdýrkun eftir áttunda áratuginn, en menningarlegir þættir hennar lifðu áfram á níunda áratugnum í þungarokki þar sem djöfullinn er af og til ákallaður með nafni og töluverð virðing borin fyrir djöfullegum fyrirbærum svo sem grimmd, fíkniefnum, ljótleika, þunglyndi, nautnasýki, ofbeldi, hávaða, ringulreið og depurð.“ — Leturbreyting okkar.

Ef til vill var tónlistarmönnunum, sem blönduðu satansdýrkun inn í tónlist sína, ekki alvara. Ef til vill voru þeir einungis að reyna að hneyksla fólk eða vera framandlegir. Það breytir ekki því að þessi tónlist hafði sterk áhrif á suma hrifnæma einstaklinga. Prófessor Russell getur þess að „stöðugur áróður með hinu illa, þótt ekki hafi alltaf legið full alvara að baki, hafi haft skaðleg áhrif á veikgeðja einstaklinga. Það hefur meðal annars haft í för með sér faraldur óhugnanlegra glæpa, meðal annars nauðgun barna og limlestingu dýra.“

Á síðasta ári sagði dagblað í New York frá óhugnanlegu atviki. Fjórtán ára drengur, „gagntekinn satansdýrkun,“ stakk móður sína til bana og svipti sig svo lífi. Kanadískur fjölskylduráðgjafi sagði frá því, að sögn tímaritsins Maclean’s, að vaxandi fjöldi unglinga, sem eiga við vandamál að stríða, hafi játað að þeir stunduðu „satansdýrkun, oft undir áhrifum fíkniefna og öfgafyllsta þungarokks.“

Meira en skaðlaus stundartíska

Nú er í tísku í Bandaríkjunum að reyna að komast í samband við anda löngu látinnar persónu fyrir milligöngu andamiðils sem yfirleitt er kona. Fólk greiðir oft hundruð dollara til að fá að taka átt í slíkum miðilsfundum. Samkvæmt blaðafregnum eru miðilsfundir ákveðins miðils „sendir reglulega út með gervihnattasjónvarpi til þúsunda manna í sex borgum.“ Miðilsfundir af þessu tagi ganga greinilega í berhögg við bann Biblíunnar gegn því að leita til andamiðla eða spámanna. Hér er á ferðinni viss tegund djöfladýrkunar sem byggist, eins og allur spíritismi, á þeirri lygi Satans að mannssálin sé ódauðleg. — Prédikarinn 9:5; Esekíel 18:4, 20.

Áhrif djöfulsins á heim sem er fullur haturs

Hið skelfilega ástand meðal mannkynsins á 20. öldinni hlýtur að vekja þá spurningu í hugum margra hvort áhrif Satans teygi sig ekki víðar en þetta. Prófessor Russell drepur á það mál er hann segir: „Ætlað er að núverandi kjarnorkuvopnabirgðir nægi til að drepa sérhvert hryggdýr á jörðinni sjötíu sinnum. Eigi að síður höldum við þrákelknislega áfram að búa okkur undir stríð sem enginn einstaklingur, þjóð eða hugmyndafræði mun hagnast á heldur mun hafa í för með sér skelfilegan dauðdaga fyrir þúsundir milljóna. Hvaða kraftur keyrir okkur áfram eftir braut sem er síhættulegri með hverjum deginum sem líður? Hver getur haft hag af því að eyða jörðinni í kjarnorkustríði? Einungis það afl sem hefur frá upphafi viljað tortíma alheiminum af óendanlegri grimmd og illvilja.“

Hver eða hvað er þetta afl? Prófessorinn svarar spurningunni þannig: „Djöfullinn hefur verið skilgreindur sem andinn er reynir að eyðileggja heim Guðs og gera að engu. Getur ekki það afl, sem hvetur okkur til að beita kjarnorkuvopnum, verið eitt og hið sama og hefur ávallt reynt að afneita sinni eigin tilvist? Á þeim miklu hættutímum, sem ríkja hér á jörðinni, getum við ekki útilokað þann möguleika.“ Kristnir menn útiloka sannarlega ekki þann möguleika. Jesús vakti athygli á hinum miklu áhrifum Satans á þennan heim er hann kallaði hann „höfðingja þessa heims.“ (Jóhannes 12:31) Opinberunarbókin lýsir hugarástandi Satans þannig að hann sé „í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“ (Opinberunarbókin 12:12) Sama biblíubók segir einnig að Satan beiti djöfullegum áróðri til að safna valdhöfum þessa heims „saman til stríðsins á hinum mikla degi Guðs hins alvalda.“ (Opinberunarbókin 16:14) Við getum sannarlega ekki vísað áhrifum Satans djöfulsins á bug þegar við reynum að skilja ástæðuna fyrir vitfirringslegri stefnu mannkynsins í átt til sjálfstortímingar.

Páll postuli kallaði Satan ‚andann sem starfar í sonum óhlýðninnar‘ og „guð þessarar aldar.“ (Efesusbréfið 2:2; Ísl. bi. 1912; 2. Korintubréf 4:4) Engin furða er að margir skuli spyrja sig að því hvort öll hin ægilegu grimmdarverk okkar „upplýstu vísindaaldar“ — tvær heimsstyrjaldir, þjóðarmorð í Evrópu og Kambódíu, hungursneyð af pólitískum orsökum í Afríku, djúpstæð trúar- og kynþáttasundrung um víða veröld, hatur, morð, kerfisbundnar pyndingar og hin glæpsamlegu niðurrifsáhrif fíkniefnaneyslu á mannlegt samfélag — geti ekki verið unnin samkvæmt hernaðaráætlun voldugrar, illrar andaveru sem er ráðin í að hrekja mannkynið frá Guði og jafnvel koma því til að tortíma sjálfu sér.

En hver er þá Satan? Hvað ætlast hann eiginlega fyrir? Hvað getum við sem einstaklingar gert í málinu? Við hvetjum þig til að lesa svörin við þessum spurningum í greinunum tveim sem á eftir fara.

[Mynd á blaðsíðu 7]

Þjónar Guðs taka heilnæma skemmtun fram yfir tónlist sem ber keim af satansdýrkun.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila