Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w88 1.7. bls. 3–4
  • Þegar börn eignast börn

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þegar börn eignast börn
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Lausna leitað
  • Fóstureyðing — ekki einföld lausn
    Vaknið! – 2009
  • Fóstureyðing – hve dýru verði?
    Vaknið! – 1987
  • Hvað um kynlíf fyrir hjónaband?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga
  • Fóstureyðing – skiptar skoðanir
    Vaknið! – 1987
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
w88 1.7. bls. 3–4

Þegar börn eignast börn

„HANN leit út eins og ævintýraprins,“ segir ung kona, sem við skulum kalla Elínu, beiskri röddu. „Hann tönnlaðist á því að hann elskaði mig og að ef vinstúlka hans yrði einhvern tíma barnshafandi myndi hann aldrei yfirgefa hana.“

Dag einn fór Elín í læknisskoðun. Hún hélt að hún væri með botnlangabólgu en í ljós kom að hún var komin þrjá mánuði á leið. „Ég hringdi strax í vin minn,“ segir Elín. „Þú verður að fá fóstureyðingu!“ svaraði hann. „Losaðu þig bara við það!“ Ævintýrið hafði breyst í martröð.

Nálega ein milljón unglingsstúlkna í Bandaríkjunum einum verða barnshafandi ár hvert. Bandaríkin njóta þeirrar vafasömu sérstöðu að hafa, miðað við íbúatölu, flestar þunganir meðal unglingsstúlkna. Þau eru eina landið þar sem tíðnin hefur farið vaxandi á síðustu árum. Könnun á vegum Alan Guttmacher-stofnunarinnar, sem tók til 37 landa, leiddi þó í ljós að þunganir meðal ógiftra unglingsstúlkna er vandamál á heimsmælikvarða.

Í tímaritinu Adolescence sögðu Black og DeBlassie sem að rannsókninni unnu: „Stúlkur á skólaaldri, sem verða barnshafandi, koma úr öllum efnahags- og þjóðfélagsstéttum og bæði almennum skólum og einkaskólum. Allir kynþættir, öll trúarbrögð og allir landshlutar, jafnt til borga sem sveita, eiga sér fulltrúa í þeim hópi.“ Um það hvers vegna fæðingartíðni sé hæst meðal fátækra stúlkna eða stúlkna úr minnihlutahópum segir tímaritið Journal of Marriage and Family: „Hvítar stúlkur og stúlkur úr efri efnahags- og þjóðfélagsstéttum láta oftar eyða fóstri.“

Í Bandaríkjunum er þriðjungur allra löglegra fóstureyðinga gerður á konum undir tvítugu. Þótt siðferðileg atriði séu látin liggja á milli hluta er oft erfitt eftir á að búa við þá vitneskju að hafa látið eyða fóstri. Ung kona, sem lét eyða fóstri meðan hún var á táningaaldri, segir: „Trúðu mér, það er sárt að vita að ég er sek um morð, og að fórnarlambið mun aldrei fá að vita hve mjög ég iðrast þess.“

Lausna leitað

Skömm, ótraust hjónaband, fátækt — þetta eru algengar afleiðingar þungunar hjá unglingsstúlkum. Ekki er því að undra að þetta mál skuli vera uppeldisfræðingum, læknum, stjórnmálamönnum og foreldrum mikið áhyggjuefni. Sumir vilja láta auka fræðslu um kynferðismál og krefjast jafnvel að getnaðarvarnir og fóstureyðingar skuli standa unglingum galopnar.

Sumir unglingar hafa þó tilfinningalegar þarfir sem kynferðisfræðsla getur ekki fullnægt. Sumar stúlkur hafa meira að segja viljað verða barnshafandi! Ung stúlka orðaði það svona: „Ég reyndi að koma mér í klandur til að ná til mín athygli foreldranna. Ég ímyndaði mér að þetta [barn] væri eitthvað sem ég gæti átt ein — enginn gæti tekið það og ég ætti svolítinn hluta af sjálfri mér sem gæfi mér löngun til að lifa.“

Fræðsla um kynferðismál veitir auk þess enga leiðsögn um siðferði. Lönd, sem standa framarlega í kynferðisfræðslu, svo sem Svíþjóð og Holland, hafa ef til vill færri þunganir meðal unglinga en annars staðar er, en lauslæti er hins vegar mikið. Getur hugsast að lauslæti sé fólki dýrkeypt tilfinningalega, siðferðilega og andlega, þótt ekki sé talað um þunganir? Ef um það er að ræða, er þá gild ástæða til að hvetja til hreinlífis, ekki notkunar getnaðarvarna? Til að leita svars við því skulum við fletta upp í elstu bók veraldar — Biblíunni — og athuga hvað hún leggur til málanna.

[Innskot á blaðsíðu 3]

„Stúlkur á skólaaldri, sem verða barnshafandi, koma úr öllum efnahags- og þjóðfélagsstéttum, og bæði almennum skólum og einkaskólum. Allir kynþættir, öll trúarbrögð og allir landshlutar, jafnt til borga sem sveita, eiga sér fulltrúa í þeim hópi.“ —  Tímaritið Adolescence.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila