Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w87 1.8. bls. 15–20
  • ‚Sótt fram sakir sannleikans‘

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • ‚Sótt fram sakir sannleikans‘
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Söngur sannleikans látinn óma
  • Sótt fram sakir sannleikans
  • Hefur þú reynt þessar tillögur?
  • Hvernig stofna má blaðaleið
  • ‚Láttu hjartað svella af ljúfum orðum‘
  • Nýttu blöðin sem best
    Ríkisþjónusta okkar – 1995
  • Notaðu blöðin í boðunarstarfinu
    Ríkisþjónusta okkar – 2005
  • Taktu frá tíma til blaðastarfs
    Ríkisþjónusta okkar – 1993
  • Varðturninn og Vaknið! — sannleiksrit á réttum tíma
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1994
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
w87 1.8. bls. 15–20

‚Sótt fram sakir sannleikans‘

„Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.“ — SÁLMUR 45:5.

1, 2. (a) Hvaða boðskap hreifst sálmaritarinn af? (b) Hvernig ætti sami boðskapur að hrífa okkur?

SÁLMARITARINN var ákafur að hefja söng sinn. Eftirvæntingin eftir hinni komandi, góðu stjórn í höndum hins réttláta og ráðvanda höfðingja var svo sterk að hann gat ekki þagað. Þegar sálmaritarinn réði sér ekki lengur sagði hann: „Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.“ (Sálmur 45:2) Sálmaritarinn er löngu látinn en spádómssöngur hans lifir og hefur aldrei haft meiri þýðingu eða kraft en nú. — Samanber Kólossubréfið 3:16.

2 Uppfylling hinna ‚ljúfu orða,‘ sem fylltu hjarta sálmaritarans, er tengd fagnaðarerindinu um ríki Guðs. ‚Svo ljúft‘ er fagnaðarerindið um ríkið að það verðskuldar að vera „prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar“ áður en „endirinn“ kemur yfir þjóðirnar. (Matteus 24:14) Hafa þessi ‚ljúfu orð‘ fagnaðarerindisins um Messíasarríkið snert hjarta þitt? Svo ætti að vera því að hebreska sögnin rachash, þýdd „svellur,“ táknar öra hreyfingu eins og í bullsjóðandi vökva. Hún táknar líka fyllingu. Og mundu að meistari okkar, Jesús Kristur, sagði: „Af gnægð hjartans mælir munnur [mannsins].“ (Lúkas 6:45) Er hjarta þitt yfirfullt af „ljúfum orðum“ eins og hjarta sálmaritarans? Ef svo er getur ekkert stöðvað þig í að láta óma þann einstaka sannleika að Jesús Kristur er konungur Guðsríkis!

Söngur sannleikans látinn óma

3. Hvaða tvær aðferðir eru notaðar til að útbreiða fagnaðarerindið um ríkið núna?

3 Hvernig er hægt að láta þennan söng ná eyrum fleira fólks? Með hjálp heilags anda varð tunga sálmaritarans „penni“ í hendi Jehóva. (Samanber 2. Samúelsbók 23:2.) Ljóðin, sem hann skráði, voru sungin svo að tilbiðjendur Jehóva til forna gætu allir heyrt. Við nútímamenn getum verið málsvarar sannleikans um Guðsríki á tvo líka vegu. Í fyrsta lagi með því að láta orð okkar heyrast í opinberri prédikun, og í öðru lagi með hinu ritaða orði í blöðum okkar og bókum. Þegar við dreifum ritum, sem byggjast á Biblíunni, erum við að enduróma það sem tunga innblásinna, helgra manna hefur áður sagt. (2. Tímóteusarbréf 3:16; 2. Pétursbréf 1:20, 21) Og núna er boðskapnum um Guðsríki dreift á prentuðu máli í stærra upplagi, á fleiri tungumálum og örar en sálmaritarinn hefði getað ímyndað sér. Tekur þú reglulega þátt í að útbreiða sannleikann, einkum með því að dreifa tímaritunum Vaknið! og Varðturninum?

4. (a) Hvernig er Jesús Kristur orðinn „fegurri . . . en mannanna börn“? (b) Hvernig líkir hinn smurði varðmannahópur eftir ‚yndisleik vara hans‘?

4 Þegar konungur Jehóva birtist fær það sálmaritarann til að skrifa: „Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu.“ (Sálmur 45:3) Upp frá þeim degi er Jesús var smurður anda Guðs og til þess dags að jarðnesk handbendi Satans þögguðu niður í honum um stund, var boðskapurinn um Guðsríki stöðugt á vörum hans. Sökum hollustu Jesú blessaði Jehóva hann að eilífu með því að vekja hann upp frá dauðum og hefja upp yfir allar aðrar sköpunarverur. (Filippíbréfið 2:8-11) Eftir að Jesús var gerður dýrlegur á himni, þegar hann varð ‚ímynd veru Guðs,‘ er hann fegurri en tignasti valdhafi alheimsins, hvort heldur sá er maður eða engill. (Hebreabréfið 1:3, 4) Sem konungur í hásæti styrkir Jesús varir hins smurða varðmannahóps og félaga þeirra til að syngja fagnaðarerindið um ríkið með djörfung. En þetta er líka stríðssöngur.

5, 6. (a) Hvað felst í því að Kristur ‚sæki fram sakir sannleikans‘? (b) Hvernig notar varðmannahópurinn Varðturninn og Vaknið!?

5 Sálmaritarinn hrópar nú til konungsins: „Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd. Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.“ (Sálmur 45:4, 5) Frá 1914 hefur Kristur riðið stríðsfáki, reiðubúinn til árásar. (Opinberunarbókin 6:1, 2) Hann er gyrtur sverði, tákni um stríð en einnig um vald og mátt frá Guði til að fullnægja dómi yfir þjóðum sem eru á móti honum. Kristur hefur nú þegar barist við Satan og illa anda hans, steypt þeim niður af himnum og takmarkað athafnafrelsi þeirra við næsta nágrenni jarðarinnar. — Opinberunarbókin 12:1-13.

6 En áður en friður kemst á mun hægri hönd konungsins gera ógurlegri hluti þegar hann ‚sækir fram sakir sannleikans‘ í Harmagedónstríðinu, til að tortíma öllum óvinum Guðs á jörð. (Sálmur 45:5; Opinberunarbókin 6:14, 16; 19:17, 18) Kristur hefur gefið hinum smurða varðmannahópi kjark og þor til að láta þessa aðvörun hljóma. Hvað notar varðmaðurinn til að magna rödd sína? Einkanlega tímaritið Varðturninn — tímarit sem gegnir einstöku hlutverki í að kunngera stofnsett ríki Jehóva. Varðmannahópurinn er, eins og hersveit engisprettna sem líkjast sporðdrekum, knúinn sama anda og fær Krist til að ‚sækja fram sakir sannleikans.‘ (Opinberunarbókin 9:7-11) Með áhrifaríkum hætti notar hann tímaritin sem gerð eru undir handleiðslu varðmannsins — Varðturninn og Vaknið! — fyrir málstað sannleikans. — Matteus 24:45; samanber Opinberunarbókina 9:16-19.

Sótt fram sakir sannleikans

7. Hvernig berjast Varðturninn og Vaknið! fyrir sannindum Biblíunnar?

7 Í meira en hundrað ár hefur Varðturninn verið málsvari sannleikans um Guðsríki. Fagmannlega beitir hann orði Guðs eins og sverði til að sneiða blekkingarvefinn utan af trúvillukenningum heimsins. (Samanber Efesusbréfið 6:17; Hebreabréfið 4:12) Tímaritið Vaknið! er líka málsvari sannleikans. Blaðið fylgist með atburðunum í heiminum og heggur í sundur þá skýlu sem hjúpar vísindakenningar, er kasta rýrð á Biblíuna, og hættulegar stefnur í þjóðfélags- og siðferðismálum. Hvað getum við gert til að koma þessum tímaritum í hendur enn fleira fólks til að það geti heyrt boðskapinn um Guðsríki, boðskap sem hefur líf í för með sér?

8, 9. Hvernig getum við heimfært meginregluna í Efesusbréfinu 5:16 á lestur Varðturnsins og Vaknið! þannig að hjarta okkar ‚svelli‘ til þátttöku í blaðastarfi? Nefndu dæmi.

8 Allir sem unna sannleikanum ættu að ‚svella‘ af þeim boðskap sem tímaritin Varðturninn og Vaknið! geyma. (Sálmur 45:2) Hvernig? Í fyrsta lagi með því að lesa þau jafnskjótt og þau berast þér í hendur. „Ég les ekki veraldlegt tímarit eða bók fyrr en ég er búinn að lesa í gegnum blöðin okkar,“ sagði Lillian við sjálfa sig fyrir tíu árum. Hún er enn trú þeim ásetningi. (Matteus 6:33) Hvað getur þú gert eftir að hafa lesið þau? Talaðu um efni þeirra við aðra — við fjölskyldu þína og aðra í söfnuðinum. Það ætti að kveikja í þér eldmóð til að nota blöðin í vitnisburði þínum, til að þú getir sagt nágrönnum þínum frá því góða sem þú hefur lesið. Vafalaust mun þig langa til að taka þátt í vitnisburði með hjálp blaðanna í hverri viku og nota þau í þjónustunni hús úr húsi. Það má líkja þessu við það hvernig Páll postuli ‚bar rækilega vitni.‘ — Postulasagan 20:20, 21,NW.

9 Pétur og Petra, kona hans, hafa síðastliðin fjögur ár þjónað sem trúboðar í Afríkulandi. Tímaritin Varðturninn og Vaknið! eru einhver mikilvægasta lindin sem þau sækja andlegan þrótt í. „Varðturninn hjálpar okkar að vera andlega vökul í starfssvæði okkar,“ segir Petra. „Við fáum hvatningu og kraft úr hverju tölublaði Varðturnsins og Vaknið!,“ bætir Pétur við, „og í hvert sinn sem blöðin koma finnst okkur við vera að fá bréf að heiman.“ (Samanber Sálm 46:2.) Metur þú blöðin jafnmikils og Pétur og Petra, og ert þú jafnákafur að lesa þau? Slíkur andi fær þig til að bjóða öðrum tímaritin á reglulegum grundvelli.

10. Hvers konar viðhorf er nauðsynlegt til að ná árangri í blaðastarfi og hver getur sá árangur orðið?

10 Boðberar Guðsríkis ættu að hafa jákvætt viðhorf til vitnisburðar með blöðunum. Fólk sem er einlægt í trú sinni tekur tveim höndum þeim upplýsingum úr Biblíunni sem blöðin geyma. (Samanber Postulasöguna 10:15, 30-33.) Hvers vegna? Vegna þess að þær er ekki annars staðar að fá. Fyrir meira en 45 árum fékk Lars, sem þá bjó í Svíþjóð, bunka af Varðturninum frá vinnufélaga sínum. „Þetta hljómar skynsamlega,“ sagði hann konu sinni eftir að hafa lesið þau. „Það sem Biblían segir, það segir Varðturninn líka.“ Það sem Lars las kom honum til að láta skírast — í mars 1940. Tökum annað dæmi. Tveir brautryðjendur úr suðurhluta Bandaríkjanna segja:

Við vorum í blaðastarfi þegar við hittum konu sem var gjaldkeri stórrar baptistakirkju og gaumgæfinn biblíunemandi. Hún varð mjög hrifin þegar hún las greinaröðina um Harmagedón í Varðturninum frá 1. janúar til 15. febrúar 1985. Hún hafði áður eytt löngum tíma í að rannsaka þetta efni og hafði ekkert upp úr krafsinu nema Opinberunarbókina 16:16. Hún hafði spurt prestinn sinn: „Hvað er Harmagedón? Getur þú skýrt það fyrir mér?“ Hann horfði á hana og sagði: „Það er erfitt efni,“ og labbaði burt. Hún sagði að Varðturninn svaraði á hinn bóginn hverri einustu spurningu hennar, og að hún hefði hvergi annars staðar fundið þá ritningarstaði sem skýra hvað Harmagedón er.

11. (a) Hvers vegna er gott að hafa stundaskrá fyrir blaðastarfið og hve oft ætti að taka þátt í því? (b) Getur blaðastarf hjálpað þér í biblíunámsstarfi? Gefðu skýringu. (c) Á hvaða vegu er hægt að dreifa blöðunum? Sjá rammann að ofan.

11 Getur þú tekið þér minnst einn dag í viku til að bera vitni með hjálp blaðanna, gert það að föstum þætti í stundaskrá þinni? (Samanber Filippíbréfið 3:16.) „Boðberar og brautryðjendur verja ekki nægum tíma til blaðastarfs,“ segir í bréfi frá útibúi Varðturnsfélagsins í Nígeríu. En ætti vitnisburður með hjálp blaðanna núna að skyggja á starf okkar við að gera menn að lærisveinum? Nei, engan veginn. Skýrslur frá útibúum félagsins í Ástralíu og Brasilíu sýna að blaðadreifing getur verið fyrsta skrefið að því að stofna mörg ný biblíunám. „Ég hef stofnað þrjú nám með einstaklingum sem tóku af mér blöð í fyrstu heimsókn,“ segir áströlsk systir. Hvernig getur þú látið blaðastarfið vera fyrsta skrefið í átt til biblíunáms með fólki? Þú finnur ýmsar góðar tillögur í rammanum hér til hliðar undir fyrirsögninni „Blaðadreifing.“

Hefur þú reynt þessar tillögur?

12. Hvaða tillögur voru einum boðbera til hjálpar?

12 Í Ríkisþjónustu okkar í mars 1984 var fjögurra blaðsíðna viðauki um vitnisburð með hjálp blaðanna. Hefur þú nýtt þér tillögurnar sem þar voru gefnar? Við hvetjum boðbera Guðsríkis til að lesa þennan viðauka aftur og nota tillögurnar í honum í þjónustunni á akrinum. Systir í Bandaríkjunum gerði það og árangurinn kom henni gleðilega á óvart. Hún skrifar:

Ég hef notfært mér tillögurnar sem gefnar voru í viðauka Ríkisþjónustunnar í mars 1984 um blaðastarf, og þær hafa reynst vel! Í árslok 1983 hafði ég aðeins dreift 36 blöðum allt árið! Ég var leið yfir því, ekki fyrst og fremst af því að talan var svona lág, heldur af því að mér hafði mistekist að koma þessu lífsnauðsynlega efni í hendur þeirra sem þurftu á því að halda. Ég lagði málið fyrir Jehóva í bæn og ákvað að leggja mig betur fram um að útbreiða Varðturninn og Vaknið! Ég færði mér í nyt tillögurnar um að setja mér ákveðið markmið hvað varðar útbreiðslu, hafa stutta kynningu með áherslu á aðeins eitt blað, að fara reglulega út í þjónustuna á akrinum á blaðadeginum og hafa jákvætt viðhorf. Þegar húsráðandi afþakkar hið venjulega tilboð segi ég núna: „Nú, þá vil ég gjarnan skilja eftir hjá þér nýjustu eintökin af Varðturninum og Vaknið! fyrir 40 sent.“ Það borgar sig sannarlega að fylgja þessum tillögum. Síðastliðna fjóra mánuði hef ég getað dreift fjórtán blöðum að meðaltali hvern mánuð.

13. Hvaða ráð frá 1888 er enn í fullu gildi?

13 Í desember árið 1888 var þetta ráð gefið í Varðturni Síonar undir fyrirsögninni „Tillaga til uppskerumannanna“: „Stærsti vandi margra virðist vera sá, að hjörtu þeirra eru svo full af hinum góða boðskap að þeir freistast til að segja helst til mikið frá áætlun Guðs.“ Er þetta ráð enn í fullu gildi? Aðspurður hvað boðberar gætu gert til að auka blaðadreifingu sagði farandhirðir í Frakklandi: „Verið stuttorðir og gagnorðir.“

14, 15. Hvernig geta myndirnar í Varðturninum og Vaknið! komið að gagni í boðunarstarfinu? Nefndu dæmi.

14 Á mörgum tungumálum eru blöðin prentuð í fjórum litum, og hafa myndirnar látið boðskapinn um Guðsríki höfða enn sterkar til þess ólíka fólks sem sér þau. Frá og með janúar á þessu ári var farið að prenta Vaknið! ásamt Varðturninum í fjórum litum á helstu tungumálum heims. En hvort sem myndirnar eru í lit eða ekki má nota þær til að vekja áhuga á boðskapnum. Margir hafa gert það með góðum árangri, til dæmis Theresa sem hefur verið trúboði í Austurlöndum fjær frá 1976. Hún dreifir 260 blöðum á mánuði. „Ég nota myndirnar til að leggja áherslu á aðalatriðin í kynningu minni,“ segir hún. „Oft sýni ég húsráðanda aðeins forsíðuna og nefni hvað greinarnar fjalli um, og blaðið nánast býður sig sjálft.“

15 Kay, sem er trúðboði í Súrinam, hefur svipaða reynslu. Hún hefur starfað þar með manni sínum í tíu ár og myndirnar hafa reynst þeim báðum áhrifaríkt hjálpargagn, einkum þegar þau hitta fyrir Hindúa. Kay gefur eftirfarandi skýringu:

Hindúatrúin er myndatrú. Við einar dyrnar spurði ég konu: „Hvað heita guðirnir á myndinni þinni?“

„Þetta er Síva,“ svaraði hún.

„En hver er æðsti guðinn?“ spurði ég þá. Hún svaraði ekki. „Eigum við að lesa Jeremía 10:10-12? Hvaða Guð getur kallað sig skaparann? Aðeins Jehóva. Við vitum að þú ert hrifin af myndum. Finnst þér ekki þessar myndir í Varðturninum og Vaknið! fallegar og athyglisverðar? Langar þig ekki til að athuga hvað þær merkja?“

Hvernig væri að reyna að nota myndirnar í kynningu þinni næst þegar þú ert úti í blaðastarfi?

16. Hvaða tillögur boðbera í Hong Kong geta hjálpað þér?

16 Þegar Gene þjónaði sem trúboði í Hong Kong dreifði hann til jafnaðar rúmlega 300 blöðum á mánuði. Hvaða aðferð mælir hann með? Hann svarar:

Í fyrsta lagi skaltu biðja Jehóva að blessa blaðastarfið. Í öðru lagi skaltu vera jákvæður, brosandi og vingjarnlegur. Í þriðja lagi skaltu vera sveigjanlegur og þægilegur í viðmóti og reyna að finna eitthvað sem þú og húsráðandinn geta verið sammála um. Í fjórða lagi skaltu panta nógu mikið af blöðum fyrir allan mánuðinn. Ég hef stóra blaðapöntun og það er mér hvöt til að vera kappsamur. Í fimmta lagi skaltu taka þér eitt kvöld í viku til blaðastarfs, því að þá hittir þú fleiri heima og fólk er oft í góðu skapi. Í sjötta lagi skaltu stofna blaðaleið, jafnvel þótt hún sé smá í sniðum.

Hvernig stofna má blaðaleið

17. (a) Á hvaða þátt blaðastarfs má heimfæra meginregluna í Postulasögunni 15:36? (b) Hvað geta boðberar meðal annars gert í löndum þar sem póstþjónusta er ótrygg?

17 „Ein leið til að auka blaðadreifingu er að halda nákvæma skrá um hvar blöðin hafa verið þegin og fara svo reglulega þangað aftur,“ segir Ollie sem hefur þjónað í Afríkuríkinu Burkína Fasó. „Í minni blaðaleið hef ég haft fimmtán manns. Þar sem blöð eru ekki prentuð í Burkína Fasó og póstdreifing ótrygg fá vottarnir oft blöðin sín í stórum bunkum, stundum fjögur til fimm tölublöð samtímis.“ Hvað er hægt að gera þar sem svo háttar til? „Það er hægt að halda öllum nýju blöðunum í hendinni, breiða úr þeim eins og blævæng og láta hinn áhugasama velja það sem hann helst vill lesa,“ segir Ollie. „Oftast taka þeir öll blöðin.“

‚Láttu hjartað svella af ljúfum orðum‘

18. Hvaða atriði í nýjustu starfsskýrslum eru sérlega hrósunarverð og hverju mætti gefa meiri athygli?

18 Þið boðberar Guðsríkis hafið stuðlað að því að áskrifendum hefur fjölgað stórlega að báðum tímaritunum. Þið eigið hrós skilið fyrir kostgæfni ykkar í að útbreiða fagnaðarerindið með þessum hætti. Það er einnig hrósunarvert að heildarblaðadreifing hefur aukist. Þó má vera að við getum hvert og eitt gefið því nánari gaum hvernig við stöndum okkur í blaðadreifingunni. Þar sem farið er enn oftar yfir starfssvæðið hefur blaðadreifing á hvern boðbera minnkað. Með því að nú er langt liðið á tíma endalokanna, getum við látið ‚hjarta okkar svella enn meira af ljúfum orðum‘ boðskaparins um Guðsríki með hjálp blaðanna. — Sálmur 45:2; 1. Pétursbréf 4:7.

19. Á hvaða tvo vegu getum við varið sannleikann um ríkið?

19 Í konungsskrúða sínum sækir Kristur nú fram til að upphefja hið heilaga nafn föður síns og drottinvald hans yfir alheimi. (Opinberunarbókin 6:2) Notum tungu okkar og prentað mál til að kunngera komu hans. Megum við kostgæf hefja upp raust okkar með hinum smurða varðmanni sem sameinaður Kristi heldur á lofti sannleikanum um stofnsett Messíasarríki Guðs. Við skulum dreifa Varðturninum og Vaknið! sem víðast — tímaritunum sem gegna veigamiklu hlutverki núna þegar konungur okkar ‚sækir fram sakir sannleikans.‘ — Sálmur 45:5.

Manst þú?

◻ Hver eru ‚ljúfu orðin‘ sem ættu að hrífa hjarta þitt?

◻ Hvað hefur það í för með sér að Kristur ‚sækir fram sakir sannleikans‘?

◻ Í hvaða skilningi þjóna Varðturninn og Vaknið! ‚málstað sannleikans‘?

◻ Hvernig getum við gefið vitnisburði með hjálp blaðanna meiri gaum?

[Rammi/mynd á blaðsíðu 18]

BLAÐADREIFING

Hefur þú reynt . . .

◆ Starf hús úr húsi?

◆ Götustarf?

◆ Starf í verslunum?

◆ Blaðaleið?

◆ Kvöldstarf?

◆ Þegar tilboð er afþakkað?

◆ Í endurheimsóknum?

◆ Hjá þeim sem hafa haft biblíunám?

◆ Á ferðalagi, í innkaupaferð?

◆ Þegar þú talar við ættingja, vinnufélaga, nágranna, skólafélaga eða kennara?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila