Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w87 1.5. bls. 7–8
  • Vottar Jehóva í trúboðsstarfi

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Vottar Jehóva í trúboðsstarfi
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Annað sjónarmið
  • Andlegri þörf fólks fullnægt
  • ‚Fyrst á að prédika fagnaðarerindið‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
  • Allir sannkristnir menn boða fagnaðarerindið
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2002
  • Borið vitni fyrir „öllum þjóðum“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
  • Söfnuðir skipulagðir til að prédika ríki Guðs
    Vottar Jehóva — sameinaðir í að gera vilja Guðs um allan heim
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
w87 1.5. bls. 7–8

Vottar Jehóva í trúboðsstarfi

TRÚBOÐAR votta Jehóva í Asíu og víðar eru oft spurðir: „Hvers vegna kennið þið ekki fólki ensku eins og aðrir trúboðar?“ „Eruð þið með skóla þangað sem ég get sent börnin mín eða spítala handa sjúkum?“ Svarið er auðvitað nei. En hvers vegna? Hvert er eiginlega markmiðið með starfi votta Jehóva? Hvað hafa þeir gert fyrir fólk í þessum löndum?

Annað sjónarmið

Óneitanlega hafa trúboðar kristna heimsins snúið mörgum til trúar með störfum sínum að velferðarmálum í samfélaginu. En þar eð slíkt starf beinist fyrst og fremst að því að fullnægja efnislegum þörfum fólks, ekki andlegum, hefur þessum trúboðum miðað hægt við að gera menn að sönnum lærisveinum Jesú Krists. (Matteus 7:22, 23; 28:19, 20) Og það sem enn meira máli skiptir; þeir hafa ekki getað bent á neina varanlega lausn á þeim þjóðfélagsmeinum sem þeir eru að reyna að sigrast á.

Vottar Jehóva beina hins vegar athygli sinni að því þýðingarmikla boði að prédika fagnaðarerindið um ríki Guðs. (Matteus 24:14) Ekki er svo að skilja að þeir loki augunum fyrir þjáningum manna og ranglætinu sem við blasir, heldur gera þeir sér grein fyrir að eina lausnin á þessum alvarlegu vandamálum er fólgin í að Guðsríki grípi í taumana, ekki að menn reyni að vinna bug á þeim. — Sálmur 146:3-10.

Það var einmitt þetta sem Jesús og lærisveinar hans prédikuðu á fyrstu öld. ‚Mér ber að flytja fagnaðarerindið um Guðsríki,‘ sagði Jesús, ‚því að til þess var ég sendur.‘ (Lúkas 4:43) Jesús vakti athygli á og prédikaði Guðsríki sem einu fullkomnu lausnina, því að hann vissi að vandamál heimsins voru of viðamikil til að menn gætu leyst þau af eigin rammleik. Þótt Jesús hafi læknað fjölda fólks með kraftaverki hvatti hann lærisveina sína til að ‚leita fyrst ríkis Guðs og réttlætis, og þá mundi allt þetta veitast þeim að auki.‘ — Matteus 6:33.

Síðar, þegar Jesús sendi út lærisveina sína, sagði hann þeim fyrst: „Farið og prédikið: ‚Himnaríki er í nánd.‘“ Síðan bætti hann við: „Læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda.“ (Matteus 10:7, 8) Þessi orð segja nútímalærisveinum Jesú Krists hvað þeir eigi að láta ganga fyrir. Þeir verða líka að láta prédikun fagnaðarerindisins um ríkið vera meginmarkmið sitt og láta það ganga fyrir störfum að mannúðarmálum. Trúboðar votta Jehóva leitast við að gera það.

Andlegri þörf fólks fullnægt

Vottar Jehóva starfa saman að geysiumfangsmikilli sjálfboðaþjónustu fólginni í því að fræða fólk um Biblíuna. Með því að þeir boða fagnaðarerindið er þeim mikið í mun að hjálpa öðrum að njóta gagns af visku og ráðum Biblíunnar, bæði nú og í framtíðinni. (Sálmur 68:12) Hvers vegna?

Vottum Jehóva er ljóst að þegar fólki er hjálpað til að skilja og fara eftir ráðum Biblíunnar er það betur í stakk búið að takast á við vandamál og álag lífsins. Í annan stað fær það nægilegt siðferðisþrek til að sigrast á vanabindandi og heilsuspillandi ósiðum svo sem reykingum, ofdrykkju, fíkniefnaneyslu, ónógu hreinlæti, fjárhættuspili og lauslæti. Í hinn stað hjálpa sannindi Biblíunnar fólki að taka hugarfarsbreytingu, gefur því tilgang í lífinu og raunhæfa framtíðarvon.

Með því að veita fólki þá æðstu menntun sem hugsast getur — menntun frá orði Guðs, Biblíunni — stuðla vottar Jehóva beinlínis að því að bæta siðferðilegt og líkamlegt heilsufar samfélagsins sem þeir búa í og prédika. Menn, sem hafa fylgst hlutlægt með starfi þeirra, hafa oft veitt því athygli. Til dæmis sagði dr. Bryan Wilson við Oxford-háskóla, sem rannsakaði starf votta Jehóva í Afríku, í bréfi til Lundúnablaðsins Times:

Vottar Jehóva eru iðjusamir og oft samvisku- og framtakssamari en gengur og gerist meðal samborgara þeirra. Leiðtogar þeirra leggja ríkt á við þá um að greiða skatta skilvíslega, forðast ofbeldi og gera ekki á hluta nokkurs manns. Þeir eru reglufastir, heiðarlegir og reglusamir. Þessir mannkostir þjónuðu mikilvægu hlutverki í efnahags- og þjóðfélagsþróun vestræns samfélags, og ýkjulaust má segja að vottar Jehóva séu meðal heiðarlegustu og iðjusömustu borgara Afríkulanda.

Í svipaðan streng var tekið í ritstjórnargrein í suður-amerísku dagblaði:

Vottar Jehóva eru iðjusamt, heiðarlegt og guðhrætt fólk. Þeir eru íhaldssamir og fastheldnir á forna hefð, og trú þeirra byggist á kenningum Biblíunnar.

Þótt vottar Jehóva reyni ekki að útbreiða fagnaðarerindið með því að beita sér fyrir líknar- og velferðarmálum stuðla þeir með áþreifanlegum hætti að hagsmunum samfélagsins með því að hjálpa öðrum að samlaga líf sitt hinum háleitu lífsstöðlum Biblíunnar. (Rómverjabréfið 12:1, 2) Mikilvægast er að þeir hjálpa líka fólki til að horfa fram yfir ranglæti og misrétti þessa hrörnandi heimskerfis til nýrrar skipanar Guðs sem brátt mun koma. — Opinberunarbókin 21:5.

[Myndir]

Þjóðfélagsmein sem Guðsríki mun lækna

Lestu eftirfarandi ritningarstaði í þinni eigin biblíu og láttu loforð Guðs um hvernig hann muni lækna þjóðfélagsmein á eftirfarandi sviðum hughreysta þig:

Menntun — Jesaja 11:9; Habakkuk 2:14.

Heilsufar — Jesaja 33:24; 35:5, 6; Opinberunarbókin 21:4.

Atvinna — Jesaja 65:21-23.

Fæða — Sálmur 67:7; 72:16; Jesaja 25:6.

Réttlæti — Jesaja 11:3-5; 32:1, 2.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila