Heiðarleiki greinir þá einnig frá fjöldanum
HJARTAÐ í honum tók viðbragð þegar hann sá sektarmiðann frá lögreglunni sem stungið hafði verið undir þurrkublaðið á bifreiðinni. Sektin nam 25 bandaríkjadölum og honum sveið þetta ranglæti. Ekkert merki var sjáanlegt sem bannaði að bifreiðum væri lagt þar. Það sem var enn verra var að hann var langt að kominn og hafði ekki efni á að koma aftur til borgarinnar til að áfrýja kærunni. Hann tók því ljósmyndir af staðnum til að sanna að engin bannmerki væru sjáanleg nokkurs staðar. Og með því að hann var einn votta Jehóva bað hann annan vott að mæta fyrir umferðardómstólnum í sinn stað.
Her fer á eftir frásögn vinar hans af því sem gerðist í réttarsalnum þann dag:
„Þegar kallað er á mann til að ganga fyrir dómarann ber honum að skýra frá nafni og heimilisfangi. Síðan er hann látinn sverja þess eið að segja satt. Áður en eiðstafurinn var lesinn upp fyrir mér bað aðstoðarmaður dómarans, aldraður maður, mig að endurtaka heimilisfangið. Þegar ég sagði ‚Columbia Heights 124‘ kannaðist hann greinilega við það sem aðsetur aðalstöðva Varðturnsfélagsins og votta Jehóva. Hann sneri sér að dómaranum og sagði: ‚Þú þarft engar áhyggjur að hafa af honum, dómari. Þetta er gott fólk. Það lýgur ekki! Það lýgur aldrei! Það getur ekki logið! Trú þess leyfir það ekki og það fylgir henni strangt. Ég hefi aldrei vitað til þess að nokkur karlmaður né einu sinni kona úr þeirra hópi segði ósatt. Þetta er eins heiðarlegt fólk og verið getur. Ég hef séð það mörgum sinnum þegar það hefði getað sloppið við stöðusekt með því að skrökva smávegis en það gerði það ekki.‘
Síðan sneri hann sér að mér og sagði: ‚Ég veit að þú myndir ekki ljúga vegna þess að þú veist hver myndi snúa sér við í gröfinni ef þú gerðir það.‘ ‚Hver er það?‘ spurði ég. ‚Dómarinn, Rutherford dómari [fyrrum forseti Varðturnsfélagsins],‘ svaraði hann. ‚Ég bar út póst til hans fyrir 47 árum. Ég þekkti votta Jehóva áður en þeir urðu stórir. Dómarinn var sko maður í lagi!‘
Eftir allt þetta gerði dómarinn sér ekki einu sinni það ómak að láta mig sverja eiðinn. Hann bað mig að gera grein fyrir málinu, sem ég og gerði. Dómur hans var: ‚Sýkn saka.‘“
Vottar Jehóva ‚vilja hegða sér heiðarlega í öllum greinum.‘ (Hebreabréfið 13:18) Fastheldni þeirra við heiðarleika er eitt af mörgu sem gerir þá ólíka heiminum.