Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w85 1.6. bls. 4–7
  • Hvers vegna verður að heyja Harmagedón

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvers vegna verður að heyja Harmagedón
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Merki um kærleika Guðs
  • Deilan um drottinvald
  • Til að fullnægja þörfum mannkynsins
  • Harmagedón — upphaf betri tíma
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2005
  • Hvað er stríðið við Harmagedón?
    Biblíuspurningar og svör
  • Eftir Harmagedón verður paradís á jörð
    Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð
  • HARMAGEDÓN — það sem það er ekki
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
w85 1.6. bls. 4–7

Hvers vegna verður að heyja Harmagedón

„GUÐ ER KÆRLEIKUR.“ Jóhannes postuli segir að Guð ekki aðeins sýni kærleika heldur sé kærleikur — sjálfur persónugervingur kærleikans. — 1. Jóhannesarbréf 4:8.

Samt er þessum sama Guði kærleikans oft lýst svo að hann sé hefnigjarn og refsi grimmilega þeim sem hafa glatað hylli hans. Þess vegna hafa margir annaðhvort misst trúna á Guð eða gera gys að Biblíunni; fullyrða að hún geti ekki verið komin frá slíkum Guði. Einkum er fundið harðlega að sumum hlutum Opinberunarbókarinnar þar sem lýst er dómum Guðs yfir hinum óguðlegu sem fullnægt er í Harmagedónstríðinu.

Til dæmis segir Joseph Wheless í bók sinni Is It God’s Word? (Er hún Guðs orð?): „Viðkvæmur maður þorir vart að lesa opinberunarsýnina um hina glaðlyndu, iðrunarfullu sál meðal vesælla syndara (annaðhvort vegna erfðasyndarinnar eða dauðasyndar) sem eru þar ‚kvaldir í eldi og brennistini í augsýn heilagra engla og lambsins‘ sem allir horfa á ánægðir með sjálfa sig á meðan ‚reykurinn af kvöl þeirra stígur upp um aldir alda og eigi hafa þeir hvíld dag eða nótt‘ fyrir grimmilegri reiði hins alvalda Guðs. (Opinb. xiv, 10, 11) Þetta er hin innblásna opinberun um Guð alls kærleika.“

Prófessor Gerald A. Larue við University of Southern California er líka ósammála frásögu Opinberunarbókarinnar. Hann sagði nýlega í tímaritinu Free Inquiry: „Þeim sem ekki trúa er þeytt niður í undirdjúp kvala sem afbýður ímyndunarafli okkar. Refsingin er hvorki lex talionis, auga fyrir auga réttvísi, né blóðhefndarréttvísi þar sem heill hópur er kannski þurrkaður út. (sbr. 1. Mósebók 4:23 [24]; Jós. 6; o.s.frv.). Hér er refsingin eilíf. Hér er engin miskunn, refsingin er endalaus. Hér er engin fyrirgefning, aðeins refsing sem útilokar frið tortímingarinnar. Hér er ekki verið að lýsa mildum og hógværum Jesú.“ Síðan vitnar hann í Opinberunarbókina 14:9-11 og heldur áfram: „Hér er ekki boðin hin kinnin — aðeins illúðleg, hamslaus hefnd og grimmd sem kemur píningum nasista til að blikna.“

Skiljanlegt er að hugmyndir um óendanlegar þjáningar syndara sem eru kvaldir um eilífð geti vakið efasemdir um að það eigi rétt á sér að tala um ‚Guð kærleikans.‘ En slíkar hugmyndir stafa af misskilningi á Biblíunni og táknmáli hennar. Biblían kennir hvergi að sálin sé ódauðleg. Hún segir berlega að ‚laun syndarinnar séu dauði‘ — ekki eilífar kvalir — og að skilningarvit mannsins, þar á meðal sársaukaskynið, deyji með honum. — Rómverjabréfið 6:23; Prédikarinn 9:5, 10.

Það er refsingin, ekki framkvæmd hennar, sem varir eilíflega — hinum óguðlegu er gereytt í ‚eldsdíkinu‘ sem er tákn algerrar tortímingar. (Opinberunarbókin 20:14, 15; 21:8) Samt sem áður mun stríðið við Harmagedón valda mannkyninu ólýsanlegum þjáningum og þrengingum, og það verður blóðugasta stríð sem háð hefur verið. (Matteus 24:21, 22; Opinberunarbókin 14:20; 19:17, 18) Kemur það frá ‚Guði kærleikans‘? Getur hugsast að hann láti slíkt stríð verða?

Merki um kærleika Guðs

Raunin er sú að stríðið við Harmagedón verður að eiga sér stað vegna kærleika Guðs. Það er ætlun Jehóva Guðs að jörðin endurheimti sitt upphaflega paradísarástand og að mannkynið búi á henni í friði og fullkomleika ‚og enginn hræði það.‘ (Esekíel 34:28; Míka 4:3, 4; Opinberunarbókin 21:4) Hvað á þá að gera við þá sem vegna glæpa sinna og ofbeldis myndu spilla öryggi manna í hinni endurreistu paradís? Menn hafa enga lausn fundið enn á því vandamáli. Eina leiðin til að tryggja fullkominn frið er að láta hverfa jafnvel hættuna á mannvonsku. Guð er tilneyddur að tortíma þeim sem eru óforbetranlegir sakir hinna sem vilja gera það sem rétt er. Vegna kærleika lætur hann til skarar skríða að hreinsa jörðina af þeim sem annars myndu eyðileggja hana. — Opinberunarbókin 11:18.

En enginn þarf að deyja. Guð „vill að allir menn verði hólpnir,“ skrifar Páll postuli. (1. Tímóteusarbréf 2:4) Og Pétur, sem einnig fékk innblástur, segir: „Hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar.“ (2. Pétursbréf 3:9) Guð hefur búið svo um hnútana að ‚fagnaðarerindið um ríkið‘ sé prédikað til að sérhver einstaklingur hafi tækifæri til að vinna að sínu eigin hjálpræði. (Matteus 24:14; Filippíbréfið 2:12; Galatabréfið 6:5) Þú getur lifað að eilífu sem fullkominn maður í paradís á jörð. Það er þitt að velja. (Rómverjabréfið 2:5-9; Esekíel 18:23, 32) Væntir þú ekki slíks af Guði kærleikans?

Deilan um drottinvald

Til að tryggja fullkominn frið og rósemi verður aðeins ein stjórn yfir allri jörðinni — ríki Guðs. Hafa ekki hinar mörgu stjórnir mannanna, sem allar hafa keppt að sínum eigingjörnu og þjóðernislegu markmiðum, valdið miklu af ófriði og blóðsuthellingum jarðarinnar? Þessum stjórnum verður að ryðja úr vegi til að hin réttláta stjórn ríkis Guðs í höndum Krists komist að. (Daníel 2:44) Þú hefur beðið um þessa himnesku stjórn þegar þú hefur haft yfir fyrirmyndarbænina sem Jesús kenndi lærisveinum sínum: „Til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ — Matteus 6:10.

En hvaða stjórn þekkir þú sem er fús til að afsala sér völdum og beygja sig að fullu og öllu undir ríki Guðs? Ríghalda ekki stjórnir mannanna í völd sín og reyna í sífellu að auka þau án tillits til hins stofnsetta ríkis Guðs? (Sálmur 2:1-9) Hafa nokkurn tíma sést þess nokkur merki að þjóðirnar muni afsala sér völdum í hendur Guði og Kristi? Vanmáttur Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frið í heiminum sýnir hversu ófúsar þjóðirnar eru til að láta í minni pokann og lúta nokkru yfirvaldi þegar eigingjarnir þjóðarhagsmunir eru annars vegar. Þjóðirnar eru staðráðnar í að stýra málum jarðarinnar eins og þeim sjálfum þóknast. (Opinberunarbókin 17:13, 14; 19:19) Því verður að heyja Harmagedónstríðið til að stöðva þetta þrátefli og útkljá í eitt skipti fyrir öll deiluna um hver hefur réttinn til að stjórna jörðinni.

Til að fullnægja þörfum mannkynsins

Þegar Jehóva Guð heyr Harmagedónstríðið ber hann hag mannkynsins fyrir brjósti. Hugleiddu þetta: Hvað finnst þér um ástandið í heiminum núna? Ert þú ánægður með það eins og það er? Finnur þú til öryggiskenndar frammi fyrir kjarnorkuógnuninni? Ert þú sleginn óhug vegna vaxandi ofbeldis og dvínandi öryggis í þínu byggðarlagi? Óttast þú um börn þín og framtíð þeirra? Hvaða lausn sýnist þér vera í sjónmáli? Hefur nokkur stjórn nokkurn tíma sýnt sig geta tryggt öllu mannkyninu frið og velsæld? Hefur nokkur þeirra nokkurn tíma getað unnið bug á sjúkdómum eða dauðanum? Hefur ekki ástand heimsmála síversnað þrátt fyrir tækniframfarir mannsins; meira að segja oft vegna slíkra framfara? Það er aðeins réttlátt ríki Guðs sem mun fullnægja þörfum mannkynsins. Það er aðeins fyrir þess tilverknað sem sannur friður mun geta ríkt um alla jörðina. Harmagedónstríðið er nauðsynlegt!

En hvað um þær þjáningar og þrengingar manna sem verða munu samfara því er Guð gengur fram til að hreinsa jörðina? Þær hafa alltaf verið fylgifiskur styrjalda og verða einnig í Harmagedón, þó aðeins vegna þess að þjóðirnar eru eitilharðir andstæðingar guðræðisstjórnar. Þær eru staðráðnar í að berjast og spyrna við fótum. (Sálmur 2:2, 3) Það er ekki Guði að kenna. Hann aðvarar þær nægilega skýrt: „Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu. Þjónið [Jehóva] með ótta og fagnið með lotningu. Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.“ — Sálmur 2:10-13.

Hugleiddu eitt andartak hvernig ástandið myndi verða í heiminum ef Guð ekki skærist í leikinn til að bæta það. Myndu ekki styrjaldir, ofbeldi og hatur halda áfram af jafnmiklu afli og verið hefur um allar þær aldir sem maðurinn hefur farið með stjórn? Er ekki svo komið nú að öllu mannkyninu er ógnað með kjarnorkuvopnastríði og meðfylgjandi geislavirknimengun? Harmagedón er í rauninni það besta sem hent getur jörðina! Það mun stöðva eigingjarna helför þjóðanna. Það mun ryðja úr vegi því kerfi sem veldur mannkyninu eymd og volæði svo að rúm verði fyrir réttláta nýja skipan þar sem sorgir, sársauki og dauði af mannavöldum hverfur fyrir fullt og allt. Þá mun ‚hið fyrra vera farið‘ eins og Guð hefur lofað. — Opinberunarbókin 21:4; 2. Pétursbréf 3:13.

Við verðum að muna að í visku sinni veit Guð hvað er mannkyninu fyrir bestu og hvers er þörf til að koma því á. Jafnvel stjórnir í höndum manna hafa mælt með og farið í stríð til að berjast gegn því sem virtist óréttlátt eða því sem þær álitu göfugan málstað. En aðeins Guð býr yfir visku til að heyja fullkomlega réttlátt stríð. Aðeins hann getur háð stríð þar sem réttsinnað fólk verður verndað, hvar sem það býr á jörðinni. (Matteus 24:40, 41; Opinberunarbókin 7:9, 10, 13-17) Og aðeins Guð hefur rétt til að knýja fram sitt drottinvald um alla jörðina því hún er hans sköpun. Já, Harmagedónstríðið verður að heyja til að uppræta alla illsku og mannvonsku að eilífu, binda enda á óréttvísi, kúgun og falstrúarbrögð, meira að segja að uppræta orsakir syndarinnar og að helga að fullu hið heilaga nafn Guðs. Og það verður háð því að „Guð er kærleikur“!

[Mynd á blaðsíðu 6, 7]

Harmagedón . . . . . . ryður brautina fyrir friði

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila