Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w85 1.4. bls. 15–20
  • Stjórn sem áorkar þvi sem menn geta ekki

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Stjórn sem áorkar þvi sem menn geta ekki
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Frumreglan um endurlausn
  • Menntun í hinni nýju skipan
  • Paradís byggð
  • Allir jarðarbúar sem sameinuð fjölskylda
  • Safnist til sannrar tilbeiðslu
  • „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“
    „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“
  • Brátt verður paradís á jörð
    Lífið — varð það til við þróun eða sköpun?
  • Ríki „sem aldrei skal á grunn ganga“
    Tilbiðjum hinn eina sanna Guð
  • Guðsríki — hin nýja stjórn jarðarinnar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2001
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1985
w85 1.4. bls. 15–20

Stjórn sem áorkar þvi sem menn geta ekki

„Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum.“ — Sálmur 66:5.

1, 2. (a) Hvernig gefur hinn sýnilegi alheimur til kynna hið ógnvekjandi afl skaparans? (b) Hvers vegna ættum við að trúa því sem spádómlegt orð Jehóva segir um okkar tíma?

JEHÓVA hefur mátt til að gera það sem menn geta ekki. Tökum dæmi: Mönnunum stendur ógn af alfi kjarnorkusprengjunnar; en afl hennar er lítilfjörlegt í samanburði við það ógnarafl sem er í sólinni okkar. Þó er sólin okkar aðeins ein af um það bil 200 milljörðum stjarna sem tilheyra vetrarbrautinni okkar einni. Stjörnufræðingar áætla að um allan alheiminn kunni að vera um það bil 100 milljarðar vetrarbrauta og hver þeirra innihaldi milljarða stjarna. Hversu yfirþyrmandi orku hefur ekki þurft til að skapa þetta allt saman! (Jesaja 40:26) Þetta ógnarafl skaparans lætur afl það sem maðurinn ræður yfir verða afskaplega lítilfjörlegt. — Jesaja 40:15.

2 Enginn ætti þess vegna að efast um að Jehóva geti komið því til leiðar sem hann segist ætla að gera. (Jesaja 46:9, 10; 55:11) Þegar spádómlegt orð hans segir okkur að við nálgumst nú enda þeirra tímamarka sem hann hefur leyft manninum að ganga sinn eigin veg, óháður honum, þá ættum við að trúa því. Sagan sýnir að hvernig menn hafa farið með mannslífið, líf dýranna, og jafnvel jörðina sjálfa er svívirða, blettur á alheimi Guðs. Jehóva er þess vegna í fullum rétti að afmá þennan blett í eitt skipti fyrir öll. — Hósea 4:1-3; Júdasarbréfið 14, 15.

3. Hvað segja spádómar Biblíunnar um næstu framtíð?

3 Það sem á sér stað á sviði heimsmálanna nú á tímum er greinilegur vitnisburður um það að þetta heimskerfi sé núna statt á síðasta stigi hinna ‚síðustu daga‘ sem spáð var úm í 2. Tímóteusarbréfi 3. kafla. Jehóva mun bráðlega brjóta þetta kerfi niður og eyða alveg, og gera höfuð þess, Satan djöfulin, óvirkt. Því næst mun koma algerlega nýtt kerfi á jörðinni, og með völdin mun þá fara sú himneska stjórn sem Jesús kenndi fylgjendum sínum að biðja um þegar hann sagði: „Til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ — Matteus 6:10; Daníel 2:44; Rómverjabréfið 16:20.

Frumreglan um endurlausn

4. Hvernig notaði Jehóva frumregluna um endurlausn í Ísrael til forna?

4 Stjórnir manna geta ekki útrýmt syndinni, sjúkdómum og dauða. Stjórn Guðs mun þó gera það sem menn geta ekki. Við fáum svolitla innsýn í hvernig þetta mun verka með því að rannsaka samskipti Jehóva við fólk sitt í Ísrael til forna. Á þeim tíma notaði Guð frumregluna um endurlausn, eða lausnargjald. Ef til dæmis Ísraelsmaður steyptist í fátækt þurfti hann ef til vill að selja sjálfan sig í þrældóm til enhvers sem ekki var Ísraelsmaður. En náinn ættingi gat keypt hann lausan ef hann hafði til þess nægilegt lausnarfé. — 3. Mósebók 25:47-49.

5, 6. (a) Hvernig er frumreglunni um endurlausn beitt til að losa mannkynið undan erfðasyndinni? (b) Er hver og einn sjálfkrafa leystur frá syndinni?

5 Á svipaðan hátt hefur Guð opnað leiðina fyrir endurlausn mannkynsins frá þrælkun við syndina. Gjaldið þyrfti að jafngilda því sem hafði tapast. (5. Mósebók 19:21) Adam glataði fullkomnu, eilífu mannslífi. Þar sem syndugir menn eiga ekkert sem jafnast á við það geta þeir ekki „keypt bróður sinn lausan.“ (Sálmur 49:8) Biblían segir samt sem áður frá komu þess sem gæti gert slík kaup. Sá aðili reyndist vera Jesús Kristur. Það var opinberað að Jesús hafði lifað á himni áður en hann varð maður. Jehóva flutti síðar líf hans í leg Maríu með mætti sínum. Á þennan hátt fæddist hann sem mannvera. En þar sem Guð var faðir hans tók hann ekki í arf syndina og ófullkomleikann sem hefur verið öllum öðrum mönnum fjötur um fót. — Matteus 1:18-21; Jóhannes 1:1, 14; 1. Pétursbréf 2:22.

6 Þannig átti Jesús það eina sem var jafngilt fullkomnu mannslífi — annað fullkomið mannslíf. En andstætt Adam var Jesús hlýðinn Guði. Og þegar hann gaf mannkyninu líf sitt tók Jehóva við því sem hæfilegu endurlausnargjaldi. (Galatabréfið 1:4) En þýðir þetta að sérhver sé sjálfkrafa leystur frá syndinni og muni öðlast fullkomleika undir stjórn Guðsríkis? Nei, af því að Jóhannes 3:16 segir: „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Því aðeins að við þiggjum endurlausnina sem okkur stendur til boða og gerum eitthvað í málinu munum við fá að reyna það að líkamar okkar og hugir verði endurreistir til fullkomnunar í paradís. — Opinberunarbókin 21:4.

Menntun í hinni nýju skipan

7, 8. Hvaða hæfileikum býr heilinn yfir til að læra í framtíðinni?

7 Hugur mannsins býr yfir geysimikilli hæfni til að taka við þekkingu, jafnvel í því ófullkomna ástandi sem hann er núna. En það er aðeins örlítið brot af því sem hugurinn mun geta lært og tekið við í hinni nýju heimsskipan þar sem syndin mun ekki verka takmarkandi á starfsemi hans. Í ritinu The Brain Book Segir höfundurinn: „Inni í höfðum okkar er að finna flóknasta kerfið í öllum hinum þekkta alheimi. Máttur þess og fjölhæfni fer langt fram úr því sem nokkur tölva getur gert.“ Hann bætir við: „Því er oft haldið fram að við notum aðeins 10 prósent af fullri getu hugans. Nú virðist vera að þetta sé frekar of hátt áætlað. Líklega notum við ekki einu sinn 1 prósent — meiri líkur eru á að við notum 0,1 prósent eða minna.“

8 Reynið að ímynda ykkur hvað mannsheilinn mun gera mönnum kleift að áorka þegar hann nær fullri hæfni sinni í hinni nýju heimsskipan. Hugsið um allt það stórkostlega sem Jehóva hefur skapað hér á jörðinni og við getum lært um, eins og dýrin, lífið í sjónum og plönturnar Hugsið einnig um hvernig það væri að læra um hinn undraverða alheim með öllum sínum milljónum vetrarbrauta. Hugsið um alla þá hæfni sem við munum geta öðlast í listsköpun, hljóðfæraleik, tónsmíðum, ýmiss konar iðnaði og fjölda annarra viðfangsefna.

9. Hvers konar fræðsla mun færa með sér mjög mikinn hagnað í hinni nýju heimsskipan?

9 Í hinni nýju heimsskipan verður þó til önnur tegund menntunar sem mun færa mönnum meiri hagnað en allt annað. Jesús sagði: „Þeir munu allir verða af Guði [Jehóva] fræddir.“ (Jóhannes 6:45) Þetta er sú æðsta menntun sem hugsast getur. Og hún mun standa öllum þegnum Guðsríkis til boða, þar með töldum þeim sem lifa af endalok núverandi heimskerfis. (Opinberunarbókin 7:9, 14) Í Jóhannes 5:28 og 29 er minnst á aðra þegna Guðsríkis. Jesús sagði þar: „Sú stund kemur, þegar allir þeir, sem í gröfunum eru, munu heyra raust hans og ganga fram.“ Þessi upprisa milljarðra dauðra manna — sem er algerlega óhugsandi að menn geti komið til leiðar — mun þýða að sinna þarf umfangsmiklu fræðslustarfi í þeirra þágu.

10. Hvernig mun kennslan fara fram í hinni nýju skipan?

10 Nú á dögum eru til mörg ósamhljóða fræðslukerfi. En í hinni nýju heimsskipan mun himnesk stjórn Guðs starfrækja eitt fræðslukerfi um allan heiminn til að kenna fólki sannleikann um Jehóva á samræmdan hátt. Einn þáttur þeirra fræðslu mun verða að kenna fólki rétta og viðeigandi framkomu hvert við annað. Þar mun engum verða kennt að líta stórt á sig vegna kynþáttar síns, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu. Í stað þess munu íbúar jarðarinnar læra að elska hver annan, virða manngildi hvers annars og ágæti. Slík fræðsla mun einnig leiða til heilnæmrar endurnýjunar á persónuleika manna til þess að þeir endurspegli frábæra eiginleika Jehóva. — Postulasagan 10:34, 35; Kólossubréfið 3:9-12.

11, 12. Hvernig getum við verið viss um að slík fræðsla í hinni nýju heimsskipan muni bera tilætlaðan árangur?

11 Getur slík fræðsla í raun og veru borið tilætlaðan árangur? Við erum sannfærð um að hún bæði geti og muni gera það. Ein ástæða þess er sú að Jehóva, sem getur ekki logið, segir að hún muni bera árangur. (Títusarbréfið 1:2) Auk þess fer þessi tegund fræðslu fram nú þegar með góðum árangri! Jehóva hefur nú þegar fræðslukerfi, sem nær út um allan heim og er í óða önn að fræða milljónir manna um stjórn ríkis hans og þær kröfur sem hún gerir til þegna sinna. Þetta á sér stað vegna þess að stjórn Guðsríkis hefur verið starfandi síðan hinir ‚síðustu dagar‘ hófust árið 1914.

12 Síðan þá hefur spádómurinn í Matteusi 25. kafla verið að rætast. Hann sýnir að Jesús kemur og fær í hendur stjórnartauma Guðsríkis á meðan óvinir Guðs eru enn þá á jörðinni. Vers 32 segir: „Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum, og hann mun skilja hvern frá öðrum, eins og hirðir skilur sauði frá höfrum.“ Jehóva er nú að kenna þessum sauðumlíku mönnum fyrir milligöngu vaxandi sýnilegs skipulags síns. Þeir kunna að meta það sem þeir læra og leggja sig þess vegna fram við að líkja eftir eiginleikum Guðs. Og sú staðreynd að þessi fræðsla hefur nú þegar góð áhrif á milljónir manna er öruggt merki þess að hún muni einnig gera það, en í miklu stærra mæli, í nýrri skipan Guðs.

Paradís byggð

13. Hvaða mikla byggingarstarf mun eiga sér stað undir stjórn Guðsríkis?

13 Annað verkefni, sem framkvæmt mun verða undir stjórn Guðsríkis, er að breyta þessari jörð í paradís. Í paradís gætu ekki verið fátækrahverfi eða örbirgð. Fólk vill sómasamleg og falleg heimili og eitthvert land með trjám, blómum og görðum. Slíkt munu þeir öðlast sem fúsir eru að láta Jehóva kenna sér. Í Jesaja 65:21 og 22 er spáð: „Þeir munu reisa hús og búa í þeim, og þeir munu planta víngarða og eta ávöxtu þeirra. Eigi munu þeir reisa og aðrir í búa, eigi munu þeir planta og aðrir eta, . . . mínir útvöldu skulu sjálfir njóta handaverka sinna.“

14, 15. Hvers vegna getum við treyst því að þjónar Jehóva verði færir um að byggja upp paradís?

14 Dragið ekki í efa það sem Jehóva mun koma til leiðar með fúsum hjörtum og höndum fólks síns í hinni nýju skipan. Jafnvel núna eru menn í byggingariðnaðinum furðu lostnir yfir því sem vottar Jehóva framkvæma er þeir reisa sér byggingar, eins og Ríkissalina sem byggðir eru á fáeinum dögum. Eftir að einn þeirra hafði verið byggður í Bandaríkjunum sagði í forystugrein dagblaðs: ‚Þessir 2000 sjálfboðaliðar sköpuðu eitthvað verðmætara en byggingu. Sveitarstjórnarmenn ættu að skoða betur hverju var áorkað síðustu helgi. Eldmóður, hollusta við málstað og löngun til að ná settu marki var beislað þar með undraverðum árangri. Ef staðbundnir hópar gætu aðeins virkjað þessar sömu orkulindir gæti hvaða markmið sem vera skal — hvort sem það væri endurvinnsla iðnaðarvara, hefting glæpa eða önnur framfaramál samfélagsins — verið innan seilingar. Herskari vinnumanna sannaði hvaða möguleikar eru fyrir hendi þegar samfélag er sameinað. Við vonum að Ríkissalurinn verði vottunum brunnur sem þeir geta ausið innblástur upp úr. Tilvera hans er nú þegar innblástur fyrir okkur öll.‘

15 Þessi fúsleiki og vaxandi hæfni þjóna Jehóva mun koma að enn meiri notkun í nýrri heimsskipan Guðs. Og hversu ánægjulegt mun það ekki vera að hreinsa til á öllum þeim óæskilegu stöðum sem núna spilla jörðinni og byggja þar síðan fögur heimili í fögru umhverfi! Hvílíka fullnægju mun það veita okkur að vita að á hverjum degi mun viðleitni okkar færa þessa jörð einum degi nær því að verða paradís!

Allir jarðarbúar sem sameinuð fjölskylda

16. Hvers vegna muni íbúar hinnar nýju heimsskipanar aldrei finnast þeir þurfa að óttast ofbeldi?

16 Íbúar í hinni nýju heimsskipan munu ekki heldur þurfa að óttast glæpi, uppreisnir eða styrjaldir. Sálmur 46:10 segir: „[Guð] stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar.“ ‚Friðarhöfðinginn,‘ Jesús Kristur, mun sjá um að varanlegur friður verði á jörðinni af því að „mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka.“ (Jesaja 9:6, 7) Sannur friður mun ríkja og allt mannkynið mun verða frætt um hina sömu háu staðla Guðs. Þess vegna munu allir menn verða tengdir órjúfanlegum kærleiksböndum. Þá verður engin þörf á sundrandi landamærum milli þjóða.

17. Hversu langt nær sá friður og sú eining sem þjónar Guðs njóta nú þegar?

17 Eru slík loforð of góð til að vera sönn? Nei, vegna þess að friður og eining er nú þegar orðinn raunveruleiki meðal þeirra sem eru trúfastir þegnar Guðsríkis! Hugleiddu eftirfarandi: Meira en tvær og hálf milljon votta Jehóva eru dreifir um alla jörðina. Engu að síður uppfylla þeir nú þegar spádóminn í Jesaja 2:4 sem segir: „Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.“ Vottar Jehóva munu ekki undir nokkrum kringumstæðum viljandi taka líf bræðra sinna eða nokkurs annars manns í nokkru landi. Það er eins og ítalska dagblaðið Il Corriere di Trieste sagði: „Þeir eru reiðubúnir að horfast í augu við dauðann frekar en að brjóta grundvallarboðorðið . . . ÞÚ SKALT EKKI MORÐ FREMJA!“ Sökum þess að vottar Jehóva halda fast við mælikvarða Guðs ríkir sannur friður og eining meðal þeirra sem er ómögulegt fyrir þennan heim að öðlast. Og sú staðreynd að milljónir þeirra eiga slíku að fagna mitt í þessum deilugjarna heimi er vitnisburður um það sem mun eiga sér stað þegar stjórn Guðsríkis stjórnar öllum málefnum jarðarinnar. — Jóhannes 13:34, 35; 1. Jóhannesarbréf 3:10-12.

18, 19. Hvað fleira má nefna varðandi þann hagnað sem þeir njóta er halda sér við háan staðal Guðs?

18 Þegar fólk heldur sér þannig fast við mælikvarða Guðs ríkir ekki aðeins alþjóðlegur friður og eining meðal þess heldur er því umhugað um nágranna sína og það ber virðingu fyrir eignum þeirra. Þess vegna ‚breytir það heiðarlega í öllum greinum.‘ (Hebreabréfið 13:18) Í þessu samhengi sagði fransk-kanadískur dálkahöfundur í blaðinu Le Journal de Montreal um votta Jehóva: „Ef þeir væru eina fólkið í heiminum þyrftum við ekki á nóttunni að læsa hurðum okkar og kveikja á þjófakerfinu.“

19 Þessir trúföstu þegnar stjórnar Guðsríkis þurfa ekki eins og heimurinn að kljást við glæpavandamál innan síns samfélags. Þar sem þeir fara eftir hinum háa siðgæðismælikvarða Biblíunnar plága þá ekki heldur kynsjúkdómar eða fóstureyðingar sem eru að verða faraldur hjá hverri þjóð. Og þjónar Jehóva bera djúpa virðingu fyrir hjónabandinu sem sker sig úr frjálslyndi heimsins í hjúskaparmálum. Hvers vegna geta vottar Jehóva haldið uppi svo háum staðli? Vegna þess að Jehóva leiðbeinir trúföstum tilbiðjendum sínum og „Guð megnar allt.“ — Matteus 19:26.

Safnist til sannrar tilbeiðslu

20. Hver er mikilvægasta hreyfingin á okkar tímum?

20 Hvort sem menn gera sér grein fyrir því eða ekki er söfnun sauðumlíkra manna um allan heim inn í skipulag Jehóva mikilvægasta hreyfing okkar tíma. Með því uppfyllist hinn merkilegi spádómur í Jesaja 2:2, 3: „Það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús [Jehóva] [hin sanna, hátt upp hafna tilbeiðsla á honum] stendur á, mun grundvallað verða á fjalltindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu allir lýðirnir streyma. Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: ‚Komið, förum upp á fjall [Jehóva], . . . svo að hann kenni oss sína vegu og vér megum ganga á hans stigum.‘“

21. Hvað er hreinhjartað fólk hvatt til að gera?

21 Við hvetjum allt hreinhjartað fólk að verða hluti þessarar hrífandi heimshreyfingar til sannrar tilbeiðslu og réttlátrar stjórnar. Njóttu þeirrar blessunar sem nú þegar kemur frá því að eiga samskipti við fólk sem er uppfrætt í lögum Guðs og frumreglum. Fylgdu af trúfesti stjórn Guðsríkis að málum, stjórn sem innan skamms byrjar að breyta þessari jörð í paradís. Settu traust þitt á Guðsríki en ekki fyrirætlanir þessa heims því eins og Sálmur 127:1 segir: „Ef [Jehóva] byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis.“ Þú skalt bregðast jákvætt við boðinu í Sálmi 66:5: „Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum.“ Komið þess vegna til þess Guðs sem gefur okkur tryggingu fyrir bestu stjórninni sem mannkynið getur fengið, stjórn sem mun áorka því sem menn geta ekki, stjórn sem mjög bráðlega mun verða eina stjórnin sem þessi jörð mun hafa.

Manst þú?

◻ Hvernig getum við verið örugg um að Jehóva muni koma fram tilgangi sínum?

◻ Hvernig er frumreglunni um endurlausn beitt til að létta af mönnum syndinni?

◻ Hvaða mikla fræðslu- og byggingarstarf mun fara fram í hinni nýju skipan?

◻ Hvaða sannanir er nú þegar að finna um það að friður, eining og kærleikur muni verða um alla jörð í hinni nýju heimsskipan?

[Mynd á blaðsíðu 17]

Undir stjórn Guðsríkis munu sannleiks-elskandi menn „allir verða af Guði fræddir“

[Mynd á blaðsíðu 19]

Friður og eining er nú þegar raunveruleiki meðal þeirra sem gerast þegnar Guðsríkis

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila