„Allur Ísrael“ frelsaður til að blessa allt mannkyn
„Af þínu afkvæmi skulu allar þjóðir á jörðinni blessun hljóta, vegna þess að þú hlýddir minni röddu.“ — 1. Mósebók 22:18.
1. Hvers vegna ætti lýðveldið Ísrael ekki að halda sig vera leið Guðs til að blessa allt mannkyn, aðeins vegna þess að það tilheyrir Sameinuðu þjóðunum?
JEHÓVA hét Abraham að allar fjölskyldur og þjóðir jarðarinnar myndu hljóta blessun vegna afkomenda hins trúfasta ættföður. (1. Mósebók 12:3; 22:17, 18) En þessi fyrirheit, sem gefin voru á 20. öld fyrir okkar tímatal, merkja ekki að Guð muni blessa Sameinuðu þjóðirnar, arftaka hins fallna Þjóðabandalags. Þar eð lýðveldið Ísrael á aðild að Sameinuðu þjóðunum er þess ekki að vænta að Guð Forn-Ísraels noti það til að blessa allt mannkynið. Sameinuðu þjóðirnar standa í rauninni í vegi fyrir ríki Guðs í höndum ‚afkvæmis‘ Abrahams og eru því nú á tímum „viðurstyggð eyðingarinnar.“ (Matteus 24:15) Sameinuðu þjóðirnar eru ekki blessun þótt klerkar kristna heimsins og rabbínar gyðingdómsins biðji um blessun himinsins yfir þessi alþjóðasamtök. Þau eru í rauninni „líkneski af dýrinu,“ en það ‚dýr‘ er hið sýnilega stjórnmálaskipulag ‚guðs þessa heims,‘ Satans djöfulsins. Sameinuðu þjóðunum verður því bráðlega eytt með þessum dýrslegu samtökum. — Opinberunarbókin 13:1-18; 2. Korintubréf 4:4.
2. Hvernig eru leifar ‚alls Ísraels‘ ólíkar lýðveldinu Ísrael í verkum?
2 Lýðveldið Ísrael berst fyrir tilveru sinni gegn öðrum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. En leifar ‚alls Ísraels‘ líkja ekki eftir lýðveldinu Ísrael. (Rómverjabréfið 11:26) Þessar leifar tilbiðja ekki „líkneski dýrsins“ heldur afhjúpa hvað Sameinuðu þjóðirnar eru í augum Guðs — svikatál sem tælir fólk til að reiða sig á viðleitni manna í stað ríkis Jehóva í höndum Jesú Krists. Af þeim ástæðum halda leifar ‚alls Ísraels‘ áfram að vera hluti alþjóðaskipulags Jehóva. Nú þegar reynast leifar hins andlega ‚afkvæmis Abrahams‘ vera blessun öllum þjóðum og ættum mannkynsins. Spádómar og fyrirheit Jehóva hafa því reynst sönn.
3, 4. Hvað innblés Jehóva Jesaja að skrifa um ‚alla lýði‘ um 2700 árum fyrir 1914?
3 Fyrir meira en 2700 árum vísaði Jehóva Guð fram til tíma þegar skriðdrekar úr stáli og flugvélar yrðu notaðar í fyrsta skipti í hernaðarátökum, þegar menn myndu sérhæfa sig í skotgrafahernaði, hermenn myndu nota gasgrímur, og langdrægar fallbyssur eins og „Stóra Berta“ yrðu notaðar í allsherjarstyrjöld. Já, um 27 öldum fyrir fyrri heimstyrjöldina blés Jehóva Guð spámanninum Jesaja í brjóst að lýsa öðrum atburðum sem verða myndu á þeim tíma:
4 „Orðið, sem Jesaja Amozsyni vitraðist um Júda og Jerúsalem. Það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús [Jehóva] stendur á, mun grundvallað verða á fjallatindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu allir lýðirnir streyma. Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: ‚Komið, förum upp á fjall [Jehóva] frá Jerúsalem. Og hann mun dæma meðal lýðanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar. Ættmenn Jakobs, komið, göngum í ljósi [Jehóva].“ — Jesaja 2:1-5.
5. Hvernig ber að líta á spádóm Jesaja um ‚hús Jehóva‘ með hliðsjón af atferli lýðveldisins Ísraels?
5 Við sjáum þennan dýrlega spádóm ekki uppfyllast núna í Jerúsalem Miðausturlanda, höfuðborg lýðveldisins Ísrael. Á því sem kallað var Síonfjall stendur ekki núna musteri Jehóva heldur moska múhameðstrúarmanna helguð Allah, Klettamoskan. Ferðamenn víða að heimsækja þennan tilbeiðslustað, ekki til að tilbiðja heldur fyrst og fremst til að skoða þessa fögru byggingu. Augljóst er því núna að „á hinum síðustu dögum“ þessa dauðsjúka heimskerfis er spádómur Jesaja alls ekki að uppfyllast á Ísraelsríki nútímans. Það ríki er ekki „allur Ísrael“ sem á að frelsast til blessunar öllu mannkyni til að uppfylla fyrirheit Jehóva við Abraham. Því ber að skoða spádómsorðin „fjall það, er hús [Jehóva] stendur á,“ frá andlegum sjónarhóli og með „Ísraels Guðs“ í huga. — Galatabréfið 6:16.
6. (a) Hvernig sýndi Pétur fram á hvers konar þjóð „Ísraels Guðs“ væri? (b) Hvað var að gerast í heiminum þegar ‚allar þjóðir‘ byrjuðu að streyma til ‚húss Jehóva‘?
6 Þessi „Ísrael Guðs“ er andleg þjóð eins og Pétur postuli gaf til kynna þegar hann skrifaði: „Þér eruð ‚útvalin kynslóð, konunglegt prestafélag, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þér skuluð víðfrægja dáðir hans,‘ sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss.“ (1. Pétursbréf 2:9) Leifar þessarar ‚helgu þjóðar‘ nú á tímum standa sem tákn um ‚hús Jehóva‘ og þær eru kjarni votta Jehóva nútímans. Liðið var 21 ár á ‚hina síðustu daga‘ — þegar rómversk-kaþólskur fasismi og nasismi Hitlers voru í algleymingi í Evrópu — er „allir lýðirnir“ byrjuðu að streyma til hins andlega ‚húss Jehóva‘ sem hafði eins og verið hafið yfir fjallatindana af vottum Jehóva.
7. Hvers vegna var það ekki lítilvægt mál er þjóðirnar byrjuðu að streyma til ‚húss Jehóva‘?
7 Þessi mikilvæga byrjun einkenndist af almennu móti síðla vors 1935 í Washington, D.C., höfuðborg Bandaríkja í Norður-Ameríku. Í mjög athyglisverðri ræðu á því móti leiðrétti meðlimur ‚alls Ísraels‘ — J. F. Rutherford, þáverandi forseti Biblíu- og smáritafélagsins Varðturninn — misskilning sem verið hafði meðal Alþjóðasamtaka biblíunemenda. Hann benti á að ‚múgurinn mikli,‘ sem safna ættu úr öllum þjóðum til að tilbiðja Guð í andlegu musteri hans (því að hið efnislega musteri í Jerúsalem hafði verið eyðilagt af Rómverjum árið 70) skyldi vera jarðneskur hópur. (Opinberunarbókin 7:9-17) Þessi hópur átti í vændum að lifa af Harmagedón og ganga inn í nýja heimsskipan í hinu komandi þúsundáraríki Jesú Krists sem hefur ríkt á himnum frá 1914.
8. (a) Hvaða tímamótaatburður átti sér stað á mótinu í Washington, D.C. árið 1935? (b) Hvers vegna má segja að ‚allar þjóðir‘ streymi nú til ‚húss Jehóva‘?
8 Viðbrögðin við þessu nýja ljósi ollu straumhvörfum. Á þessu móti létu 840 mótsgestir skírast til tákns um vígslu sína til Jehóva Guðs fyrir milligöngu Jesú Krists. Ekki var vitað hversu margar þjóðir áttu fulltrúa í þeim hópi en þeir höfðu í huga vonina um jarðneska paradís. Núna, um 50 árum síðar, eru vottar Jehóva langtum fjölmennari en „allur Ísrael.“ Þeir eru starfandi í 203 löndum út um allan heim. Í víðum skilningi streyma því „allir lýðirnir“ til hins hátt upphafna tilbeiðsluhúss Jehóva.
Vottar Jehóva — hvers konar fólk eru þeir?
9. Hvað gera vottar Jehóva, ólíkt lýðveldinu Ísrael, til uppfyllingar á Jesaja 2:4?
9 Hvers konar fólk eru vottar Jehóva nú á tímum í samanburði við lýðveldið Ísrael? Eru þeir vopnaðir eins og það til að heyja hernað við þá sem ógna tilveru þeirra? Nei! Þeir eru þess konar fólk sem lýst var í spádóminum í Jesaja 2:4. Með því að þeir upphefja tilbeiðsluna á Jehóva í andlegu húsi Guðs hafa þeir í táknrænum skilningi smíðað plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Þeir treysta á Jehóva Guð sem verndara sinn og líkja eftir leiðtoga sínum, Jesú Kristi. Þótt þeir séu úr nær öllum þjóðum jarðarinnar láta þeir ekki þjóðernislegan fjandskap stjórna sér eða blanda sér í veraldleg strjórnmál. Þeir hafa í bókstaflegum skilningi hætt að temja sér veraldlegan hernað. Þeir eru hlutlausir gagnvart átökum og stjórnmálum heimsins. Þeir eru hættir að nota holdleg vopn til varnar og árásar. Þeir trúa því sem Jesús Kristur sagði — að ríki hans ‚tilheyri ekki þessum heimi.‘ Annars myndu lærisveinar hans berjast fyrir því með fullkomnustu hervopnum sem völ er á. — Jóhannes 18:36.
10. (a) Hvaða hernaði taka vottar Jehóva þátt í? (b) Hvaða ‚nýju boðorði‘ fylgja vottar Jehóva og hvernig gera þeir það?
10 Þess í stað taka vottar Jehóva aðeins þátt í andlegum hernaði. Barátta þeirra er gegn andaverum vonskunnar í himingeimnum. Vopn þeirra eru því ekki holdleg, ætluð til blóðsúthellinga. (Efesusbréfið 6:10-18) Hernaður þeirra beinist ekki gegn mannkyninu og þeir berjast alls ekki gegn andlegum bræðrum sínum innan skipulags Jehóva. Þeir hlýða boði Jesú Krists um að elska andlega bræður sína, eins og hann elskaði okkur, en hann gekk svo langt að leggja mannslíf sitt í sölurnar fyrir lærisveina sína. Á þennan hátt lifa þeir eftir ‚nýja boðorðinu,‘ sem Jesús gaf fylgjendum sínum, þess efnis að þeir skuli elska hver annan eins og hann hafði elskað þá. — Jóhannes 13:34.
11. Hvaða lögmál uppfyllir kærleikurinn sem vottar Jehóva sýna?
11 Vottar Jehóva láta mótast af þess konar kærleika sem uppfyllir lögmálið sem var gefið fyrir milligöngu spámannsins Móse. Slíkur kærleikur vinnur aldrei nokkrum manni mein og er því meira en „góðgerðarsemi“ eða „líknsemi“ í nútímalegri merkingu. Hebresku og grísku orðin í Biblíunni, sem þýdd eru „kærleikur,“ merkja miklu meira en aðeins „góðgerðarsemi“ eða „líknsemi.“ — Sjá 1. Korintubréf 13. kafla, King James Version; hin kaþólska Douay Version.
Til blessunar, ekki bölvunar
12. Var nauðsynlegt að meðlimir ‚alls Ísraels‘ yrðu allir komnir til himna áður en hægt væri að byrja að blessa ‚allar þjóðir‘?
12 Af því sem á undan er komið sjáum við að ekki var nauðsynlegt að leifar ‚alls Ísraels‘ færu til himna og yrðu með aðalsæðinu, Jesú Kristi, til að hægt væri að byrja að blessa allar ættir og þjóðir jarðarinnar. Í nálega hálfa öld hafa þeir sem mynda ættir og þjóðir jarðarinnar verið að hljóta blessun hins fyrirheitna ‚afkvæmis‘ Abrahams. Nú þegar hefur verið safnað yfir tveim og hálfri milljón ‚annarra sauða‘ til að mynda ‚eina hjörð‘ með leifum andagetinna, sauðumlíkra fylgjenda góða hirðisins sem hafa himneska von. — Jóhannes 10:16.
13. Hvað hafði Jesús í huga fyrir hina ‚aðra sauði‘ þegar hann kom til musterisins, og hvernig mun það brátt sýna sig?
13 Hinum blessuðu ‚öðrum sauðum‘ hefur verið gefin sú fagra von að hljóta að erfð endurreista paradís á jörð í þúsundáraríki Jesú Krists, allt frá upphafi hennar. Þegar því Jesús Kristur kom sem „engill [eða boðberi] sáttmálans,“ sendur af Jehóva, til hins andlega musteris til að dæma, kom hann ekki til að bölva heldur blessa hina ‚aðra sauði.‘ (Malakí 3:1-3) Þessi blessun fullkomnast í því að þeir verða verndaðir í ‚stríðinu á hinum mikla degi Guðs hins alvalda‘ gegn jarðneskum óvinum hans, samansöfnum við „Harmagedón.“ (Opinberunarbókin 16:14, 16) Til forna var borgin Megiddó vettvangur sigra sem unnir voru fyrir Jehóva Guð. (Jósúa 17:11; Sakaría 12:11) Við hið táknræna Harmagedón mun Jehóva Guð vinna sinn mesta sigur, sér til eilífs lofs. Þar mun upphafinn sonur hans, Jesús Kristur, vera hermarskálkur hans. — Opinberunarbókin 19:11-12.
14. (a) Yfir hjálpræði hverra hafa hinir ‚aðrir sauðir‘ tilefni til að gleðjast? (b) Hversu margir eru hinir ‚aðrir sauðir‘ nú þegar orðnir?
14 Hinir ‚aðrir sauðir‘ verða verndaðir þegar Guð sýnir mátt sinn og mikilleik með stórbrotnari hætti en nokkru sinni fyrr. Allir eftirlifandi áhorfendur þessarar úrslitastyrjaldar munu gleðjast mikið yfir því að leifar ‚alla Ísraels‘ skuli hafa ‚frelsast‘ á friðartímabilinu milli fyrri og síðari heimsstyrjaldarinnar! Frá vorinu 1935 hefur verið bætt við þennan frelsaða Ísrael hinum ‚mikla múgi‘ sem ekki er tölugreindur. Þessir ‚aðrir sauðir‘ góða hirðisins Jesú Krists, stefna nú í þrjár milljónir. Þeir eru komnir af „alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum“ mannkynsins og með því uppfyllist fyrirheit sem Jehóva Guð gaf honum sem var táknmynd um hann, ‚vini‘ sínum Abraham. (Opinberunarbókin 7:9-17; Jakobsbréfið 2:23) Og söfnun þessara ‚annarra sauða‘ er ekki enn lokið. Hversu margir þeir verða orðnir þegar góði hirðirinn hefur lokið að safna þeim saman vitum við ekki, en þá kemur eyðing Babýlonar hinnar miklu í stríði Guðs gegn pólitískum friðlum hennar í Harmagedón. — Opinberunarbókin 17:1-18:24.
15. Hvaða blessun hlýst af samfélagi hinna ‚annarra sauða‘ við leifar ‚alls Ísraels‘?
15 Samfélag hinna ‚annarra sauða‘ við leifar „alls Ísraels“ í ‚einni hjörð‘ undir umsjón góða hirðisins, Jesú Krists, hans sem var aðalafkvæmi Abrahams, hefur reynst vera byrjun á því að fullri blessun ‚alls Ísraels‘ verði úthellt yfir þessa ‚aðra sauði‘ í þúsundáraríki Jesú Krists — ríkinu sem þeir munu lifa inn í vegna verndar Guðs.
16. Hvers vegna eru hinir ‚aðrir sauðir‘ staðráðnir í að halda áfram að þjóna Jehóva við hlið leifa ‚alls Ísraels‘?
16 Til uppfyllingar á Opinberunarbókinni 7:14-17 hafa hinir ‚aðrir sauðir‘ nú þegar „þvegið skikkjur sínar og hvítfágað þær í blóði lambsins.“ Þess vegna er þeim leyft að dýrka Guð „dag og nótt í musteri hans“ í andlegum skilningi. Já, nú þegar er „Guðs lamb,“ Jesús Kristur, að næra þá með andlegri fæðu til að þá ‚hungri ekki framar.‘ (Jóhannes 1:29) Enn fremur er trúfastur hirðir þeirra að leiða þá til „vatnslinda lífsins,“ það er að segja lífs í paradís á jörð. Þakklátur fyrir alla þá blessun, sem hann nú þegar fær í gegnum leifar ‚alls Ísraels,‘ mun ‚múgurinn mikli‘ halda áfram að þjóna Jehóva við hlið þessara trúföstu leifa. Þessir ‚aðrir sauðir‘ munu gera það í hinni ‚einu hjörð‘ undir umsjón ‚eina hirðisins‘ í þágu Guðsríkis í höndum Jesú Krists. Þeir eru staðráðnir í að halda því áfram þar til allir óvinir Guðsríkis hafa verið afmáðir af „fótskör“ Guðs, jörðinni. — Jesaja 66:1; Matteus 5:34, 35; Postulasagan 7:49.
Hverju svara þú?
◻ Hvers vegna er lýðveldið Ísrael ekki leið Jehóva til að blessa allt mannkynið?
◻ Hvernig má segja að ‚allar þjóðir‘ streymi nú til ‚húss Jehóva‘?
◻ Hvernig hafa vottar Jehóva uppfyllt Jesaja 2:4?
◻ Hvert er viðhorf Jesú Krists til hinna ‚annarra sauða‘ og hvernig mun hann brátt sýna það?
◻ Hvaða blessun hófst með samfélagi hinna ‚annarra sauða‘ við leifar ‚alls Ísraels‘?
[Mynd á blaðsíðu 31]
Vottar Jehóva bera kærleika hver til annars og hafa ‚smíðað plógjárn úr sverðum sínum.‘