Ungt fólk spyr . . .
Hver ætti að vera fyrirmynd mín?
„Hann var óvenjugóður körfuboltamaður. Allir vinir mínir dáðust að honum. Hann var fyrirmynd mín og ég vildi vera eins og hann og fá það sem hann hafði.“ — Ping, ungur maður frá Asíu.
FÓLK, sem aðrir dást að og líkja eftir, er oft kallað fyrirmyndir. Rithöfundurinn Linda Nielsen segir: „Unglingar líkja eftir fólki sem þeir geta samsamað sig og fær þá athygli eða umbun sem þeir ásælast.“ Unglingar dást því gjarnan að félögum sínum sem eru vinsælir eða aðlaðandi. Og margir unglingar laðast að kvikmyndastjörnum, tónlistarmönnum og íþróttamönnum og líta upp til þeirra.
Oft er opinber ímynd dægurstjarna lítið annað en tilbúningur, vandlega úthugsað ráðabrugg til að fela galla þeirra og auka aðdáun á þeim og til að gera þær að söluvöru! Áðurnefndur Ping viðurkennir: „Ég keypti öll myndbönd körfuboltahetjunnar minnar og klæddist sömu vörumerkjum og hún.“ Sumir unglingar klæðast eins og sjónvarps- eða íþróttahetjan þeirra, greiða sér eins og ganga jafnvel og tala eins og átrúnaðargoðið.
Fyrirmyndir — góðar og slæmar
‚En hvað er að því að dást að einhverjum?‘ gætirðu spurt. Það veltur á því að hverjum þú dáist. Biblían segir: „Haf umgengni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggur lag sitt við heimskingja.“ (Orðskviðirnir 13:20) Biblían hvetur okkur ekki til að fylgja mönnum. (Matteus 23:10) En hún segir okkur að breyta „eftir þeim, sem vegna trúar og stöðuglyndis erfa fyrirheitin.“ (Hebreabréfið 6:12) Páll postuli, sem skrifaði þessi orð, var frumkristnum mönnum góð fyrirmynd. Hann gat því sagt: „Verið eftirbreytendur mínir eins og ég er eftirbreytandi Krists.“ — 1. Korintubréf 11:1.
Það er einmitt það sem ungur maður að nafni Tímóteus gerði. Hann ræktaði náinn vinskap við Pál á trúboðsferðum þeirra. (Postulasagan 16:1-4) Páll leit á Tímóteus sem ‚elskað og trútt barn sitt í Drottni.‘ (1. Korintubréf 4:17) Með hjálp Páls varð Tímóteus framúrskarandi kristinn maður. — Filippíbréfið 2:19-23.
En hvað getur gerst ef þú velur þér ranga fyrirmynd? Ungur maður að nafni Richard segir svo frá: „Þegar ég var 15 ára varð skólafélagi minn, Mario, besti vinur minn. Foreldrar mínir voru kristnir og þeir reyndu að hjálpa mér andlega. En allt fjörið var í kringum Mario — diskótek, partí, mótorhjól og fleira í þeim dúr. Hann gat gert það sem hann vildi, þegar hann vildi. En ekki ég. Þegar ég var 16 ára sagði ég þess vegna við foreldra mína að ég vildi hætta að vera kristinn og ég stóð við það.“
Geta svipaðar hættur falist í því að líta upp til dægurstjarna og íþróttahetja? Já. Nú er ekkert rangt við að dást að hæfileikum íþróttamanns, leikara eða tónlistarmanns. En spyrðu þig: ‚Hvers konar fordæmi gefur þetta fólk í einkalífi sínu?‘ Eru ekki margar íþróttahetjur, tónlistarmenn og aðrir skemmtikraftar þekktir fyrir kynferðislegt siðleysi eða fíkniefna- og áfengisneyslu? Eru ekki margir þeirra óhamingjusamir þrátt fyrir peninga og frægð? Þegar þú horfir á málið frá þessum sjónarhóli, hvernig gæti það hugsanlega verið til góðs að líkja eftir slíku fólki?
Það virðist kannski smávægilegt að líkja eftir dægurstjörnu í hárgreiðslu, klæðnaði eða tali. En það getur verið fyrsta skrefið í þá átt að leyfa heiminum að „þröngva þér í sitt mót.“ (Rómverjabréfið 12:2, Phillips) Þetta mót getur virst ánægjulegt í fyrstu. En ef þú lætur alveg undan áhrifum þess getur það mótað þig þannig að þú lendir örugglega upp á kant við boð Guðs. „Vinátta við heiminn er fjandskapur gegn Guði,“ segir Biblían í Jakobsbréfinu 4:4.
Hvernig góð fyrirmynd getur hjálpað þér
En það getur haft jákvæð áhrif á líf þitt að líkja eftir einhverjum sem setur gott fordæmi. Meðal kristinna manna finnurðu þá sem eru „fyrirmynd . . . í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika.“ (1. Tímóteusarbréf 4:12) Að vísu verður þú að gæta varúðar þegar þú velur þér félaga, jafnvel innan kristna safnaðarins. (2. Tímóteusarbréf 2:20, 21) En það er yfirleitt ekki erfitt að koma auga á hverjir í söfnuðinum ‚ganga fram í sannleikanum.‘ (2. Jóhannesarbréf 4) Meginreglan í Hebreabréfinu 13:7, NW, hljóðar svo: „Líkið eftir trú þeirra um leið og þið ígrundið hvernig þeim farnast.“ Það er enn óljóst hvernig flestum félögum þínum á eftir að farnast. En í söfnuðinum eru líka eldri bræður og systur sem hafa sannað trúfesti sína og það er skynsamlegt að kynnast þeim.
‚Að kynnast hinum eldri?‘ spyrðu ef til vill. Það hljómar kannski ekkert spennandi í fyrstu. En mundu eftir sambandi Tímóteusar við eldri vin sinn, Pál postula. Páll sá hæfileika Tímóteusar og hvatti hann til að ‚glæða hjá sér þá náðargjöf sem Guð gaf honum.‘ (2. Tímóteusarbréf 1:6) Fyndist þér ekki gott að hafa einhvern sem hjálpar þér, uppörvar þig og hvetur til að rækta gjafir þínar frá Guði?
Bryan komst að raun um það. Hann var haldinn minnimáttarkennd þegar hann kynntist sér eldri, einhleypum safnaðarþjóni. Bryan segir: „Ég dáist að kærleiksríkri umhyggju hans fyrir öðrum, þar á meðal mér, kostgæfni hans í boðunarstarfinu og framúrskarandi ræðum hans.“ Bryan hefur nú þegar notið góðs af þeirri persónulegu athygli sem hann hefur fengið frá þessum þroskaða kristna manni. Hann viðurkennir hreinskilnislega: „Hún hefur hjálpað mér að breytast úr því sem ég var áður — feiminn og dofinn persónuleiki.“
Foreldrar sem fyrirmynd
Bókin Adolescence — Generation Under Pressure segir að foreldrar séu „langsterkasti áhrifavaldur til að hjálpa eða hindra venjulegan ungling í að þroska viðunandi sjálfsmynd.“ Bókin bætir við að ungt fólk, sem hefur ekki skýra stefnu og sjálfsmynd, verði „eins og stýrislaust skip sem breytir um stefnu eftir hverri öldu.“
Þessi ábending endurspeglar það sem lærisveinninn Jakob skrifaði fyrir meira en 1900 árum og kemur fram í Jakobsbréfinu 1:6: „Hann biðji í trú, án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu, er rís og hrekst fyrir vindi.“ Þú þekkir eflaust einhverja unglinga sem eru þannig. Þeir lifa fyrir líðandi stund án þess að hugsa um morgundaginn.
Ert þú svo lánsamur að eiga guðhrædda foreldra sem eru til fyrirmyndar í söfnuðinum? Ertu þeim eftirlátur eða berstu gegn þeim öllum stundum? Foreldrar þínir eru ekki fullkomnir. En lokaðu ekki augunum fyrir góðum eiginleikum þeirra — eiginleikum sem þú hefðir gott af að líkja eftir. „Ég lít mjög upp til foreldra minna,“ skrifar Jarrod, ungur kristinn maður. „Stöðug kostgæfni þeirra í boðunarstarfinu, hvernig þau hafa mætt fjárhagserfiðleikum, og hvatningin sem þau gáfu mér til að hefja þjónustu í fullu starfi hefur allt haft góð áhrif á mig. Foreldrar mínir hafa alltaf verið fyrirmynd mín.“
Besta fyrirmyndin
Þegar Gallupstofnunin, sem gerir skoðanakannanir, spurði nokkra unglinga í Bandaríkjunum hvert þeir teldu mesta mikilmenni sögunnar völdu flestir bandaríska stjórnmálamenn. Einungis sex af hundraði völdu Jesú Krist. En Biblían segir okkur að Jesús Kristur hafi látið okkur eftir fullkomna „fyrirmynd, til þess að [við skyldum] feta í hans fótspor.“ (1. Pétursbréf 2:21; Hebreabréfið 12:3) Hann hvatti lærisveina sína til að læra af sér. (Matteus 11:28, 29) En hvernig geturðu gert það?
Kynntu þér ævi Jesú rækilega. Reyndu að lesa allar frásögur guðspjallanna ásamt bókinni Mesta mikilmenni sem lifað hefur.a Taktu eftir kennsluaðferðum Jesú, samúð hans með fólki og hugrekki hans undir álagi. Þú kemst að raun um að Jesús er besta fyrirmyndin sem þú getur fylgt.
Því betur sem þú kynnist hinni fullkomnu fyrirmynd, þeim mun síður laðastu að óheilnæmum félögum eða dægurstjörnum. Manstu eftir Ping sem dáðist að íþróttahetju? Ping leikur enn körfubolta við og við, en hann hefur gert sér ljóst að það er heimskulegt að taka sér dægurstjörnu til fyrirmyndar.
Og hvað um Richard? Val hans á fyrirmynd leiddi til þess að hann yfirgaf kristna trú. En Richard kynntist Símoni, manni á þrítugsaldri sem er einn af vottum Jehóva. „Símon vingaðist við mig,“ segir Richard, „og hjálpaði mér að skilja að það er hægt að njóta lífsins án þess að hvika frá meginreglum Biblíunnar. Ég bar fljótlega mikla virðingu fyrir Símoni, og fordæmi hans átti stóran þátt í að ég sneri aftur til safnaðarins og vígði líf mitt Jehóva. Ég er miklu hamingjusamari núna og líf mitt hefur raunverulegan tilgang.“
Já, það skiptir máli hvaða fyrirmynd þú velur þér!
[Neðanmáls]
a Gefin út af Watchtower Bible and Tract Society of New York, Inc.
[Mynd á blaðsíðu 12]
Það getur hjálpað þér að umgangast heiðvirða bræður og systur sem eru eldri en þú.