„Takk fyrir að hjálpa mér að kynnast Jehóva!“
Þetta sagði 16 ára stúlka í Flórída í Bandaríkjunum. Hún sendi bréf eftir að hafa lesið bók sem gefin er út af vottum Jehóva. Í bréfinu sagði:
„Ég man ekki hvað bókin heitir sem ég las um ævi Jesú, en ég held að þið hafið gefið hana út. Áður en ég las hana hélt ég að ég vissi allt sem ég þyrfti að vita. Ég trúi á Guð og Jesú, ég fer með bæn fyrir matinn og líka á kvöldin og lifi þokkalega hreinu lífi. En eftir að ég var búin að lesa bókina rann upp fyrir mér að ég vissi alls ekki mikið og að ég þyrfti að halda áfram að lesa og læra um Jehóva Guð og Jesú og aðra í Biblíunni.
Ég er smátt og smátt að breyta ýmsu í fari mínu til að ég geti verið betri þjónn Guðs. Svo er Varðturnsfélaginu fyrir að þakka að ég er ekki lengur fáfróð um Guð og biblíusögurnar. Takk fyrir að hjálpa mér að kynnast Jehóva!“
Bókin, sem stúlkan var að tala um, heitir Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Þar er leitast við að greina frá sérhverjum atburði á jarðneskri ævi Jesú eins og guðspjöllin fjögur lýsa þeim. Hafðu samband við Varðturninn, Pósthólf 8496, 128 Reykjavík, ef þig langar til að eignast bókina eða fá ókeypis heimabiblíunámskeið, eða notaðu annað viðeigandi póstfang á bls. 2.