Ungt Fólk Spyr . . .
Hví ekki að stela?
„Ég er 16 ára og á við mjög alvarlegt vandamál að stríða. Ég hef stolið heilmiklu upp á síðkastið. Ég er nýkomin úr verslanamiðstöð þar sem ég stal sjö pörum af eyrnalokkum. Ég þori varla að segja nokkrum frá þessu vandamáli. Geturðu hjálpað mér!“
ÞANNIG skrifaði ráðvillt unglingsstúlka ráðleggingadálki tímarits nokkurs. Greinarhöfundur einn segir: „Talið er að vörum að jafnvirði 10 milljarða dollara . . . sé stolið eða hnuplað úr smásöluverslunum [í Bandaríkjunum] árlega. Táningar eru um helmingur allra sem handteknir eru fyrir búðarhnupl.“
Samkvæmt nýlegri könnun í Bandaríkjunum viðurkennir yfir þriðjungur nemenda í almennum framhaldsskólum að hafa hnuplað úr búð. Og samkvæmt könnun rannsóknarmannanna Jane Norman og Myrons Harris „viðurkenna næstum allir [unglingar] að hafa einhvern tíma tekið eitthvað án þess að borga fyrir.“
Af hverju þeir stela
Þjófur er sá sem tekur af ásettu ráði og í leyfisleysi eitthvað sem annar á. Stundum getur mönnum þótt réttlætanlegt að stela lífsnauðsynjum. „Ég átti mjög erfitt,“ segir ungur maður sem ólst upp við fátækt. „Ég átti til að koma að bakdyrunum á [skyndibitastað], sparka upp hurðinni og taka nokkra kjúklingabita. En það var allt og sumt. Ég gerði það bara af því að ég var svangur.“
Biblíuorðskviður segir: „Menn fyrirlíta ekki þjóf bara af því að hann stelur til að seðja sál sína er hann hungrar.“ Engu að síður er þjófnaður siðferðilega rangur. Versið á eftir sýnir að jafnvel soltinn þjófur varð að gjalda fyrir brot sitt með þungum fjársektum. — Orðskviðirnir 6:30, 31, NW.
En aðeins minnihluti þjófa á táningaaldri stelur vegna neyðar, þótt furðulegt sé. María er dæmigerð en hún viðurkennir: „Já, ég hef hnuplað úr búðum og það er virkilega skrýtið af því að ég veit ekki af hverju ég gerði það. Foreldrarnir láta mig fá peninga til alls. Mig vantaði ekki neitt.“a Tímaritið Seventeen tekur í sama streng: „Í könnun á vegum bandaríska Afbrotavarnaráðsins kom í ljós að algengasta ástæðan, sem hnuplarar nefndu, var sú að þeir hafi viljað fá eitthvað ókeypis.“ Sumir unglingar réttlættu jafnvel stelvísina með því að ‚álagning verslana væri allt of há‘!
Margir unglingar hnupla hreinlega af því að þeim leiðist. „Mig vantaði bara eitthvað að gera eftir skóla,“ segir fyrrverandi þjófur sem Jens heitir. Þjófnaður virðist líka vera eins konar áhættuíþrótt; sumir virðast njóta adrenalínskotsins sem þeir finna fyrir um leið og þeir lauma stolinni blússu ofan í tösku eða renna geisladiski í bakpokann.
Til að fela sársauka?
Það eru auðvitað hægt að bægja frá sér leiðindum með skynsamlegri aðferðum og án þess að hætta á fangavist. Getur þá verið að það sé ekki bara löngun til að skemmta sér sem býr að baki slíkri spennuleit? Margir sérfræðingar telja svo vera. Tímaritið Ladies’ Home Journal segir að sumir unglingar eigi „erfitt með að ráða við álagið sem fylgir uppvextinum. Rifrildi við foreldra, vináttuslit eða lág einkunn á prófi getur valdið því að þeim finnist þeir hafa misst tökin; með því að brjóta reglurnar finnst þeim þeir hafa náð undirtökunum aftur.“
Já, á bak við mannalæti þjófsins er kannski heilmikil sorg og sársauki. Eins og Biblían orðar það, „jafnvel þótt hlegið sé, kennir hjartað til.“ (Orðskviðirnir 14:13) Margt bendir til að endurtekið búðarhnupl sé merki um þunglyndi. Sumir ungir þjófar hafa jafnvel verið kynferðislega misnotaðir sem börn. En af hverju sem sársaukinn stafar virðist spenningurinn samfara þjófnaðinum útiloka hann — að minnsta kosti um stund.b Tökum sem dæmi bandarískan ungling sem skemmtir sér við það að stela bílum og aka þeim eins og vitfirringur. „Manni líður svakalega vel,“ segir hann. „Það er eins og maður sé dauðhræddur en samt í vímu.“
Hópþrýstingur
Biblían segir: „Vondur félagsskapur spillir góðum siðum.“ (1. Korintubréf 15:33) Þetta er almennt viðurkenndur sannleikur. Rithöfundurinn Denise V. Lang segir: „Unglingur kemst sjaldan í klandur upp á eigin spýtur.“ Oft mana unglingarnir einn úr hópnum að stela einhverju. Því miður láta margir undan þrýstingnum.
„Ég fór að vera með ákveðnum stelpnahópi þegar ég byrjaði í framhaldsskóla,“ segir Kata. Inntökugjaldið í klúbb hinna útvöldu var það að stela dýrri peysu. „Mig langaði svo til að vera í klúbbnum að ég fór í búð og stal peysu,“ viðurkennir hún.
Hafðu viðhorf Guðs
Möguleikinn að eignast hluti sem þú hefur ekki efni á, taka spennandi áhættu eða njóta viðurkenningar jafnaldranna getur gert þjófnað freistandi. En eitt af boðorðunum tíu í Biblíunni segir: „Þú skalt ekki stela.“ (2. Mósebók 20:15) Páll postuli skrifaði að ‚þjófar munu ekki erfa Guðsríki.‘ (1. Korintubréf 6:10) Unglingar, sem hafa alist upp á kristnu heimili, ættu því að hugsa sérstaklega um viðhorf Guðs. Það væri mikil hræsni að þykjast réttlátur út á við en stela í laumi! Páll postuli orðaði það þannig: „Þú sem þannig fræðir aðra, hví fræðir þú ekki sjálfan þig? Prédikar þú, að ekki skuli stela, og stelur þó?“ — Rómverjabréfið 2:21.
Tilhugsunin um þá auðmýkingu að vera handtekinn er sjálfsagt nægilega góð ástæða til að stela ekki. Ungur þjófur sagði eftir að hann var tekinn fastur: „Mig langaði til að deyja.“ Sú vitneskja að Jehóva ‚hatar rán‘ er sterkasta ástæðan til að láta ekki undan hvötinni — eða þrýstingnum — til að stela. (Jesaja 61:8) Jafnvel þótt þér tækist að leyna þjófnaðinum fyrir verslunarmönnum, lögreglu og foreldrum er ekki hægt að leyna honum fyrir Jehóva. Hann sér allt. — Jesaja 29:15.
Mundu líka að synd forherðir mann. (Hebreabréfið 3:13) Smáþjófnaður magnast oft upp í grófari og fífldjarfari afbrot. Afbrotaferill Róberts byrjaði til dæmis á því að hann stal peningum úr veski móður sinnar. Með tímanum fór hann að hrinda gömlum konum og ræna frá þeim veskinu.
Berstu gegn freistingunni
Það er sjálfsagt ekki auðvelt að hætta að stela ef maður er byrjaður. „Þetta var nokkurs konar fíkn,“ viðurkennir unglingur. Hvað getur hjálpað unglingi að söðla um?
Játaðu syndina fyrir Guði. Hann „fyrirgefur ríkulega“ þeim sem iðrast synda sinna og játa þær opinberlega fyrir honum. — Jesaja 55:7.
Leitaðu hjálpar. Margir lesendur þessa tímarits þekkja til kristins safnaðar votta Jehóva í sínu byggðarlagi. Þeir geta leitað til umsjónarmanna safnaðarins og beðið um andlega hjálp og leiðréttingu. (Jakobsbréfið 5:14, 15) Foreldrar með góða siðferðiskennd geta líka veitt hjálp og stuðning. Ef misferlið stafar af sárindum, sársauka eða hreinum leiðindum getur verið mjög gagnlegt að ræða málið við samúðarfullan og skilningsríkan áheyranda. — Orðskviðirnir 12:25.
Bættu skaðann. Móselögin skylduðu þjófa til að endurgreiða hið stolna með vöxtum. (3. Mósebók 6:4, 5) Með því að gera það bæði friðarðu samviskuna og minnir sjálfan þig alvarlega á það tjón sem þjófnaður veldur öðrum. Biblían heitir því að sá sem „endurgreiðir það, er hann hefir rænt, breytir eftir þeim boðorðum, er leiða til lífsins, . . . skal . . . lífi halda og ekki deyja.“ — Esekíel 33:15.
Berstu gegn öfund og ágirnd. Síðasta boðorðið af þeim tíu er þetta: „Þú skalt ekki girnast . . . nokkuð það, sem náungi þinn á.“ (2. Mósebók 20:17) Ef þig vantar virkilega — eða langar í — eitthvað en hefur ekki efni á því, þá geturðu kannski unnið þér inn fyrir því með einhverjum hætti. Páll postuli ráðlagði: „Hinn stelvísi hætti að stela, en leggi hart að sér og gjöri það sem gagnlegt er með höndum sínum.“ — Efesusbréfið 4:28.
Gættu að félagsskap þínum. „Ef þú ert með vini eða hópi vina sem brjóta af sér ert þú líka talinn meðsekur vegna þess að þú varst með þeim á vettvangi,“ segir greinarhöfundurinn Denise Lang. Hafðu styrk til að segja nei ef kunningjarnir stinga upp á einhverju lögbroti. — Orðskviðirnir 1:10-19.
Hugsaðu um það tjón sem þú veldur öðrum með því að stela. Þjófur hugsar bara um sjálfan sig. En Jesús ráðleggur okkur: „Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ (Matteus 7:12) Þegar við lærum að láta okkur annt um aðra höfum við síður tilhneigingu til að valda þeim tóni.
Hugsaðu um afleiðingarnar fyrir sjálfan þig. (Galatabréfið 6:7) Í stað þess að hugsa hve gaman það væri að eiga þessa skínandi skartgripi eða flottu græjur sem þú hefur ekki efni á, hugsaðu þá um hve skammarlegt það yrði fyrir þig að vera staðinn að verki og ákærður; hugsaðu um skömmina sem þú myndir kalla yfir foreldra þína og Guð sjálfan! Þú kemst örugglega að þeirri niðurstöðu að það sé alls ekkert góð hugmynd að stela.
[Neðanmáls]
a Sumum nöfnum er breytt.
b Við erum ekki að tala um stelsýki, en það er geðsjúkdómur sem einkennist af þjófnaðaráráttu. Læknar segja sjúkdóminn sjaldgæfan; innan við 5 prósent búðarhnuplara eru haldnir stelsýki. Lyfjum er oft beitt gegn stelsýki.
[Mynd á blaðsíðu 25]
Búðarþjófar þurfa oft að þola þá auðmýkingu að vera staðnir að verki.