Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g86 8.4. bls. 21–23
  • Kynlíf fyrir hjónaband — hvers vegna ekki?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Kynlíf fyrir hjónaband — hvers vegna ekki?
  • Vaknið! – 1986
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Sársaukafull vandamál
  • Tilfinningalegar afleiðingar
  • Morguninn eftir
  • Hvað um kynlíf fyrir hjónaband?
    Spurningar unga fólksins — svör sem duga
  • Er eitthvað að því að stunda kynlíf fyrir hjónaband?
    Vaknið! – 2004
  • Hvernig get ég útskýrt afstöðu mína til kynlífs?
    Ungt fólk spyr
  • Mun kynlíf styrkja sambandið?
    Vaknið! – 2010
Sjá meira
Vaknið! – 1986
g86 8.4. bls. 21–23

Ungt fólk spyr . . .

Kynlíf fyrir hjónaband — hvers vegna ekki?

HVERT er langalgengasta umræðuefni í ráðleggingadálkum blaða og tímarita? Í að minnsta kosti einu stórborgardagblaði er það kynlíf fyrir hjónaband. Spurningarnar um þetta málefni eru æði margar: ‚Er það allt í lagi ef okkur þykir vænt hvort um annað?‘ ‚Ætti ég að bíða þar til hjónaband hefur verið stofnað?‘ ‚Er það bara saklaus „skemmtun“?‘ En svörin eru líka æði margbreytileg! Hvaða ráð eru rétt og þjóna hag þínum best?

Kynlíf án hjónabands er viðfangsefni eins fjórða hluta fyrstu níu kafla Orðskviðanna í Biblíunni. Ráðin, sem þar eru gefin, koma frá engum öðrum en skapara okkar. Heilræði hans geta veitt „unglingum þekking og aðgætni.“ Þeir sem fara eftir ráðum hans geta numið „hollar lífsreglur,“ eða eins og frumhebreska orðið merkir, þá „list að stýra eða stjórna“ skipi. (Orðskviðirnir 1:4, 5) Að sjálfsögðu vilt þú geta stýrt fram hjá blindskerjum og leyndum hættum sem gætu valdið þér „skipbroti,“ spillt hamingu þinni!

Að vísu hefur fæst ungt fólk þá hugmynd um kynlíf fyrir hjónaband að það ógni hamingju þess. Þeir sem stunda það segjast gera það af svipuðum ástæðum og nefndar voru fyrir alda öðli: „Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun, gamna okkur með blíðuhótum.“ (Orðskviðirnir 7:18) Þetta unga fólk segist vera ástfangið, og kynlíf er þá sjálfsagður hlutur. Kannski hugsar það eitthvað svipað og ungur maður að nafni Leopold sem sagði: „Þú þarft að hafa kynmök við stelpu til að sýna að þú sért sannur karlmaður.“ Sumir láta undan freistingunni til að hljóta viðurkenningu félaga sinna eða til að sýna fram á að þeir séu ekki kynvilltir.

En hreinskilnislega sagt sýna rannsóknir — og óteljandi dæmi — að fæst ungmenni hafa í upphafi ætlað sér að hafa kynmök. Kynmök er oftast afleiðing af því að hjónaleysin hafa byrjað að gæla hvert við annað og fara höndum um vissa líkamshluta. Ógift móðir viðurkenndi: „Hjá mér og flestum krökkum, sem ég þekki, gekk það bara alltaf ögn lengra í hvert sinn, og allt í einu er maður ekki hrein mey lengur. Það byrjar með örlitlum blíðuhótum, og áður en maður veit af getur maður ekki hætt lengur.“

‚En hvers vegna ekki að hjóta unaðarins af kynlífi fyrir hjónaband?‘ spyrja sumir. ‚Hvaða skaði er að því ef báða aðila langar til þess?‘

Sársaukafull vandamál

Sumt af því sem veitir unað í dag getur valdið kvöl á morgun. „Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu, og gómur hennar er hálli en olía,“ segja Orðskviðirnir 5:3, 4. „En að síðustu er hún beiskari en malurt, beitt eins og tvíeggjað sverð.“

Eitt hinna hugsanlegu beisku eftirkasta eru samræðissjúkdómar. Með kynlífi fyrir hjónaband er verið að ‚syndga á móti eigin líkama.‘ (1. Korintubréf 6:18) Reyndu að gera þér í hugarlund þá kvöl að uppgötva nokkrum árum síðar að siðleysið hafi valdið óbætanlegu tjóni, hugsanlega ófrjósemi eða alvarlegum heilsubresti. Eins og Orðskviðirnir 5:11 aðvara: „Og þú andvarpir að lokum, þá er líkami þinn og hold veslast upp.“

Kynlíf fyrir hjónaband getur líka leitt til þungunar utan hjónabands, fóstureyðingar eða skyndihjónabands — og allt hefur það sín sársaukafullu eftirköst. En ekki má gleyma öðru erfiðu vandamáli

Tilfinningalegar afleiðingar

Kynlíf fyrir hjónaband veldur mörgum sektarkennd og skertri sjálfsvirðingu, því að þeim líður illa út af því að hafa brotið sína eigin staðla. Dennis, 23 ára, sagði til dæmis með trega: „Það voru mikil vonbrigði — engin vellíðan eða ástarylur eins og ég hafði búist við. Þess í stað rann ljóslega upp fyrir mér hversu rangur verknaðurinn var. Ég fyrirvarð mig afskaplega fyrir að hafa ekki sýnt sjálstjórn.“

Fjölmargir fleiri taka undir með honum. „Ég vaknaði aftur til veruleikans með ægilegum dynk,“ játaði ung kona. „Núna var ekkert gaman lengur. Partíið var búið, mér var óglatt, fannst ég auvirðileg og óhrein. Mér leið ekkert betur við það að heyra hann segja: ‚Af hverju í ósköpunum stoppaðir þú okkur ekki aður en við gengum of langt?“

Slík viðbrögð eru ekki fátíð að því er dr. Jay Segal segir, en hann stjórnaði rannsóknum sem náðu út um öll Bandaríkin, byggðum á „kynlífsævisögum“ 2436 háskólanema. Í skýrslu sinni sagði hann: „Nánast tvöfalt fleiri voru vonskvikin og óánægð með fyrstu mök en ánægð og spennt. Bæði karlar og konur minntust þess að hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum.“

Að vísu virðast ekki öll ungmenni finna til sektar né vera óánægð með sjálf sig. En Biblían aðvarar: „Saurlifnaður . . . tekur burt góða hvöt.“ (Hósea 4:11, NW) Hvöt þess manns, sem stundar kynlíf fyrir hjónaband, saurlifnað, getur smám saman breyst. Kynferðisleg fíkn getur smátt og smátt orðið öllum öðrum tilfinningum yfirsterkari, þungamiðja sambands við einstakling af hinu kyninu. En slík fýsn er brigðul og hverflynd.

Saurlifnaður hefur sljóvgað svo „góða hvöt“ sumra ungmenna að þau hafa leitað kynferðislegrar fullnægju hjá allmörgum mismunandi einstaklingum í mánuði. Rannsóknamaðurinn Robert Sorensen kallar slík ungmenni „kynlífsævintýramenn.“ Um það verð, sem þau greiða fyrir ‚ævintýri‘ sín, segir Sorensen: „Í einkaviðtölum okkar hafa margir ævintýramenn gert uppskátt . . . að þeir telji sig hafa lítinn tilgang og lífshamingu.“ Fjörutíu og sex af hundraði þeirra féllust á fullyrðinguna: „Eins og ég lifi lífinu núna fara flestir hæfileikar mínir til spillis.“ Sorensen benti einnig á að þessir lauslátu unglingar hafi lítið „sjálfstraust og sjálfsvirðingu.“ Það kemur heim og saman við Orðskviðina 5:9. Þeir sem stunda siðleysi „gefa öðrum sæmd“ sína. — NW.

Sum ungmenni halda samt sem áður fram: ‚Við erum öðruvísi. Kynmök styrkja böndin milli okkar.‘ En er það svo?

Morguninn eftir

Þegar hjónaleysi hafa stigið skrefið til fulls líta þau hvort annað oft öðrum augum en áður. Hann kemst kannski að raun um að tilfinningar hans til kærustunnar eru ekki jafnheitar og fyrr. Núna, eftir að hann hefur komist yfir hana, getur honum jafnvel fundist hún síður aðlaðandi en áður. Henni getur aftur á moti fundist hann hafa notað sig í eigingjörnum tilgangi. En hvernig sem þeim líður brjóta þau með kynmökum allar brýr að baki sér.

Biblían greinir frá því að Amnon hafi verið ástsjúkur gagnvart Tamar, systur sinni. Eftir að hafa haft mök við hana „fékk Amnon mjög mikla óbeit á henni.“ (2. Samúelsbók 13:15) Stúlka að nafni María bar svipaðar tillfinningar í brjóst eftir að hafa gerst sek um saurlifnað. Hún sagði: „Ég hataði sjálfa mig (fyrir veikleika minn) og ég hataði strákinn sem ég var með. Kynmökin, sem við héldum að myndu færa okkur nær hvort öðru, bundu enda á samband okkar. Mig langaði ekki einu sinni til að hitta hann framar.“

Að sjálfsögðu bregðast ekki allir við með sama hætti og María eða Amnon. „Í fyrstu geta áhrifin verið þau að styrkja sambandið, en þegar til lengdar lætur geta áhrifin verið allt önnur,“ sagði heimildarmaður á þessu sviði, Paul H. Landis, eftir að hafa lagt mat á niðurstöður rannsókna sem náðu til nokkur hundruð ungmenna. Ein af ástæðunum til að frekar slitnar upp úr sambandi hjónaleysa, sem hafa kynmök, en þeirra sem ekki gera það, er sú að slíkt kynferðislegt samband hefur oft í för með sér afbrýði og tortryggni. Ungur piltur viðurkenndi: „Eftir að hafa haft kynmök við stúlku hugsa sumir piltar með sér: ‚Fyrst hún hefur haft mök við mig hefur hún kannski haft þau við einhvern annan líka.‘ Reyndar hugsaði ég þannig sjálfur. . . . Ég var mjög afbrýðisamur og tortrygginn.“

Þetta er sannarlega fjarlægt ósviknum kærleika sem „öfundar ekki . . . hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin.“ (1. Korintubréf 13: 4, 5) Aðeins slíkur kærleikur getur byggt upp gagnkvæmt traust sem er forsenda varanlegs hjónabands. Ekki er að undra að Biblían skuli aðvara: „Hjúskapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum . . . því að hórkarla og frillulífismenn mun Guð dæma.“ — Hebreabréfið 13:4.

Hér með erum við komin að þungvægustu rökunum gegn kynlífi fyrir hjónaband: Þau eru alvarleg synd gegn Guði. „Það er vilji Guðs,“ segir 1. Þessaloníkubréf 4:3, „að þér haldið yður frá frillulífi.“ Að hlýða þessari innblásnu ráðleggingu mun veita þér vernd gegn ótöldum hjartasorgum.

[Innskot á blaðsíðu 21]

Sumt sem veitir unað í dag getur valdið kvöl á morgun.

[Innskot á blaðsíðu 23]

Oftar slitnar upp úr trúlofun hjá hjónaleysum sem hafa kynmök en þeim sem ekki gera það.

[Innskot á blaðsíðu 23]

Þegar hjónaleysi hafa haft kynmök hafa þau brotið allar brýr að baki sér.

[Mynd á blaðsíðu 22]

Kynlíf fyrir hjónaband getur haft í för með sér að það slitni upp úr trúlofun.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila