Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 1. Samúelsbók 29
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

1. Samúelsbók – yfirlit

      • Filistear vantreysta Davíð (1–11)

1. Samúelsbók 29:1

Millivísanir

  • +1Sa 28:1
  • +Jós 19:17, 18; 1Sa 29:11

1. Samúelsbók 29:2

Millivísanir

  • +1Sa 28:2

1. Samúelsbók 29:3

Millivísanir

  • +1Sa 27:7, 12

1. Samúelsbók 29:4

Millivísanir

  • +1Kr 12:19
  • +1Sa 14:21

1. Samúelsbók 29:5

Millivísanir

  • +1Sa 18:7; 21:11

1. Samúelsbók 29:6

Millivísanir

  • +1Sa 21:10; 27:2
  • +1Sa 28:2
  • +1Sa 27:11, 12
  • +1Sa 29:3, 9

1. Samúelsbók 29:9

Millivísanir

  • +1Sa 27:12

1. Samúelsbók 29:11

Millivísanir

  • +Jós 19:17, 18; 1Sa 29:1

Almennt

1. Sam. 29:11Sa 28:1
1. Sam. 29:1Jós 19:17, 18; 1Sa 29:11
1. Sam. 29:21Sa 28:2
1. Sam. 29:31Sa 27:7, 12
1. Sam. 29:41Kr 12:19
1. Sam. 29:41Sa 14:21
1. Sam. 29:51Sa 18:7; 21:11
1. Sam. 29:61Sa 21:10; 27:2
1. Sam. 29:61Sa 28:2
1. Sam. 29:61Sa 27:11, 12
1. Sam. 29:61Sa 29:3, 9
1. Sam. 29:91Sa 27:12
1. Sam. 29:11Jós 19:17, 18; 1Sa 29:1
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
Biblían – Nýheimsþýðingin
1. Samúelsbók 29:1–11

Fyrri Samúelsbók

29 Filistear+ söfnuðu nú saman öllum hersveitum sínum við Afek en Ísraelsmenn höfðu slegið upp herbúðum við lindina í grennd við Jesreel.+ 2 Höfðingjar Filistea gengu fylktu liði með hundrað manna og þúsund manna flokka sína og Davíð og menn hans voru aftastir með Akís.+ 3 „Hvað eru þessir Hebrear að gera hér?“ spurðu höfðingjar Filistea. „Þetta er Davíð, þjónn Sáls Ísraelskonungs,“ svaraði Akís. „Hann hefur verið hjá mér í meira en ár+ og ég hef ekki haft neitt út á hann að setja frá því að hann flúði til mín og fram á þennan dag.“ 4 En höfðingjar Filistea reiddust honum og sögðu við hann: „Sendu manninn aftur heim,+ til staðarins sem þú úthlutaðir honum. Hann má ekki fara með okkur í stríðið því að hann gæti snúist gegn okkur í bardaganum.+ Er til nokkur betri leið fyrir hann til að koma sér í mjúkinn hjá herra sínum en að færa honum höfuð hermanna okkar? 5 Er þetta ekki Davíð sem sungið var um undir dansi:

‚Sál hefur fellt sínar þúsundir

og Davíð sínar tugþúsundir‘?“+

6 Akís+ kallaði þá Davíð til sín og sagði: „Svo sannarlega sem Jehóva lifir ertu heiðarlegur maður. Ég er ánægður að þú komst með okkur í þennan hernaðarleiðangur+ því að frá því að þú komst til mín og fram á þennan dag hef ég ekki haft neitt út á þig að setja.+ En höfðingjarnir treysta þér ekki.+ 7 Farðu því aftur heim í friði og gerðu ekkert sem er höfðingjum Filistea á móti skapi.“ 8 „Hvað hef ég gert?“ spurði Davíð Akís. „Hvað hefurðu getað sett út á í fari þjóns þíns frá því að ég kom til þín og fram á þennan dag? Hvers vegna fæ ég ekki að koma með þér og berjast við óvini herra míns, konungsins?“ 9 Akís svaraði Davíð: „Í mínum augum hefurðu verið jafn góður og engill frá Guði.+ En höfðingjar Filistea segja: ‚Hann má ekki fara með okkur í stríðið.‘ 10 Farðu þess vegna snemma á fætur í fyrramálið ásamt þjónum herra þíns sem komu með þér og leggið af stað um leið og birtir af degi.“

11 Morguninn eftir fóru Davíð og menn hans snemma á fætur og sneru heim til lands Filistea, en Filistear héldu upp til Jesreel.+

Íslensk rit (1985-2026)
Útskrá
Innskrá
  • Íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila