PRÓFAÐU ÞETTA
Sjáðu frásögur Biblíunnar fyrir þér
Í Biblíunni er að finna sannar frásögur sem má draga dýrmætan lærdóm af. Með því að sjá þessar frásögur fyrir okkur getum við betur skilið þær og lært af þeim. Hér koma fáein ráð sem geta hjálpað þér að sjá frásögur Biblíunnar fyrir þér.
Lestu upphátt. Þú átt auðveldara með að sjá atburði fyrir þér ef þú lest upphátt. Þegar þið lesið Biblíuna saman sem fjölskylda getið þið glætt frásöguna lífi með því að fela hverjum og einum að lesa það sem ákveðin persóna í sögunni segir.
Sjáðu atburðina fyrir þér. Reyndu að ímynda þér hvað fólkið í frásögunni hugsaði og hvernig því leið. Þú gætir til dæmis spurt: Hvers vegna sagði eða gerði persónan þetta? Hvað hefði ég hugsað eða hvernig hefði mér liðið í þessum aðstæðum?
Teiknaðu mynd. Það getur auðveldað þér að sjá atburði fyrir þér og muna þá ef þú teiknar mynd af þeim, jafnvel þótt myndin sé ekkert listaverk.