Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w26 janúar bls. 14–19
  • Hvers vegna þurfum við á lausnargjaldinu að halda?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvers vegna þurfum við á lausnargjaldinu að halda?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • LAUSNARGJALDIÐ VEITIR FYRIRGEFNINGU
  • LAUSNARFÓRNIN VEITIR OKKUR VON UM AÐ VERÐA FULLKOMIN
  • LAUSNARGJALDIÐ VEITIR SÁTT VIÐ GUÐ
  • LAUSNARGJALDIÐ ER MERKI UM MISKUNN JEHÓVA
  • Hvað lærum við af lausnargjaldinu?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Hvernig sýnir þú þakklæti fyrir lausnargjaldið?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
  • Kærleikur Jehóva er okkur til góðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Fyrirgefning Jehóva er okkur mjög dýrmæt
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2026
w26 janúar bls. 14–19

16.–22. MARS 2026

SÖNGUR 20 Þú gafst þinn kæra son

Hvers vegna þurfum við á lausnargjaldinu að halda?

„Hver getur frelsað mig frá líkamanum sem dregur mig til dauða með þessum hætti?“ – RÓMV. 7:24.

Í HNOTSKURN

Í þessari námsgrein ræðum við hvernig lausnargjaldið veitir fyrirgefningu, von um að verða aftur fullkomin og sátt við Guð.

1, 2. Hvers vegna þurfum við á björgun að halda? (Rómverjabréfið 7:22–24) (Sjá einnig mynd.)

SJÁÐU þetta fyrir þér: Bygging hrynur og maður er fastur undir rústunum. Hann er á lífi en hann getur ekki bjargað sér sjálfur. Það eina sem hann getur gert er að hrópa á hjálp og vonast til að einhver komi honum til bjargar.

2 Hvert og eitt okkar er í svipaðri stöðu. Á hvaða hátt? Adam varð syndugur þegar hann gerði uppreisn gegn skapara sínum. Seinna gaf hann börnum sínum syndina í arf. Þess vegna er allt mannkynið fast í fjötrum erfðasyndarinnar og getur ekki sjálft losað sig undan henni. Páll postuli lýsti vel syndugu eðli okkar í bréfi sínu til Rómverja. (Lestu Rómverjabréfið 7:22–24.) Hann spurði: „Hver getur frelsað mig frá líkamanum sem dregur mig til dauða með þessum hætti?“ Páll var fastur í klóm erfðasyndarinnar sem myndi að lokum leiða hann til dauða. (Rómv. 6:23) Við erum í sömu klípu. Við þurfum á hjálp að halda.

Særður maður sem er fastur í húsarústum teygir fram höndina.

Við erum föst í klóm erfðasyndarinnar og þurfum á björgun að halda eins og maður sem er fastur í húsarústum. (Sjá 1. og 2. grein.)


3. Á hvaða vegu bjargar lausnargjaldið okkur?

3 Páll endaði umræðu sína um syndina á jákvæðum nótum. Eftir að hafa spurt: „Hver getur frelsað mig frá líkamanum sem dregur mig til dauða með þessum hætti?“ lagði hann áherslu á lausnina og sagði: „Ég þakka Guði sem bjargar mér fyrir milligöngu Jesú Krists, Drottins okkar.“ (Rómv. 7:25) Páll átti hér við lausnarfórna Jesú. Hún getur bjargað okkur með því að (1) veita okkur fyrirgefningu synda okkar, (2) leiða okkur til fullkomleika og (3) veita sátt við skaparann. Með því að hugleiða þetta vex kærleikur okkar til Jehóva sem er „Guð vonarinnar“. (Rómv. 15:13) Og við kunnum enn betur að meta það sem Jesús gerði fyrir okkur – en „vegna hans erum við leyst með lausnargjaldi“. – Kól. 1:14.

LAUSNARGJALDIÐ VEITIR FYRIRGEFNINGU

4, 5. Hvers vegna þurfum við öll á lausnargjaldinu að halda? (Prédikarinn 7:20)

4 Við þurfum lausnargjaldið til að fá fyrirgefningu synda okkar. Ófullkomnir menn syndga allir, hvort sem það er í orði eða verki. (Lestu Prédikarann 7:20.) Sumar syndir eru alvarlegri en aðrar. Þeir sem gerðust til dæmis sekir um framhjáhald eða morð áttu yfir höfði sér dauðarefsingu undir Móselögunum. (3. Mós. 20:10; 4. Mós. 35:30, 31) Margar aðrar syndir eru auðvitað ekki eins alvarlegar en eru samt syndir. Sálmaskáldið Davíð sagði til dæmis: „Ég vil gæta að skrefum mínum svo að ég syndgi ekki með tungu minni.“ (Sálm. 39:1) Já, stundum er jafnvel það sem við segjum synd. – Jak. 3:2.

5 Hefur þú einhvern tímann sagt eitthvað sem þú vildir að þú gætir tekið til baka? Hefurðu gert eitthvað sem þú sérð eftir? Þú svarar eflaust báðum þessum spurningum játandi. Í Biblíunni stendur: „Ef við segjum: ‚Við erum syndlaus,‘ blekkjum við sjálf okkur og sannleikurinn býr ekki í okkur.“ – 1. Jóh. 1:8.

6, 7. Á hvaða grundvelli fyrirgefur Jehóva syndir okkar? (Sjá einnig mynd.)

6 Lausnarfórnin er traustur grundvöllur til að Jehóva geti fyrirgefið syndir okkar. (Ef. 1:7) Það þýðir samt ekki að hann horfi fram hjá syndunum eins og þær skipti hann ekki máli. Jehóva vill ekki að við syndgum. (Jes. 59:2) Fullkomið réttlæti hans krefst þess að það sé grundvöllur fyrir fyrirgefningunni.

7 Móselögin kröfðust þess að Ísraelsmenn færðu dýrafórnir til að friðþægja fyrir syndir sínar. (3. Mós. 4:27–31; 17:11) Þessar fórnir sýndu að mannkynið þyrfti betri fórn. Það var fórn Jesú með þeirri margvíslegu blessun sem hún hefði í för með sér. Fórn hans gaf Jehóva lagalegan grundvöll til að fyrirgefa syndir okkar. Páll gerði sér grein fyrir hversu dýrmætur fórnardauði Jesú var fyrir mannkynið, eins og sjá má af því sem hann skrifaði til kristinna manna í Korintu. Eftir að hafa talið upp allt það slæma sem þeir höfðu áður lagt stund á sagði hann: „Þið hafið hreinsast, þið hafið helgast, þið eruð lýstir réttlátir í nafni Drottins Jesú Krists og með anda Guðs okkar.“ – 1. Kor. 6:9–11.

Fjölskylda í Ísrael færir prestinum í musterinu fúslega sauð.

Dýrafórnirnar sem voru færðar til að friðþægja fyrir syndir voru fyrirmynd að lausnarfórn Jesú og þeirri margvíslegu blessun sem hún myndi hafa í för með sér. (Sjá 6. og 7. grein.)


8. Hvað ættum við að hugsa um vikurnar fyrir minningarhátíðina?

8 Hvað þýðir fyrirgefning Jehóva fyrir þig? Taktu þér tíma til að hugleiða það vikurnar fyrir minningarhátíðina. Vegna lausnargjaldsins þarftu til dæmis ekki að vera þjakaður af sektarkennd yfir gömlum syndum sem þú hefur iðrast. En hvað ef þú átt samt erfitt með að taka við fyrirgefningunni? Þú hugsar kannski með þér: „Ég skil að Jehóva getur fyrirgefið en ég get ekki fyrirgefið sjálfum mér.“ Ef þér líður þannig skaltu muna að Jehóva er sá sem fyrirgefur og hann hefur gefið syni sínum vald til að dæma. Jehóva hefur hvorki gefið þér né neinum öðrum manni það verkefni að ákveða hverjum hann fyrirgefur og hverjum ekki. Biblían segir: ‚Ef við göngum í ljósinu eins og Jehóva er sjálfur í ljósinu hreinsar blóð Jesú sonar hans okkur af allri synd.‘ (1. Jóh. 1:6, 7) Við getum verið jafn sannfærð um þetta og önnur biblíusannindi. Lausnarfórn Jesú gefur Jehóva lagalegan grundvöll til að sýna okkur miskunn og í orði hans segir að hann sé „fús til að fyrirgefa“. – Sálm. 86:5.

LAUSNARFÓRNIN VEITIR OKKUR VON UM AÐ VERÐA FULLKOMIN

9. Hvað felur synd í sér? (Sálmur 51:5)

9 Í Biblíunni er orðið „synd“ ekki aðeins notað um verknað heldur líka um eðli, syndugt eðli sem við erfðum þegar við vorum getin. (Lestu Sálm 51:5.) Þetta eðli hefur ekki aðeins þau áhrif að við gerum það sem er rangt heldur hefur það líka áhrif á líkama okkar, að við veikjumst, hrörnum og deyjum. Þetta útskýrir hvers vegna ungbörn, sem hafa aldrei gert neitt rangt, geta orðið veik og dáið. Þetta skýrir líka hvers vegna bæði gott fólk og slæmt þjáist og deyr. Allir afkomendur Adams hafa fengið syndugt eðli í arf.

10. Hvernig leið Adam og Evu eftir að þau syndguðu?

10 Veltu fyrir þér hvernig Adam og Evu leið eftir að þau syndguðu og urðu ófullkomin. Syndin olli miklu tilfinningaróti hjá þeim. Eftir að þau gerðu uppreisn fundu þau strax fyrir afleiðingum þess að brjóta lög Guðs – lög sem voru ‚skráð í hjörtum þeirra‘. (Rómv. 2:15) Þau fundu hvernig þau breyttust til hins verra. Þeim fannst þau þurfa að hylja hluta af líkama sínum og fela sig fyrir skaparanum eins og glæpamenn. (1. Mós. 3:7, 8) Í fyrsta skipti fundu þau fyrir sektarkennd, kvíða, óöryggi, sársauka og skömm. Þau myndu þurfa að kljást við þessar tilfinningar í einhverjum mæli þangað til þau dæju. – 1. Mós. 3:16–19.

11. Hvaða áhrif hefur ófullkomleikinn á okkur?

11 Ófullkomleikinn hefur svipuð áhrif á okkur eins og hann hafði á Adam og Evu. Líkamlegar og tilfinningalegar þjáningar eiga rætur að rekja til ófullkomleikans. Sama hvað við reynum getum við aldrei bætt ástand okkar að fullu því að eins og Biblían segir þurfum við að sæta því að „lifa innantómu lífi“. (Rómv. 8:20) Og þetta er ekki aðeins reyndin fyrir okkur sem einstaklinga heldur fyrir mannkynið í heild. Hugsaðu til dæmis um tilraunir manna til að sjá um jörðina, binda enda á glæpi og fátækt og koma á friði milli þjóða. Mönnunum hefur ekki tekist að leysa þessi vandamál. Hvernig getur lausnargjaldið veitt okkur raunverulega von?

12. Hvaða von veitir lausnargjaldið?

12 Vegna lausnargjaldsins höfum við þá von að sköpunin verði leyst „úr þrælkun forgengileikans“. (Rómv. 8:21) Þetta þýðir að þegar við verðum fullkomin í nýja heiminum verðum við ekki lengur veik líkamlega, andlega og tilfinningalega. Við þurfum ekki heldur að burðast með sektarkennd, kvíða, óöryggi, sársauka og skömm. Og undir stjórn Friðarhöfðingjans, Jesú Krists, sem færði lausnarfórnina mun okkur takast að lifa í friði og annast jörðina. – Jes. 9:6, 7.

13. Hvað annað geturðu hugsað um fyrir minningarhátíðina?

13 Hugsaðu þér hvað það mun þýða fyrir þig að losna við ófullkomleikann. Ímyndaðu þér hvernig það verður að vakna hress á hverjum morgni og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að þú eða einhver sem þú elskar þurfi að líða hungur, veikjast eða deyja. Jafnvel núna getum við fundið vissa ró með því að „halda fast í vonina sem … er eins og akkeri fyrir sálina, bæði traust og örugg“. (Hebr. 6:18, 19) Rétt eins og akkeri gefur bát stöðugleika getur vonin gert trú þína stöðuga og hjálpað þér að halda út í hvaða erfiðleikum sem þú verður fyrir. Þú getur treyst því að Jehóva „launi þeim sem leita hans í einlægni“. (Hebr. 11:6) Það er aðeins vegna lausnarfórnarinnar sem þú getur fengið huggun núna og von um fullkomið líf í framtíðinni.

LAUSNARGJALDIÐ VEITIR SÁTT VIÐ GUÐ

14. Hvaða áhrif hefur syndin haft á samband okkar við skaparann og hvers vegna?

14 Allt frá uppreisn Adams og Evu hefur mannkynið verið fjarlægt Guði. Í Biblíunni kemur meira að segja fram að óvinátta ríki milli mannkynsins sem heild og Guðs. (Rómv. 8:7, 8; Kól. 1:21) Hvers vegna? Siðferðisreglur Jehóva eru fullkomnar og þess vegna lætur hann ekki synd viðgangast. Biblían segir um Jehóva: „Augu þín eru of hrein til að horfa á hið illa og þú umberð ekki illsku.“ (Hab. 1:13) Syndin hefur þannig gert mennina fjarlæga Guði. Ekkert okkar getur átt samband við Jehóva nema að bilið sé brúað og við sættumst við hann. Lausnargjaldið er þessi brú sem gerir okkur kleift að nálgast Guð og sættast við hann.

15. Hvernig gerði fórn Jesú mönnunum kleift að eignast aftur gott samband við Jehóva?

15 Biblían segir að Jesús sé „friðþægingarfórn fyrir syndir okkar“. (1. Jóh. 2:2) Hvernig gerði fórn Jesú mönnunum kleift að eignast aftur gott samband við Jehóva? Dauði Jesú gaf fullkomnum Guði okkar réttlátan grundvöll fyrir því að sættast við mennina. (Rómv. 3:23–26) Hann gat jafnvel talið þá réttláta sem tilbáðu hann í trúfesti áður en Kristur dó. (1. Mós. 15:1, 6) Hann gerði það á grundvelli lausnargjaldsins sem yrði greitt. Jehóva var handviss um að Jesús sonur sinn myndi greiða það. (Jes. 46:10) Lausnargjaldið opnaði mönnunum leið til að sættast við Guð.

16. Hvað fleira geturðu íhugað vikurnar í kringum minningarhátíðina? (Sjá einnig mynd.)

16 Hugsaðu þér hvað það þýðir fyrir þig að eiga gott samband við Guð. Til dæmis kallarðu kannski Jehóva ‚föður‘ eins og Jesús sagði okkur að gera. (Matt. 6:9) Og stundum talarðu jafnvel um Jehóva sem vin þinn. Þegar við notum titla eins og „faðir“ og „vinur“ ættum við gera það með djúpri virðingu og auðmýkt. Af hverju? Af því að við erum syndug og engin nánd sem við finnum við Jehóva er vegna þess að við eigum hana skilið. Án lausnargjaldsins gætum við ekki einu sinni átt samband við Jehóva. Hann opnaði leiðina til að „koma öllu í sátt við sig fyrir milligöngu [Jesú] … Þessi friður fæst með blóðinu sem var úthellt á kvalastaurnum.“ (Kól. 1:19, 20) Við getum þar af leiðandi átt gott samband við Jehóva núna þótt við séum ófullkomin.

Rómverskir hermenn eru í þann mund að negla Jesú á kvalastaur. Tveir þeirra leiða Jesú að staurnum og sá þriðji heldur á hamar og nagla.

Aðeins dauði Jesú gaf Jehóva lagalegan grundvöll fyrir því að byggja aftur upp gott samband við mannkynið. (Sjá 16. grein.)


LAUSNARGJALDIÐ ER MERKI UM MISKUNN JEHÓVA

17. Hvernig undirstrikar lausnargjaldið miskunn Jehóva? (Efesusbréfið 2:4, 5)

17 Lausnargjaldið er skýrt merki um að Jehóva sé „ríkur að miskunn“. „Hann lífgaði okkur … jafnvel þótt við værum dauð vegna afbrota okkar.“ (Lestu Efesusbréfið 2:4, 5.) Þeir sem ‚hafa það hugarfar sem þarf til að hljóta eilíft líf‘ kalla á hjálp. Þeir gera sér grein fyrir að þeir eru fastir í klóm erfðasyndarinnar og þurfa á björgun að halda, rétt eins og maðurinn í rústunum. (Post. 13:48) Jehóva heyrir köll þeirra og bjargar þeim með því að miðla þeim fagnaðarboðskapnum. Hann sér til þess að þeir fái að kynnast sér og syni sínum, Jesú Kristi. (Jóh. 17:3) Satan hélt að óhlýðni Adams og Evu hefði komið í veg fyrir fyrirætlun Jehóva en hann hafði algerlega rangt fyrir sér.

18. Hverju megum við ekki gleyma þegar við hugleiðum lausnargjaldið?

18 Þegar við hugleiðum allt það góða sem lausnargjaldið hefur í för með sér fyrir okkur megum við ekki gleyma aðalástæðunni fyrir því að Jehóva sá fyrir lausnargjaldinu. Hann færði ekki lausnargjaldið bara til að bjarga okkur heldur til að svara ásökunum Satans sem hann bar fram í Edengarðinum. (1. Mós. 3:1–5, 15) Jehóva helgar nafn sitt og hreinsar það af öllum ásökunum með lausnargjaldinu. Hann bjargar okkur líka undan synd og dauða og sannar þannig að hann er Guð kærleikans. Og vegna einstakrar góðvildar sinnar leyfir Jehóva okkur að eiga þátt í að svara ásökunum Satans þótt við séum ófullkomin. (Orðskv. 27:11) Hvernig geturðu sýnt að þú sért þakklátur fyrir lausnargjaldið? Við fáum svar við þeirri spurningu í næstu námsgrein.

HVERNIG VEITIR LAUSNARGJALDIÐ OKKUR …

  • fyrirgefningu?

  • von um að verða aftur fullkomin?

  • sátt við Guð?

SÖNGUR 19 Kvöldmáltíð Drottins

a ORÐASKÝRING: Lausnargjald er gjald sem er greitt til að leysa mann úr ánauð. Fórnardauði Jesú er lausnargjald í þeim skilningi að það leysir hlýðna menn úr ánauð syndar og dauða.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila