Neðanmáls
c Til dæmis lýsti fulltrúaráð margra trúardeilda mótmælenda í Bandaríkjunum því yfir árið 1918 að Þjóðabandalagið yrði „pólitísk ímynd Guðsríkis á jörð“. Árið 1965 söfnuðust fulltrúar búddista, kaþólsku kirkjunnar, rétttrúnaðarkirkjunnar í austri, hindúa, múslima, gyðingdóms og mótmælenda í San Fransisco til að sýna stuðning og biðja fyrir Sameinuðu þjóðunum. Og árið 1979 lét Jóhannes Páll páfi annar í ljós von sína um að ,Sameinuðu þjóðirnar myndu ávallt vera æðsti dómsvettvangur friðar og réttvísi‘.