HVERNIG ERU FRAMLÖGIN NOTUÐ?
Öryggi ríkissala tryggt í COVID-19 faraldrinum
1. OKTÓBER 2022
„Stjórnandi ráð hefur ákveðið að allir söfnuðir skulu halda samkomur í ríkissalnum frá og með 1. apríl nema reglur yfirvalda á staðnum setji því hömlur.“ Þessi tilkynning var birt á jw.org í byrjun mars 2022 og vottar Jehóva um allan heim voru hæstánægðir. En COVID-19 faraldurinn var ekki genginn yfir.a Hvaða breytingar voru nauðsynlegar og hvaða búnað þurfti til að verja samkomugesti fyrir veirunni? Yrðu ríkissalirnir tilbúnir eftir að hafa staðið ónotaðir í tvö ár?
Á þessum tímapunkti voru bræðurnir reyndar búnir að vera að búa ríkissalina undir samkomuhald í marga mánuði.
Mismunandi þarfir kalla á mismunandi lausnir
Aðeins mánuði eftir að við hættum að halda samkomur í ríkissalnum árið 2020 hófst alþjóða hönnunar- og byggingardeildin (WDC) í Warwick í New York handa við að rannsaka hvaða áhrif COVID-19 faraldurinn myndi hafa á notkun ríkissala og hvað þyrfti að gera til að tryggja öryggi þeirra.
Þarfirnar voru ólíkar eftir heimshlutum. Matthew De Sanctis, sem starfar fyrir WDC, útskýrir: „Í sumum löndum er skortur á handþvottaaðstöðu. Stundum hafa ríkissalir ekkert rennandi vatn og þá þarf að kaupa það eða sækja í nálæga á eða brunn. Í öðrum löndum hafa stjórnvöld breytt reglum varðandi loftræstingu og merkingar um heilsu og hreinlæti.“
Hvernig leystu bræðurnir þessi mál? Þeir komust að því að í mörgum tilfellum reyndust „einfaldar og ódýrar lausnir mjög áhrifaríkar,“ segir Matthew. Í Papúa Nýju-Gíneu voru til dæmis settar upp einfaldar handþvottastöðvar með 20 lítra plastdunkum með áföstum krönum. Bræðurnir gátu þannig búið dæmigerðan ríkissal úti í sveit undir samkomuhald fyrir aðeins 40 bandaríkjadali. Og yfir 6.000 hágæða handþvottastöðvar voru keyptar fyrir ríkissali í Afríku af birgðasala í Asíu.
Foreldrar setja börnum sínum gott fordæmi í hreinlæti.
Aðrar breytingar fólu í sér að setja upp eða betrumbæta viftur og loftræstikerfi til að bæta loftgæðin í ríkissölum. Fyrir marga sali voru keyptar langar stangir fyrir hljóðnemana svo að bræður og systur þyrftu ekki að rétta þá sín á milli. Reynt var að fækka snertiflötum og þeir sótthreinsaðir reglulega, eins og til dæmis hurðarhúnar og kranar sem bera gjarnan smit. Í sumum ríkissölum voru sett snertilaus handlaugartæki inni á snyrtingum. Að gera nauðsynlegar breytingar í ríkissölum í Síle kostaði að meðaltali 1.400 bandaríkjadali fyrir hvern ríkissal.
Hljóðnemar voru ekki látnir ganga á milli bræðra og systra.
Auk þess sem bræðurnir lögðu fyrst og fremst áherslu á að tryggja öryggi ríkissala reyndu þeir líka að fara vel með frjálsu framlögin. Í sumum löndum nýttu þeir til dæmis skattafrádrátt fyrir handþvottastöðvar og stangir fyrir hljóðnema. Deildarskrifstofur tóku sig saman og keyptu vörur í meira magni en venjulega og spöruðu þannig fjármagn. Deildarskrifstofur og alþjóða innkaupadeildin keyptu gjarnan vörur beint frá framleiðandanum og það lækkaði ekki aðeins verðið heldur stytti líka sendingartímann.
Sótthreinsistöð.
„Öryggiskennd sem ég þurfti á að halda“
Það sem var gert til að tryggja öryggi ríkisalanna hefur verið þeim sem eru farnir að sækja aftur samkomur í eigin persónu til verndar og hughreystingar. Dulcine, systir í Perú, viðurkennir að hafa verið „svolítið smeyk“ þegar hún heyrði að við myndum fara að halda samkomurnar aftur í ríkissalnum. „Ég fékk COVID-19 í upphafi faraldursins,“ segir hún. „Ég var þess vegna stressuð að fara í ríkissalinn vitandi að ég gæti verið útsett fyrir veirunni aftur. En þegar ég kom í ríkissalinn tók ég eftir að öldungarnir höfðu gert margar öryggisráðstafanir, eins og til dæmis tekið í notkun sótthreinsistöðvar og hljóðnemastangir. Þeir voru líka með áætlun um að sótthreinsa ríkissalinn fyrir og eftir hverja samkomu. Allt þetta gaf mér þá öryggiskennd sem ég þurfti á að halda.“b
Ríkissalur sótthreinsaður.
Sara, systir í Sambíu, stóð frammi fyrir ólíku vandamáli. Hún segir: „Maðurinn minn lést úr COVID-19 fyrir nokkrum mánuðum. Ég kveið því að fara í ríkissalinn í fyrsta skipti án hans.“ Hvernig fór? Hún segir: „Samkomur í ríkissalnum hafa sannfært mig um að Jehóva sé með okkur á þessum síðustu dögum. Núna finn ég betur fyrir þeim stuðningi, uppörvun og hlýju sem ég þarf á að halda frá öldungunum og öðrum trúsystkinum mínum.“
Trúsystkini ánægð að geta hist aftur í ríkissalnum.
Trúsystkini okkar um allan heim eru þakklát fyrir að geta hist aftur í ríkissölum sínum. Kærar þakkir fyrir framlög ykkar sem oftar en ekki eru gefin á donate.jw.org. Þessi framlög gera okkur kleift að tryggja að það sé bæði þægilegt og öruggt að safnast saman til hreinnar tilbeiðslu í ríkissölunum.
a Þeir sem þurftu að halda áfram að sækja samkomur með fjarfundabúnaði eða í síma gátu haldið því áfram ef það var í boði.
b Auk þess voru allir eindregið hvattir til að vera með grímu á samkomunum í ríkissalnum.